Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Gisting Hótel Sandafell, Þingeyri auglýsir Gisting og matur. Erum með 2ja herb. orlofsíbúð til leigu. Verið velkomin. Hótel Sandafell Sími 456 1600. Húsnæði íboði 4 herbergja íbúð til leigu 105 fm í Borgum, Grafarvogi, með sérinngangi og garði. S. 899 9339. iceland61@gmail.com Sumarhús Eignalóðir í Vaðnesi Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með aðgang að heitu og köldu vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í landi Vaðness í Grímsnes- og Grafnings- hreppi ca. 45 km frá Rvk. Allar nánari upplýsingar í síma 896 1864. Glæsilegar sumarhúsalóðir! Til sölu eignarlóðir á kjarri vöxnu hrauni við Ytri-Rangá í landi Leiru- bakka. Stórkostlegt útsýni. Aðeins 100 km frá Reykjavík. Upplýsingar á www.fjallaland.is og í síma 8935041. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Til sölu Plastgeymslu-útihús 4,5 fm Auðveld í uppsetningu og viðhaldsfrí. Verð 180 þús. Uppl. í síma 893 3503 eða 845 8588. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897 9809. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. NICOLAI BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455 Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Raflagnir, smíðar, uppsláttur Tökum að okkur raflagnir, smíðar og uppslátt. Tilboð eða tímavinna. 30 ára reynsla tryggir gæði. Sími: 848-6904.         Laga veggjakrot, hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Eignarlóðir í Grímsnesi Til sölu fallegar sumarhúsalóðir við Kiðjabergsveg. Frá 0,7 ha – 1,6 ha. Heitt og kalt vatn að lóðarmörkum. Upplýsingar í síma 867 3569. Toyota Hilux X Cap ekinn 137 þús. km. Breyttur fyrir 38” Loftdæla, skr. fyrir 4. Nánast ryðlaus. Vel með farinn bíll. Verð 880 þús. Upplýsingar í síma 898 8577. Bílar Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Sigurður Egg-ert Davíðsson fæddist á Akureyri 12. júlí 1946. Hann lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 15. maí 2014. Foreldrar hans voru Ragna Gests- dóttir, f. 1928, d. 2005, og Davíð Sig- urður Kristjánsson, f. 1922, d. 1998. Systkini Sigurðar eru: Hólm- fríður, f. 1950, Kristján, f. 1951, Lísbet, f. 1956, og Gestur Ragn- ar, f. 1964. Fyrri kona Sigurðar var Norma Serena Mooney, f. 1949, d. 2002. Sigurður giftist árið 1983 Ólöfu Regínu Torfadóttur Thoroddsen tannlækni, f. 1950. Börn þeirra eru Hólmfríður Helga, f. 1985, og Guðbrandur Torfi, f. 1989. Maður Hólmfríðar Helgu er Ragnar Jón Ragn- arsson, f. 1986, börn þeirra: Snæfríður Edda, f. 2008, og Höskuldur Sölvi, f. 2011. Sigurður varð stúdent frá Mennta- skólanum á Ak- ureyri 1967, lauk BA-prófi í latínu og sögu frá Háskóla Íslands 1972 og cand. mag.-prófi í sagnfræði 1978 frá sama skóla. Hann nam sagnfræði við Edinborgarháskóla 1968 og einnig í Denver, Colorado, Bandaríkjunum,veturinn 1973 til 1974. Hóf doktorsnám við sagnfræðideild Stokkhólmshá- skóla veturinn 1984 til 1985. Að- alstarf Sigurðar var kennsla. Fyrst við Ármúlaskólann í Reykjavík og frá 1978 við Gagn- fræðaskóla Akureyrar, síðar Brekkuskóla, til dauðadags. Kveðjustund var í kyrrþey við Höfðakapellu 23. maí 2014 og jarðsett í Akureyrarkirkju- garði. Vinur okkar er fallinn frá eft- ir stutt en erfið veikindi. Okkur langar að minnast hans með nokkrum orðum. Það var fyrir tæpum 20 árum sem við kynnt- umst Sigurði Eggerti Davíðs- syni þegar ég fór að kenna við Gagnfræðaskóla Akureyrar, þá nýútskrifaður kennari. Siggi Davíðs eins og hann var alltaf kallaður var áberandi og jafnvel ógnvekjandi í fyrstu en þegar ég kynntist honum betur komu í ljós einstakir mannkostir og traustur félagi. Siggi Davíðs var ötull stuðningsmaður okkar og reyndist sannur vinur í raun. Fljótlega kynntust við hjónin hans góðu fjölskyldu og hefur sú vinátta haldist með óteljandi símtölum, árlegu vorgrilli og fleiru. Sigurður var fróður um allt mögulegt og las mikið. Mynd af honum að lesa með bóka- og blaðastaflana í kring- um sig mun alltaf lifa í huga okkar. Það var hægt að ræða allt við Sigga Davíðs, bæði um menn og málefni. Allar samræð- ur einkenndust af miklu skop- skyni. Ekki þurfti aðra skemmtun ef Siggi Davíðs mætti á svæðið, þar sem orð- snilld hans og þekking kom fram í öllum samræðum. Við kveðjum góðan vin með söknuði og sendum Regínu, Helgu og fjölskyldu og Guð- brandi Torfa okkar innilegustu samúðarkveðjur. María Aðalsteinsdóttir og Leifur Þormóðsson. Sigurður Eggert Davíðsson Elsku pabbi, þá er víst komið að kveðjustund. Minningarnar eru margar og maður veit eigin- lega ekki hvar á að byrja. Það sem kemur þó fyrst í hugann er hvað strákarnir mínir eiga eftir að sakna afa síns mikið. Allar skemmtilegu stundirnar sem þið áttuð saman. Það var aldrei neitt mál að fá þig til að keyra upp á Egilsstaði til að passa. Bara eitt símtal og þú varst rokinn af stað. Ef eitthvað var fannst þér við sjálfsagt ekki nógu dugleg að hringja í þig og fá þig til að passa. Það sem strákarnir dýrkuðu þig. Tómas og Atli spurðu eftir síðasta skipti sem þeir gistu hjá ykkur mömmu hvort þeir mættu ekki gista tuttugu daga næst. Þeim fannst tveir dagar greinilega ekki nóg til að komast yfir allt sem þurfti að gera með ykkur. Nú síð- ast þegar þeir heyrðu að þú værir að stinga upp kartöflugarðinn urðu þeir mjög spenntir. Ætluðu nú aldeilis að hjálpa þér við verk- ið. Þú gerðir þér ferð í Bónus í vik- unni til að kíkja á Sigurjón nafna þinn í sinni fyrstu vinnu á kass- anum í Bónus. Jafnvel þótt þig vantaði ekkert tíndirðu eitthvað í körfuna bara til að fá afgreiðslu hjá honum. Mér er minnisstætt þegar þið nafnar tjölduðuð tjaldi inni í herberginu hans á þriggja ára afmælisdaginn hans og gistuð þar. Tjaldið var svo lítið að fæt- urnir á þér stóðu lengst út á gólf en þér var alveg sama. Bara að þið nafnarnir gætuð verið saman. Þú varst alltaf svo duglegur að hringja og vera í sambandi hvort sem það var þegar ég var í MA eða í háskólanum og gafst þér allt- af tíma fyrir mann. Einu skiptin Sigurjón Björn Valdimarsson ✝ Sigurjón BjörnValdimarsson fæddist í Neskaup- stað 29. október 1938. Hann lést mánudaginn 26. maí 2014 í Nes- kaupstað. Útför Sigurjóns fór fram frá Norð- fjarðarkirkju 2. júní 2014. sem þú máttir ekki vera að því var ef maður hringdi í miðju kasti hjá þér. En þá hringdirðu alltaf um leið og um hægðist. Þær voru skemmtilegar stundirnar hjá okk- ur þegar ég var í MA og þú lagðist að bryggju á Akureyri. Þá kom ég með allt skóladótið til þín og lærði um borð í Beiti og jafnvel gisti ef stoppað var yfir nótt. Við áttum endalaus símtöl þar sem við ræddum um fótbolta. Ég man eftir með bros á vör tímabili þar sem þú gerðir þér upp að þú værir Liverpool-aðdáandi til þess eins að æsa mig Man. Utd-mann- inn upp. Það verður skrítið að fá ekki frá þér símtal á hverjum degi þar sem þú vildir fá að vita hvernig dag- urinn var hjá okkur og strákun- um. Hvíldu í friði elsku pabbi minn og takk fyrir allar samverustund- irnar. Þín verður sárt saknað. Berg Valdima. Elsku Díi minn, ég trúi ekki að þú sért í raun dáinn. Þú sem varst svo heilbrigður að öllu leyti. Stundaðir göngur, golf og sund daglega. Heilsan var þér ofarlega í huga og þar áttum við sko sam- eiginlegt áhugamál, leiðina að auknu heilbrigði. Ég var hjúkkan þín og ég naut þess. Þú varst orð- inn sérfræðingur í hollu mat- aræði, skoðaðir innihaldslýsingar vandlega og sniðgekkst viðbættan sykur. Við áttum gott símtal nán- ast daglega þar sem rætt var um heilsuna eða bara hvað strákarnir okkar Valdimars voru að brasa þann daginn. Þú hlóst mikið að uppátækjum þeirra og hafðir gaman af. Þú gerðir þér ferð til Sigurjóns Svavars okkar fyrsta vinnudaginn hans í Bónus fyrir rúmri viku þegar þú skutlaðir Unni í flug, bara til að láta hann afgreiða þig og auðvitað til að kíkja á hann. Það sem þú keyptir voru einungis nokkrar tegundir af ávöxtum og grænmeti og Sigur- jón vissi ekki hvað grænmetið eða ávextirnir hétu né hvað þeir kost- uðu og þú brostir og hafðir gaman af. Þarna var hlýjan frá afa að störfum. Þegar Tómas Andri og Atli Páll fengu gsm-síma fyrir um tveimur mánuðum var afi Díi dug- legastur að hringja og taka spjall við þá. Þetta eru allt saman ómet- anlegar minningar nú í dag. Já, þú gerðir allt rétt varðandi heilsu og heilbrigði og þess vegna er svo ósanngjarnt að þú hafir verið tek- inn í burtu frá okkur svo skyndi- lega. Ég man þegar ég átti mínar fyrstu samræður við þig þegar við Valdimar tókum saman fyrir 18 árum síðan og þá áttaði ég mig á því að ég þyrfti að læra smá-veð- urfræði. Valdimar tók mig í kennslu í því. Þér var líka umhug- að að maður færi varlega í vetr- arfærð og ég hef lært að lesa í færð og spána og fara varlega eft- ir að hafa kynnst þér. Það kom sér vel í framhaldsnáminu mínu í vet- ur á Akureyri en veturinn var óvenju snjóþungur en alltaf var ég með þig í símanum með nýjustu upplýsingar um veður og færð. Þú varst alltaf með svo góða nær- veru, yfirvegaður og alltaf til stað- ar og ef okkur vantaði pössun þá stökkstu upp í bílinn og komst um leið. Strákarnir okkar voru svo háðir þér og hafragrauturinn með bananabitum sem Tómas minn fékk alltaf hjá þér er ofarlega í huga hjá honum, ásamt lýsis- skammti auðvitað. Já, Tómas Andri pantaði alltaf afaból og vissi að hann átti alltaf fast pláss þar, já, hvenær sem er. Hann fylgdi þér hvert fótmál og afi eldaði besta graut í heimi. Stákarnir höfðu gaman af því að elta þig hvert fótmál, í gönguferðir í fjall- ið, fjöruferð og Tómas fylgdi þér líka í sundið. Takk fyrir að vera svona yndislegur og hlýr maður í alla staði. Þín er sárt saknað af okkur öllum. Hvíl í friði, elsku Díi minn. Berglind Harpa. Sigurjón Valdimarsson var án efa einn af öflugustu skipstjórum íslenska fiskveiðiflotans. Ég kynntist honum fyrst þegar ég kom til starfa hjá Síldarvinnslunni á Norðfirði árið 1986 og næstu 13 árin var Sigurjón einn af mínum nánustu samstarfsmönnum. Hann fór ótrúlega vel með skip og veiðarfæri og fyrir sína útgerð var hann draumaskipstjóri. Sigurjón var gríðarleg aflakló en um leið hélt hann kostnaði í olíu, veiðar- færum og öðru í lágmarki. Og það var alveg sama hvaða veiðar voru stundaðar; alls staðar var Sigur- jón jafnvígur. Á þessum árum skiptust á skin og skúrir í útgerð- inni og oft þurfti að taka nýja stefnu. Mikilvægasta viðfangsefn- ið var að ná hámarksverðmætum út úr þeim aflaheimildum sem Síldarvinnslan hafði til ráðstöfun- ar hverju sinni. Þegar loðnan hvarf eða minnkaði var Beiti, sem Sigurjón stýrði, gjarnan stefnt á önnur mið. Beitir var í raun fjöl- veiðiskip. Sigurjón var alltaf já- kvæður þegar farið var í slíkar breytingar. Sama hvort það voru bolfiskveiðar, rækjuveiðar, veiðar og heilfrysting á gulkarfa, kol- munnaveiðar eða síldveiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Það má tvímælalaust telja Sigur- jón frumkvöðul í að koma á var- anlegri hlutdeild Íslands í nýtingu kolmunnastofnsins því Beitir var fyrstur til að hefja kolmunnaveið- ar að nýju við Íslandsstrendur. Þessar tilraunir og breytingar á útgerðarháttum hefðu aldrei tek- ist jafn vel og raun bar vitni ef ekki hefði komið til jákvæðni Sig- urjóns í garð slíkra breytinga og það hvernig hann tók á þeim verk- efnum og vandamálum sem upp komu hverju sinni. Í mínum huga á Sigurjón stóran þátt í því hvern- ig til tókst að snúa Síldarvinnsl- unni frá því að vera fyrirtæki í mjög miklum fjárhagslegum erf- iðleikum í það að vera eitt öflug- asta útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtæki landsins. Það er út af fyrir sig rannsóknarefni hvað Norð- fjörður hefur alið af sér marga öfl- uga skipstjóra og vélstjóra bæði fyrr og síðar, einstaklinga sem hafa með sínu starfi skipt sköpum í þróun síns byggðarlags. Í sum- um ættum virðist skipstjóragenið vera ótrúlega sterkt og dæmi um það eru Sigurjón og bræður hans þrír sem allir eru í hópi toppskip- stjóra landsins. Ég þakka Sigur- jóni samfylgdina á þessum við- burðaríka og eftirminnilega tíma sem ég starfaði með honum í Nes- kaupstað. Kæra Unnur. Ég votta þér og fjölskyldunni mína innileg- ustu samúð við fráfall þessa góða manns. Finnbogi Jónsson, fv. for- stjóri Síldarvinnslunnar. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.