Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Stundum á lífs- leiðinni hittir maður fólk sem er manni minnisstæðara en annað. Ég var svo heppin um tíma að fá að kynnast Birni og á ákveðinn hátt má það teljast gæfa, því maðurinn var þvílíkum kostum búinn að til eftirbreytni var. Áhugamál okkar voru mörg mjög svipuð, ég hef gaman af því að klippa hár og hann var út- lærður hárskerameistari. Hann var í Sinfóníuhljómsveitinni frá upphafi og tengdist alla tíð tón- list og ég sjálf náði þeim áfanga- sigri að vera í hljómsveit í Perú. Björn Rósenkranz Einarsson ✝ Björn Rósenkr-anz Einarsson fæddist 16. maí 1923. Hann lést 19. maí 2014. Útför Björns fór fram 28. maí 2014. Birni var margt til lista lagt og það verður ekki allt tí- undað hér, en það var mikil heppni að fá tækifæri til að kynnast honum og fylgjast með verk- um hans. Blessuð sé minning hans. Guð veri með þér í nýrri framtíð fjarri ástvinum en þó svo nærri í heimi andans. Farðu frjáls áfram veginn til góðra verka í eilífðarfaðmi um aldir alda. (Jóna Rúna Kvaran) Ég votta aðstandendum Björns mína dýpstu samúð. Jóna Rúna Kvaran. ✝ Kristófer Edi-lonsson fæddist í Ólafsvík 5.5. 1937 Hann lést á Landa- koti þann 9. maí 2014. Foreldrar hans voru Lilja Ágúst- ardóttir frá Lýsu- hóli og Edilon Kristófersson frá Kaldalæk, sjómað- ur í Ólafsvík. Systk- ini Kristófers eru. Aðalheiður. f. 1933, maki Sveinn Kristjánsson, f. 1925. Magnea, f. 1935, maki Hellert Jóhannesson, f. 1933, d. 1985. Gústaf, f. 1948, maki Bergljót Óladóttir, f. 1950. Eft- irlifandi eiginkona Kristófers er Ásthildur Geirmundsdóttir, f. 1936 í Fljótavík á Horn- ströndum. Foreldrar Ástu voru Regína Sigurðardóttir, frá Látr- um í Aðalvík, f. 1904, d. 1994 og Geirmundur Júlíusson, f. 1908, d.1996. Börn Kristófers og Ástu eru: Sigurður Ólafur, f. 1956, maki Þuríður Helgadóttir, f. 1961. Börn þeirra eru Davíð, maki Jó- hanna Torfadóttir, Kristófer Helgi, maki Sandra Björnsdóttir og Andri Örn, maki Brynja Ólafsdóttir, Ágúst Edilon, f. 1960, maki Katrín Rögnvaldsdóttir, f. 1963. Börn þeirra eru Fanney Ásta, maki Karl Gunnarsson og Lilja Unnur, maki Sævar Grímsson. Guðmundur Geir, f. 1965, maki Íris Bjarnadóttir, f. 1968. Börn þeirra eru Gunnhildur Lilja, Ásthildur Jóna og Regína Lind. Aðalsteinn, f. 1968, maki Matt- hildur Einarsdóttir, f. 1987. Börn hans eru Magni Jens, Em- anúel Kristófer og Erik Ægir og Aðalheiður Dröfn, f. 1975, börn hennar eru Jökull Máni, Sól- björg Arna og Ísbjörg Lilja. Útför Kristófers fór fram frá Digraneskirkju 16. maí 2014 kl. 13. Með fáum orðum langar mig að minnast frænda míns. Efst í huga er minning um skemmti- legan og barngóðan mann sem gaman var að hitta og vera ná- lægt. Ég var sem barn og síðar sem unglingur og skólastrákur við vinnu í Ólafsvík nokkur sumur og umgekkst Kristófer, Ástu og syni þeirra mikið þann tíma. Í minningunni er nokkur æv- intýraljómi um þennan frænda í Ólafsvík, enda átti hann oft spennandi bíla, hann átti bát og kafaragræjur, hann rak bens- ínsjoppuna og keyrði olíubílinn og leyfði okkur stundum að koma með sér, ef stutt var farið. Þegar hann kom til Reykja- víkur á vörubílnum kom hann stundum í heimsókn í blokkina þar sem við bjuggum og leyfði hann þá okkur krökkunum að nota bílinn í „yfir“ á meðan hann stoppaði hjá systur sinni í kaffi og spjalli, áður en lagt var af stað aftur heim til Ólafsvíkur. Frá þessum sumrum og ung- lingsárum í Ólafsvík er margs að minnast. Eitt sinn datt okkur Sigga í hug að smíða okkur bát. Þá keyrði Kristófer fyrir okkur smíðaefni heim að lóð og svo bátinn „sjókláran“ niður í ósa Hvalsár, þar sem báturinn var sjósettur en sökk reyndar undir okkur eftir stutta sjóferð. Næsta sumar kenndi Krist- ófer mér á bíl, í skiptum fyrir hreinsun á mótatimbri og önnur smá viðvik við nýbyggingu sem hann stóð þá í. Fyrir allt þetta og skemmtilegar samverustund- ir er ég þakklátur og sendi nú Ástu, Sigga, Ágústi, Gumma, Aðalsteini og þeirra fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Kveðja frá systursyni, Kristján Sveinsson. Kristófer Edilonsson Systir mín góð, fáein kveðju- orð. Minningarnar þyrpast að. Bernskuárin á Sævarenda. Ég man eftir berjaferðum, silungs- veiðum með Bjössa föðurbróð- ur, handavinnu þegar veður var vont. Eða eitt haustið þegar þú komst heim frá Búðum og varst svo ótrúlega fljót upp brekk- una. Ég skildi ekki að það væri svo voðalegt þótt tveir fullorðn- ir hrútar kæmu þjótandi til þín. En þú varst nú alltaf meira fyr- ir hesta og hunda. Eins man ég vorin þegar þú komst heim úr skóla. Þú stóðst þig alltaf með prýði. Þar fór saman góð greind, samviskusemi, vand- virkni og mikill metnaður. Þá var nú gaman að lifa og mál til komið að fara á hestbak. Manst þú, Valla, eftir ágústkvöldinu? Fólkið á Sævarenda hafði verið allan daginn í heyskap, pabbi og Bjössi enn úti, mamma og Helga í eldhúsinu að taka til mat og við og Stína sátum í rökkrinu í litla herberginu. Ég man eftir söngnum „Áfram veg- inn í vagninum ek ég“. Mér leið vel, þetta var svo fallegt. En seinna meir var mér lífsins ómögulegt að muna hvort þið Stína voruð að syngja eða þetta var í útvarpinu, og þá auðvitað Stefano Íslandi. Árið 1951 í september. Þú á bryggjunni í Reykjavík að taka á móti litlu systur sem var að hefja sína skólagöngu. Seinna komu mamma og pabbi og saman bjuggum við fyrst á Ljósvalla- götunni og svo á Hjarðarhaga 32 til vors 1959 að ég flutti í Fljótshlíðina. Þessi ár vannst þú á skrifstofum. Þegar þú eignaðist bíl komst þú oft með mömmu og konur að austan í heimsókn svo að ég missti ekki alveg tengslin við Austfirðina. Þið Gunnar Eggertsson giftuð Valdís Halldórsdóttir ✝ Valdís Hall-dórsdóttir fæddist á Sæv- arenda í Fáskrúðs- firði 6. apríl 1928. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Hömrum í Mos- fellsbæ 27. maí 2014. Útför Valdísar var gerð frá Foss- vogskirkju 4. júní 2014. ykkur 1972 og stofnuðuð ykkar eigið fyrirtæki tveim árum síðar. Þetta var viðburða- ríkur tími, mikil vinna að byggja upp fyrirtæki, margar utanlands- ferðir. Og svo lax- veiðin. Það var sko ekki netaveiði. Þú varst orðin æði slyngur veiðimaður, a.m.k. þeg- ar þú veiddir meira en fé- lagarnir, þeir sögðu að þetta væri ekki að marka, laxinn hefði dáið úr hlátri þegar hann sá veiðimanninn. 1972-1988 kalla ég árin ykkar Gunnars sem hefðu mátt vera svo miklu fleiri en hann dó skyndilega 1988. Það var þér mikið áfall en þú áttir vissulega góðar stundir með ættingjum og vinum eftir það. Árið 2005 keyptir þú hús í Hveragerði á Lækjarbrún 8 rétt hjá HNLFÍ þar sem þú dvaldir oft þér til heilsubótar. Ekki spillti það fyrir að Sigga, Jói og börn bjuggu í næstu götu, aðstoðuðu þig og tóku þig með í laxveiði og í Ormskot. Alltaf áttir þú vísan samastað og aðstoð hjá Sonju og Sverri í Reykjavík- urferðum. Um jólin í Ormskoti og á gamlárskvöld hjá Kristjáni og Gry, ekki má gleyma Fá- skrúðsfjarðarferðunum okkar og heimsóknum Ingu Jónu og Bryndísar, þeirra tryggu vin- kvenna, ísbíltúrunum með Guð- rúnu Eddu og Einari eða þá öll- um símtölunum hennar Stínu. Síðustu tvö árin voru erfið. Það var hugsað mjög vel um þig í Bæjarási, hvíldarinnlögnunum og á Hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ, þínu síðasta heimili. Nú hrekk ég ekki lengur upp af síðdegis- blundinum við símhringingu frá þér, því miður. Kannski ertu nálægt þó að ég sjái þig ekki, systir mín kær, og hlærð að þessu bulli. Þín Hjördís (Dísa). Látin er merkiskonan Valdís Halldórsdóttir. Kynni okkar hófust fyrir margt löngu, þegar ég og systurdóttir hennar, hún Sigríður, hófum búskap saman. Valdís, eða Valla eins og hún var alltaf kölluð á okkar heimili, var þá nýbúin að missa mann- inn sinn, hann Gunnar, en sá missir var henni mjög þungbær og Gunnar alltaf ofarlega í huga hennar alla tíð. Valla var tíður gestur á heimili okkar í Hveragerði fyrstu árin, en svo kom að því að hún flutti af Kvisthaganum í nýja þjónustíbúð í Lækjarbrún- inni í Hveragerði, þannig að nándin og samskiptin urðu miklu meiri fyrir vikið. Þar bjó Valla framundir það síðasta, að hún flutti á hjúkrunarheimili þegar búsetan í Lækjarbrún- inni var orðin henni ofviða sök- um lélegrar heilsu. Hún Valla gerði stundum góðlátlegt grín að mér, ekki fyrir það hversu heppinn ég var að giftast henni Sigríði, heldur að mér hefðu áskotnast tvær tengdamæður með því, meðan aðrir yrðu að láta sér nægja eina. Hún Valla hafði gott skop- skyn og gerði oft að gamni sínu, komst oft skemmtilega að orði þannig að eftir var tekið, og var líka afskaplega fær að segja vel frá, sem ekki er öllum gefið. Hún Valla var líka vel greind, hún hafði menntað sig ágætlega, sem var frekar sjald- gæft í þá daga, að konur fengju almennt tækifæri til, fallegri rithönd en hennar var leitun á, og auk þess var hún vel lesin og fróð um marga hluti. Stangveiði var í uppáhaldi hjá Völlu, við hjónin og hún fór- um stundum í veiðitúra saman, það kom fyrir að veitt var vel, en alltaf skemmtum við okkur frábærlega, sagðar risaveiði- sögur af stórlöxum og veiði- mönnum og oftar en ekki Valla í hlutverki sögumannsins. En það sem stendur upp úr af kynnum mínum af henni Völlu er þó fyrst og fremst hversu vönduð og góð mann- eskja hún var, fyrir það mun ég og fjölskyldan mín minnast hennar með kærri þökk í huga. Ég held að Valla hafi verið tilbúin til að stíga þetta skref inn í nýjan heim, ég veit líka að þar var tekið á móti henni fagn- andi. Far vel, Valla, og takk fyrir allt. Jóhann Svavar Ísleifsson. Amma Valla giftist Gunnari afa okkar þegar Sigurbjörn var á fyrsta ári og því ekkert okkar systkinanna sem man eftir sér án þess að hún hafi verið til staðar. Fyrir okkur var hún alltaf amma Valla og hélt því áfram eftir að afi féll frá. Það var alltaf gaman að koma til hennar á Kvisthagann og seinna í Hveragerði og eigum við öll góðar minningar um spil og spjall við eldhúsborðið hjá henni. Amma Valla hafði svo góða frásagnargáfu og sagði skemmtilegar sögur sem hún kryddaði með sinni einstöku glettni og hláturinn hennar var svo smitandi. Oft urðu hvers- dagslegustu hlutir í frásögum hennar alveg bráðfyndnir þegar hún sagði frá þeim og samtölin sem við áttum öll við hana í gegnum árin eru enn eftir- minnilegri fyrir vikið. Hún hafði sérstaklega gaman af því að rifja upp árin með afa og það var dýrmætt fyrir okkur syst- urnar að kynnast honum enn betur í gegnum minningar Völlu, því við vorum það ungar þegar Gunnar afi dó. Sigur- björn man vel eftir tímanum áð- ur en afi féll frá og hafði gaman af að rifja upp þá tíma með Völlu. Afi og Valla höfðu ferðast mikið saman, bæði inn- anlands og utan og höfðu átt það sameiginlegt að hafa unun af veiðiferðum. Við systurnar vorum svo heppnar að fá að fara með Völlu í ferðalög og veiðiferðir og smituðumst þann- ig bæði af ferða- og veiðibakt- eríunni. Magnea þykir alveg einstök veiðikló og henni gaf hún veiðistöng og önglana hans afa. Valla var líka mikill dýra- vinur og hafði gaman af hestum og hundum. Það var gaman að fylgjast með því hvernig hún vingaðist við dýrin, sérstaklega er okkur minnisstætt hvernig hún vingaðist við tíkina okkar hana Skottu og hann Putta, sem brosti alltaf breitt til Völlu. Putti bjó í Ormskoti hjá Hjör- dísi systur hennar, en þar fékk Guðný að vera í sveit í mörg sumur. Valla kom oft austur til systur sinnar á sumrin og var þá heilmikið spjallað og rætt um alla heima og geima. Það var gaman að heyra þær systur rifja upp sögur frá Fáskrúðs- firði og Guðný var svo heppin að komast í ferð með Völlu um Austfirðina og heimahaga Völlu. Það er henni ógleyman- legt. Síðasta árið bjó Valla á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ og þrátt fyrir að heilsu hennar hefði hrakað var alltaf stutt í glettnina og húm- orinn. Við erum viss um að nú séu þau amma Valla og Gunnar afi komin saman af stað í veiði- ferð og það er áreiðanlega mik- ið hlegið. Hvíl í friði, elsku Valla, og Guð geymi þig. Sigurbjörn, Guðný og Magnea. Nú er Gísli Jón fallinn frá töluvert fyrir aldur fram. Hógvær og lítillát- ur með stórt hjarta og ríka réttlætis- kennd. Hann fluttist frá Þing- eyri við Dýrafjörð til Reykjavík- ur og hóf störf hjá Ísleifi Jónssyni ehf. þann 1. mars 1965 og hefur unnið þar síðan. Traustur og góður starfsmaður og hluti af ímynd fyrirtækisins. Var oft viðkvæðið, þú getur spurt Gísla, hann veit það. Hann hafði sitt að segja um gæði og þjónustu og hlaut viðurkenningu Félags pípulagningamanna fyrir nokkrum árum fyrir áralanga þjónustu við þá iðngrein. Hann mætti ávallt fyrstur á morgnana eða uppúr kl. sjö og ✝ Gísli Jón fædd-ist 11. nóv- ember1945. Hann lést 19. maí 2014. Útför Gísla Jóns fór fram 27. maí 2014. hafði reglu á sínu lífi, fór alltaf heim í hádeginu og má segja að hann hafi lifað eftir klukku – allt í réttri röð. Gísli var ókvæntur og stangveiði var hans líf og yndi. Hann tók virkan þátt í starfi Ár- manna og ef það var ekki veiði þá var hann að kenna fluguköst, eða að hnýta flugur. Á árum áð- ur fór hann á völlinn og fylgdi þá Fram að málum. Hann talaði ávallt vel um stórfjölskyldu sína og stundum fannst manni þetta fólk vera skylt manni, enda var maður farinn að þekkja sum þeirra, þó maður hafi aldrei hitt það. Hann spurði hvort hann mætti fara heim á fimmtudegi, hann hélt að hann væri með hita. Sjálfsagt mál og ætlaði ég að hringja til hans næsta dag og frétti þá að hann væri kominn á spítala og haldið sofandi eftir bráðaaðgerð. Og hann sem hélt að hann væri að fá hita. Hann hafði virðingu sam- starfsmanna sem og viðskipta- vina og verður hans sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Ísleifur Leifsson. Hann nafni minn er dáinn. Það kemur alltaf jafnilla við okkur sem eftir lifum að fá and- látsfregn. Gísli veiktist 16. maí og lést á LSH við Hringbraut 19. maí. Ég ætla að reyna að minnast hans með nokkrum fá- tæklegum orðum. Kynni okkar hófust á barns- og unglingsárum er hann dvaldi á sumrum heima á Höfða í Dýrafirði, þar sem við brölluð- um margt, við leik og sveita- störf. Þar byrjaði okkar veiðifer- ill með veiðum á hornsílum í skurðum. Þau voru söltuð í dós eins og annar fiskur. Síðan reyndum við fyrir okkur í Hjarðardalsánni og renndum fyrir silung. Gísli starfaði við sjósókn og reri með Skarphéðni Njálssyni frænda sínum ef ég man rétt og Agli Halldórssyni og sótti með honum bát sem Eg- ill lét smíða á Seyðisfirði. Við vorum samskipa á Þorgrími ÍS 66 eina vertíð. Síðan lágu leiðir okkar til Reykjavíkur þar sem hann hóf störf hjá Bygginga- vöruverslun Ísleifs Jónssonar í Bolholti 4 og starfaði hann þar til dauðadags. Eftir að suður var komið fórum við að renna fyrir lax. Gísli lærði að kasta flugu í Laugardalshöllinni hjá Kast- klúbbi Reykjavíkur. Það atvik- aðist svo að hann hélt áfram í flugukastinu og nú sem kennari og síðast nú í vetur. Við nafn- arnir fórum í margar veiðiferðir saman og einnig með öðrum samkennurum úr KKR. Við systkinin frá Höfða þökkum fyr- ir ógleymanleg kynni. Við vott- um systkinum hans dýpstu sam- úð og þökkum Ninnu og Hans þeirra miklu og góðu umönnun. Gísli Rúnar Guðmundsson. Gísli Jón Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.