Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 34

Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110 HarðskeljadekkTIRES Mundueftir að finnaBESTAVERÐIÐáður en þú kaupirdekk! Vilhjálmur Einarsson, silfurverðlaunahafi í þrístökki á Ólymp-íuleikunum í Melbourne árið 1956, fagnar í dag áttatíu áraafmæli sínu. Aðspurður segir hann fjölskylduna ætla að koma saman í húsnæði gamla Héraðsskólans á Laugarvatni þar sem hann hóf feril sinn sem skólamaður. „Þar ætlum við að fá okkur kvöldverð en á laugardag verður svo hálfgert ættarmót á íþrótta- vellinum. Munu þar allir afkomendurnir spreyta sig í skemmtilegum þrautum sem líkjast frjálsum íþróttum,“ segir Vilhjálmur. Spurður hvort hann verði settur í hlutverk dómarans kveður hann já við. „Það er eina sætið sem ég get setið í og svo virðist sem veðurguð- irnir verði mér hliðhollir í ár því það er spáð hitabylgju.“ Afrek Vilhjálms á Ólympíuleikunum 1956 hefur verið lýst sem óvæntasta afreki leikanna en þá tók hann stökk upp á 16,26 metra í annarri atrennu og setti þar með Ólympíumet, „sem stóð í einn og hálfan klukkutíma,“ segir Vilhjálmur en í sinni síðustu tilraun náði Brasilíumaðurinn Da Silva eilítið lengra stökki. Voru silfurverð- launin fyrstu verðlaun íslensks íþróttamanns á Ólympíuleikum. Að- spurður segist hann einnig vera mjög stoltur af öðru meti og var það sett á Laugardalsvelli 1960 þegar Vilhjálmur jafnaði gildandi heimsmet í þrístökki. „Það stendur sem Íslandsmet og einhver bið virðist vera á því að það verði slegið.“ khj@mbl.is Vilhjálmur Einarsson er 80 ára í dag Ljósmynd/Bryndís Hjón Vilhjálmur Einarsson silfurverðlaunahafi og eiginkona hans Gerður Unndórsdóttir verða í faðmi fjölskyldunnar á afmælinu. Tekur nú að sér dómarahlutverkið Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Fellabær Magnús Heimir og Ragna Sigurlaug fæddust 29. ágúst. Magnús Heim- ir fæddist kl. 8.53. Hann vó 3.516 g og var 52 cm langur. Ragna Sigurlaug fæddist kl. 8.54. Hún vó 2.988 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar þeirra eru Áslaug Magn- úsdóttir og Rögnvaldur Stefán Helgason. Nýir borgarar E rna Marsibil Svein- bjarnardóttir fæddist á Torfastöðum í Fljótshlíð 5.6. 1944. Fjölskyldan eignaðist tveimur árum síðar heimili í Höfða sem var nýbýli í landi Torfastaða. „Ég gekk í barnaskólann í Fljóts- hlíðinni, landsprófi lauk ég síðan í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Foreldrum mínum þótti sjálfsagt að ég gengi menntaveginn. Leið mín lá í Kennaraskólann, það þótti ágæt menntun fyrir stúlkur auk þess sem afi minn og móðurbróðir voru kenn- arar. Þaðan lauk ég kennaraprófi 1967 eftir fjögur góð ár. Vinskapur okkar bekkjarsystra úr Kennó stendur enn og öll árin síðan hafa þær sem geta hist einu sinni í mán- uði yfir vetrartímann.“ Bjó lengi á Patreksfirði „Við fjölskyldan fluttumst til Pat- reksfjarðar 1973 þegar bóndanum bauðst þar starf sem mjólkur- samlagsstjóri. Þar hafði hann fæðst og alist upp og langaði alltaf að flytja þangað aftur. Þar áttum við afar góð tuttugu og tvö ár, þá var mjólkur- samlagið lagt niður og varð hann að leita annarra starfa. Ég hafði allan tímann kennt við grunnskólann, varð skólastjóri þar 1990 en við ákváðum engu að síður að flytja suður um miðjan tíunda áratuginn enda börnin okkar komin þangað í nám. Ég hafði alltaf annað slagið skellt Erna M. Sveinbjarnardóttir, sérkennari og fv. skólastjóri – 70 ára Á Jótlandi Erna og Jón Sverrir á lítilli skektu á leið út á Rinkøbing Fjord í ferð með góðum vini í maí 2012. Unir sér vel í Garðinum Stórfjölskyldan Börnin þrjú, foreldrar Ernu, tengdaforeldrar, bróðir tengdamóður og hans kona auk systursonar við Látrabjarg árið 1978. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.