Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við lögðum upp með að þetta yrði árlegt og viðtökurnar hafa verið þannig að það er ljóst að þetta er komið til að vera. Þetta er nýtt afl inn í tónlistarlífið hérlendis,“ segir Kristín Mjöll Jakobsdóttir, fram- kvæmdastjóri Alþjóðlegu tónlistar- akademíunnar í Hörpu eða Harpa International Music Academy, sem haldin verður í annað sinn dagana 7.-17. júní. Um er að ræða alþjóðlegt sumar- námskeið þar sem kennt verður á fiðlu, víólu, selló og píanó. „Við ákváðum að bæta píanóinu við vegna mikillar eftirspurnar, en það veitti okkur kjörið tækifæri til að leggja meiri áherslu á kamm- ertónlist í ár. Þess utan verður lögð áhersla á einkatíma, masterklassa og hljómsveitarleik,“ segir Kristín Mjöll og tekur fram að vonandi fjölgi hljóðfærum á næstu árum. „En við verðum væntanlega ekki alltaf með sömu hljóðfærasamsetn- inguna milli ára.“ Frábærar viðtökur „Viðtökurnar hjá krökkunum í fyrra voru frábærar og þetta heppn- aðist mjög vel,“ segir Kristín Mjöll og tekur fram að þónokkur hópur nemenda sem sóttu námskeiðið í fyrra komi aftur í ár. „Þarna gefst þeim frábært tækifæri til að nema undir leiðsögn kennara á heims- mælikvarða. Einnig gefst þeim tækifæri til að bera sig saman við erlenda nemendur og leita innblást- urs hjá ungum erlendum einleik- urum.“ Að sögn Kristínar Mjallar taka þátt í sumarnámskeiðinu um fjöru- tíu íslenskir nemendur og rúmlega tíu erlendir nemar frá m.a. Finn- landi, Hollandi, Noregi og Víetnam. „Yngsti nemandinn er 15 og sá elsti 23,“ segir Kristín Mjöll og tekur fram að sú nýbreytni hafi verið tek- in upp í ár að bjóða upp á námskeið í kammertónlist fyrir fullorðna. „Á námskeiðinu í sumar munu leiðbeina reyndir og alþjóðlega við- urkenndir kennarar,“ segir Kristín Mjöll og nefnir í því samhengi fiðlu- leikarann Hu Kun frá Royal Aca- demy of Music í London, fiðluleik- arann Stephan Barratt-Due sem er listrænn stjórnandi Barratt-Due Institute of Music í Osló og selló- leikarann Mark Ylönen frá Sibelius- ar-akademíunni í Helsinki. Íslensku kennararnir eru píanóleikarinn Pet- er, sellóleikararnir Sigurgeir Agn- arsson og Sigurður Halldórsson sem og víóluleikararnir Guðmundur Kristmundsson og Þórunn Ósk Mar- inósdóttir. Loks eru það fiðluleik- ararnir Ari Þór Vilhjálmsson, Guðný Guðmundsdóttir og Lin Wei Sigurgeirsson, sem jafnframt er list- rænn stjórnandi Alþjóðlegu tónlist- arakademíunnar í Hörpu. „Lin Wei hefur búið á Íslandi og starfað með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands síðan 1988. Hún veitir for- stöðu minningarstofnun um föður sinn, Lin Yao Ji Music Foundation of China,“ segir Kristín Mjöll og tekur fram að samstarfið við annars vegar þá stofnun og hins vegar Hörpu geri skipuleggjendum kleift að laða að mikinn fjölda alþjóðlegra gesta, leiðbeinenda á heimsmæli- kvarða og vinningshafa alþjóðlegra tónlistarkeppna á borð við Menuhin- fiðlukeppnina. Menuhin-verðlaunahafi Alþjóðlega tónlistarakademían hefst með sérstökum opnunartón- leikum mánudaginn 9. júní kl. 17.00 í Norðurljósum Hörpu. „Þar leikur hinn kóreski In Mo Yang, sem er að- eins 18 ára gamall. Hann vann önn- ur verðlaun í eldri deild Menuhin- fiðlukeppninnar sem haldin var í Texas í mars sl., en keppnin nýtur mikillar virðingar í tónlistarheim- inum,“ segir Kristín Mjöll og rifjar upp að In Mo Yang hafi hafið ein- leiksferil sinn aðeins ellefu ára gam- all. „Hann fékk inngöngu í tónlist- arháskóla aðeins tólf ára og leggur nú stund á nám við New England Conservatory of Music í Boston.“ Á opnunartónleikunum í Hörpu mun In Mo Yang leika þekkt ein- leiksverk fyrir fiðlu, m.a. sónötu eft- ir Schubert og „Paganiniana“ eftir Milstein, en meðleikari hans verður Richard Simm. Öðrum hvatning til dáða „Þrír framúrskarandi ungir ein- leikarar frá Noregi munu einnig stíga á svið á opnunartónleikunum og leika ýmis einleiks- og kamm- erverk á fyrri hluta tónleikanna. Þetta eru víóluleikarinn Eivind Holtsmark Ringstad, sigurvegari Eurovision Young Musician 2012, fiðluleikarinn Sonoko Miriam Shim- ano Welde, sem keppir í sömu keppni fyrir hönd Noregs um þessar mundir og er jafnframt handhafi Norsku einleikaraverðlaunanna 2014, og sellóleikarinn Sandra Lied Haga, verðlaunahafi Emcy Art for Music Prize 2010,“ segir Kristín Mjöll og tekur fram að ungu einleik- ararnir séu allir komnir hingað til lands til að taka þátt í sumarnám- skeiðinu. „Á námskeiðinu munu þau miðla af reynslu sinni og vera öðrum þátttakendum hvatning til dáða.“ Þau Ringstad, Welde og Haga „Þetta er kom- ið til að vera“  Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu haldin í annað sinn 7.-17. júní „Sýninguna kalla ég Í Upphæðum – partur tvö,“ segir Pétur Thomsen ljósmyndari um sýningu á nýjum verkum sínum sem hann opnar í Listamönnum Galleríi á Skúlagötu 32 klukkan 17 í dag, fimmtudag. Pétur er einn okkar kunnasti samtímalistamaður sem vinnur með ljósmyndamiðilinn og hefur átt verk á söfnum víða um lönd. Þekktasta myndröð hans er „Að- flutt landslag“ sem sýnir fram- kvæmdir við Hálslón og Kára- hnjúkavirkjun. „Þetta er verkefni sem ég hef unnið að um skeið, framhald af verkum sem ég sýndi í Gallerí Gangi í fyrra,“ segir Pétur. „Þess- ar myndir eru allar frá síðasta ári og úr einskonar rannsókn á garð- inum mínum.“ Titillinn vísar til þess að Pétur býr í húsi á Sólheimum sem nefnist Uppheimar og þar hefur hann tek- ið myndirnar. Sýna þær undur nærumhverfis listamannsins? „Það má sega það. Myndirnar sýna gróður í nærumhverfinu. Verkefnið hófst með því að ég fékk mér hund og fór að skoða í kring- um mig á kvöldin þegar ég fór út með hundinn og vasaljós. Ég fór að taka myndir í leiðinni og það þró- aðist út í að ég hef tekið fyrir ákveðna hluti garðsins og tilteknar plöntur, við ólík veður- og birtu- skilyrði. Verkin sem ég sýni nú birta þannig brot af garðinum.“ Pétur er alltaf með ljósgjafa með sér þegar hann tekur myndirnar, og lýsir náttúruna upp. „Þetta eru önnur tök á náttúru- og landslagsljósmyndun en ég hef notað áður,“ segir hann. „Ég hef myndað breytingar á landslagi á ósnortnu landi en hér er ég að vinna innan tilbúins heims, sem var skipulagður af hollenskum um- hverfisverkfræðingi. Nú er ég kominn í hina áttina.“ efi@mbl.is Önnur tök á landslagi Morgunblaðið/Þórður Ljósmyndarinn „Hér er ég er að vinna innan tilbúins heims, sem var skipu- lagður af hollenskum umhverfisverkfræðingi,“ segir Pétur Thomsen.  Pétur Thomsen sýnir ljósmyndir úr garðinum Innihurðir í öllum stærðum og gerðum! Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Lei tið tilb oða hjá fag mö nnu m o kka r • Hvítar innihurðir • Spónlagðar innihurðir • Eldvarnarhurðir • Hljóðvistarhurðir • Hótelhurðir • Rennihurðir • Með og án gerefta STOFNAÐ1987 einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s M ál ve rk : Æ ja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.