Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 35

Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 35
mér í nám, byrjaði á því fara einn vetur í Menntaskólann við Hamra- hlíð og lauk þar stúdentsprófi á ein- um vetri. Tveimur árum seinna fékk ég inni í Danmarks Lærerhøjskole í Óðinsvéum og lauk þaðan sérkenn- aranámi. Ég fór í meistaranám í Kennaraháskóla Íslands og lauk M.Ed-gráðu í uppeldis- og kennslu- fræðum með áherslu á stjórnun árið 2001. Þá var ég skólastjóri við Lang- holtsskóla í Reykjavík en ákvað að söðla um og fékk verkefni í mennta- málaráðuneytinu. Þann tíma saknaði ég þess mjög að vera ekki í hring- iðunni í grunnskólanum svo ég sótti um fyrsta skólann sem auglýsti lausa stöðu skólastjóra. Það var Gerða- skóli í Garði og tók ég við honum um áramót 2001-2002 og erum við búin að búa þar í rúm tólf ár. Það er gott að búa í Garðinum og er fjallasýnin, sólaruppkoma og sólarlag engu líkt.“ Lengi verið í Norræna félaginu „Segja má að ég hafi verið frekar félagslega sinnuð alla tíð. Ég hef ver- ið í ýmsum félögum en Norræna fé- lagið er það félag sem hefur fylgt mér einna lengst. Ég sat í stjórn og varð formaður deildarinnar á Pat- reksfirði, á árunum í Reykjavík sat ég í stjórn Reykjavíkurdeildarinnar. Nú er ég formaður Norræna félags- ins í Garði en fram undan er stórt verkefni sem eru Norrænir dagar í Garði. Von er á um sjötíu gestum frá norrænum vinabæjum Garðs. Það eru því næg verkefni framundan hjá mér. Einnig er ég í stjórn Hollvina- félags Unu Guðmundsdóttur í Sjó- lyst. Okkur hjónunum finnst afar ánægjulegt að ferðast utan- og inn- anlands. Við eigum gamlan húsbíl sem við höfum flakkað á um allt. Eins hafa ófáar ferðir verið farnar í sumarbústað fjölskyldunnar í Fljóts- hlíðinni, þar er alltaf hægt að taka til hendinni. Ég hef gaman af lestri góðra bóka en kannski er mikilvæg- asta áhugamál mitt velferð fjölskyld- unnar. Ég er svo heppin að börn og barnabörn búa öll hér nálægt.“ Fjölskylda Eiginmaður Ernu er Jón Sverrir Garðarsson, f. 24.9. 1945, mjólkur- fræðingur og fv. mjólkursamlags- stjóri. Foreldrar hans voru Garðar Jóhannsson, f. 25.7. 1917, d. 17.7. 2010, verkstjóri á Patreksfirði og í Reykjavík, og k.h. Sigrún Jóns- dóttir, f. 8.9. 1918, d. 24.4. 1988, hús- freyja. Börn Ernu og Jóns Sverris: Svein- björn Jónsson, f. 28.8. 1965, flug- öryggisvörður hjá Isavia, býr í Garð- inum. Maki: Markosa Medico, f. 25.4. 1970, starfar í Nesfiski. Þau eiga þrjú börn; Sigrún Eugenio Jóns- dóttir, f. 21.9. 1970, framhaldsskóla- kennari og sérfræðingur hjá Eim- skip, býr í Reykjanesbæ. Maki: Vitor Hugo Eugenio, f. 16.12. 1975, grunn- skólakennari og nemi í fiskeld- isfræðum. Þau eiga einn son; Ásta Björg Jónsdóttir, f. 14.8. 1971, sjúkraliði og vaktstjóri PRM- þjónustu Securitas í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, býr í Reykjanesbæ. Maki: Jóhann Ólafur Steingrímsson, f. 29.11. 1963, starfar á Fiskmarkaði Suðurnesja. Þau eiga fimm börn. Systkini Ernu: Sigurlín Svein- bjarnardóttir, f. 3.7. 1947, skólastjóri Hvolsskóla, býr á Hlíðarbakka í Fljótshlíð; Árni, f. 30.8. 1950, d. 4.3. 1951; Óskar Örn, f. 3.12. 1953, d. 12.7. 1954; Margrét Þóra, f. 22.11. 1959, d. 11.7. 1960. Foreldrar Ernu: Sveinbjörn Sigurjónsson, f. 19.3. 1920, d. 16.7. 2011, bjó í Höfða í Fljótshlíð til 1962 en flutti þá til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Hann var bóndi en starf- aði alltaf sem bifreiðastjóri, og Ásta Ingibjörg Árnadóttir, f. 23.1. 1923, d. 6.12. 2013, húsfreyja en vann í ára- tugi við matreiðslu og fleira. Úr frændgarði Ernu Marsibil Sveinbjarnardóttur Erna Marsibil Sveinbjarnardóttir Jón Egilsson bóndi á Torfastöðum Sigurbjörg Sveinsdóttir húsfreyja á Torfastöðum Sigurjón Jónsson bóndi á Torfastöðum í Fljótshlíð Ólína Sigurðardóttir húsfreyja á Torfastöðum í Fljótshlíð Sveinbjörn Sigurjónsson bóndi og bifreiðastj. í Höfða og Reykjavík Óskar Sigurjónsson sérleyfishafi Sigurjón Sigurjónsson bifvélavirki á Hvolsvelli Halldór Óskarsson kennari á Hvolsvelli Ólafur Hreinn Sigurjónsson skólameistari Framhaldsskóla Vestmannaeyja Sigurður Sigurðsson bóndi frá Merkinesi í Höfnum Guðbjörg Jóhannesdóttir Norman húsfreyja í St. Louis í Bandaríkjunum Árni Árnason bóndi á Kaldbak á Rangárvöllum Ástríður Magnúsdóttir húsfreyja á Kaldbak. Móðurafi hennar var Bjarni Thorarensen skáld og amtmaður Árni Árnason kennari og bóndi í Ölversholtshjáleigu Marsibil Jóhannsdóttir húsfreyja í Ölversholtshjáleigu í Holtum Ásta Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja í Höfða í Fljótshlíð og Reykjavík Ólafur Örn Árnason kennari á Eyrarbakka og gjaldkeri hjá SS Árdís Ólafsdóttir ljósmóðir og lektor við HÍ Jóhanna Sigrún Árnadóttir saumakona á Selfossi Kristinn Marinó Bárðarson kennari á Selfossi Jóhann Ólafsson bóndi og sjómaður í Sandgerði Sigrún Þórðardóttir húsfreyja í Sandgerði ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Guðmundur Ingólfsson píanó-leikari fæddist 5.6. 1939 íReykjavík. Foreldrar hans voru Ingólfur Sveinsson, f. 26.6. 1909, d. 3. maí 1962, bifreiðastjóri í Reykjavík, og k.h. Oddfríður Sæ- mundsdóttir, f. 13.6. 1902, d. 17.3. 2000, verslunarmaður. Ingólfur var sonur Sveins, verkamanns í Reykja- vík, Jónssonar, b. á Sámsstöðum í Fljótshlíð, Magnússonar. Móðir Jóns var Sigríður Guðmundsdóttir í Skarfanesi sem var talin dóttir Bjarna Thorarensen skálds og amt- manns. Oddfríður var dóttir Sæ- mundar hreppstjóra á Elliða í Stað- arsveit, Sigurðssonar. Guðmundur hóf píanónám sex ára gamall hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni og var í Tónlistarskólanum í Reykja- vík. Hann byrjaði tólf ára að leika á dansæfingum og var í framhalds- námi hjá Axel Arnfjörð, píanóleikara í Kaupmannahöfn. Guðmundur var atvinnutónlistarmaður frá 1955 til dánardags. Hann lék um tíma í Ósló 1962, m.a. með Dexter Gordon, og bjó í Noregi 1974-1977 og lék þar í dansrokk- og djasssveitum, m.a. með Percy Heath og Buddy Rich. Guðmundur stóð fyrir mikilli djassvakningu í Reykjavík þegar hann kom heim og lék að staðaldri djass með félögum sínum, m.a. í Stúdentakjallaranum. Hann var með eigið tríó og þar léku með honum lengstum Guðmundur Stein- grímsson og Þórður Högnason. Guð- mundur gaf út plötuna Nafnakall 1982 og Þjóðlegan fróðleik 1988. Hann lék einnig með bandaríska bassaleikaranum Bob Magnusson á plötunni Jazzvöku. Síðasta plata Guðmundar, Gling-Gló, þar sem Björk Guðmundsdóttir söng, varð fyrsta gullplatan með íslenskri djasstónlist. Eftir dauða hans var gefinn út tvöfaldur minningar- diskur: Guðmundur Ingólfsson, með áður óútgefnu efni. Fyrri kona Guðmundar var Helga Sigþórsdóttir, f. 22.1. 1943, við- skiptafræðingur. Þau skildu. Þau eignuðust einn son. Seinni kona Guðmundar var Birna Þórðardóttir, f. 26.2. 1949, stjórnmálafræðingur. Þau skildu. Þau eignuðust tvö börn. Guðmundur lést 12.8. 1991. Merkir Íslendingar Guðmundur Ingólfsson 90 ára Guðmundur Kristjánsson Herdís E. Jónsdóttir 85 ára Hulda Jakobsdóttir Jón Halldór Jónsson Marta María Jónasdóttir Þórir Haukur Einarsson 80 ára Anna Jóna Magnúsdóttir Ásta Björnsdóttir Hilde Helgason Hörður K. Jónsson Vilhjálmur Einarsson 75 ára Einar Sigurgeirsson Hákon Árnason Ingibjörg Stefánsdóttir Jónína Þórey Jónasdóttir Ragnheiður Björg Jónsdóttir Ragnheiður Björg Sigurðardóttir Sigurður A. Finnbogason Snævar Vagnsson Sævar Sigtýsson Þóra Elfa Björnsson 70 ára Elín Jónsdóttir Kolbrún Guðjónsdóttir Ólöf Margrét Ólafsdóttir Svanfríður Jóhanna Stefánsdóttir Þórarinn Sigvaldi Magnússon 60 ára Brynhildur D. Bjarkadóttir Guðmundur A. Júlíusson Guðsteinn Einarsson Gunnlaugur Eiðsson Jolanta Högnason Margrét Jóhannsdóttir Rudolf B. Jósefsson Sigrún Hjartardóttir Sigtryggur Gíslason 50 ára Aðalheiður Signý Óladóttir Amid Derayat Bergur Þór Rögnvaldsson Birgir Ari Hilmarsson Borghildur J. Svavarsdóttir Brynja Pétursdóttir Díana Sigurðardóttir Eduardo Duarte Villarente Elín Kristmundsdóttir Friðmey Helga Sveinsdóttir Guðlaug Þóra Tómasdóttir Haraldur Ásgeirsson Hjördís María Jóhannsdóttir Janusz Ryszard Migas Jóhann Berg Þorbergsson Júlíana Þorvaldsdóttir Maria G. Costuras María Kolbrún Valsdóttir Marteinn Þ. Hjaltested Reynir Ríkarðsson 40 ára Anetta Luiza Mitlas Atli Garðarsson Ásta Magnúsdóttir Dagbjört Jónasdóttir Einar Harðarson Karl Ingi Torfason Robert Maciej Wielgus 30 ára Birgir Jóhannsson Björn Hákon Sveinsson Díana M. Halldórsdóttir Elísabet Ósk Magnúsdóttir Elmar Geir Unnsteinsson Haukur Sigurðsson Sara Lind Dagbjartsdóttir Sigurjón Skúlason Stefán Ragnar Garðarsson Til hamingju með daginn 40 ára Ómar er Reykvík- ingur og flugmaður hjá Icelandair. Maki: Eva Jónasdóttir, f. 1974, fæðingar- og kven- sjúkdómalæknir á Land- spítalanum. Börn: Daði, f. 1999, Silja, f. 2004, og Emma, f. 2008. Foreldrar: Guðni Sig- urðsson, f. 1948, raf- eindavirki, og Helen Knútsdóttir, f. 1950, hár- greiðslumeistari. Ómar Guðnason 30 ára Sóley er frá Flat- eyri, býr í Hafnarfirði, er BA í sagnfræði og er í fæðingarorlofi. Maki: Stefán Reynisson, f. 1979, rekstrarstjóri hjá Teledyne Gavia. Börn: Margrét Nótt, f. 2005, Vilborg Saga, f. 2009, og Elísa Dögun, f. 2014. Foreldrar: Eiríkur Guð- mundsson, f. 1950, húsa- smiður, og Ragna Óla- dóttir, f. 1956, kennari. Sóley Eiríksdóttir 40 ára Óttar er Reykvík- ingur, býr í Garðabæ, er kvikmyndatökumaður og vinnur mest erlendis við auglýsingar og bíómyndir. Maki: Klara Thorarensen, f. 1974, verslunarstjóri í Heimahúsinu. Börn: Dagur, f. 1998, Hel- en Málfríður, f. 2002, og Kristján Skagfjörð, f. 2012. Foreldrar: Guðni Sig- urðsson og Helen Knúts- dóttir, bús. í Reykjavík. Óttar Guðnason Veiðileyfi á frábæru verði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.