Morgunblaðið - 05.06.2014, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
verða með einleikaratónleika í
Kaldalóni mánudaginn 16. júní kl.
17.00. „Þar flytja þau vel þekkt ein-
leiksverk fyrir fiðlu, víólu og selló
með og án undirleiks eftir tónskáld
á borð við Paganini, Franck, Dvo-
rák, Hindemith og Schumann,“ seg-
ir Kristín Mjöll, en meðleikari á tón-
leikunum verður Richard Simm.
Dagana 14.-16. júní fara fram
nemendatónleikar Alþjóðlegu tón-
listarakademíunnar. „Á tónleik-
unum leika nemendur og þátttak-
endur Akademíunnar ýmis einleiks-
verk, með og án undirleiks, og
kammerverk sem þeir hafa lagt
stund á meðan á námskeiðinu stend-
ur,“ segir Kristín Mjöll og tekur
fram að tónleikarnir veiti góða þjálf-
un. Þess má geta að laugardaginn
14. júní verða tónleikar kl. 10.30,
13.00 og 16.00, sunnudaginn 15. júní
verða tónleikar kl. 13.00 og 16.00, en
mánudaginn 16. júní verða tónleikar
kl. 12.00. Meðleikarar á tónleik-
unum eru Ingunn Hildur Hauks-
dóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir.
Vinsælir lokatónleikar
Lokaviðburður Alþjóðlegu tónlist-
arakademíunnar eru sérstakir hátíð-
artónleikar sem haldnir verða í
Norðurljósum Hörpu 17. júní kl.
17.00. „Tónleikarnir marka lok sum-
arnámskeiðsins og þar koma allir
nemendur fram. Á tónleikunum
leikur Akademíuhljómsveitin þekkt
klassísk hljómsveitarverk eftir m.a.
Vivaldi, Mozart og Dvorák. Einleik-
arar tónleikanna koma úr röðum al-
þjóðlegra verðlaunahafa og framúr-
skarandi íslenskra ungmenna, en
þetta eru þau In Mo Yang, Eivind
Holtsmark Ringstad, Sonoko Mirian
Shimano Welde, Hulda Jónsdóttir,
Rannveig Marta Sarc og Pétur
Björnsson. Stjórnandi eldri
strengjasveitarinnar er Hu Kun, en
stjórnandi yngri strengjasveit-
arinnar er Guðný Guðmundsdóttir,
fyrrverandi konsertmeistari Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands,“ segir Krist-
ín Mjöll og tekur fram að tónleik-
unum ljúki með flutningi íslenska
þjóðsöngsins í tilefni þjóðhátíðar-
dagsins. „Í fyrra seldist nánast
strax upp á þessa tónleika og það
sannfærði okkur um að tímasetning
tónleikanna væri mjög góð,“ segir
Kristín Mjöll að lokum.
Morgunblaðið/Ómar
Stjórn Alþjóðlegu Tónlistarakedemíunnar í Hörpu F.v.: Kristín M. Jakobsdóttir, Sigurgeir Agnarsson, Ragnheið-
ur E. Þorsteinsdóttir, María H. Guðmundsdótttir, Lynn Wei Sigurgeirsson. Á myndina vantar Ara Þ. Vilhjálmsson.
In Mo Yang Sandra Lied Haga Sonoko Miriam Shimano Welde
Lokaverk Listahátíðar í Reykjavík, Flugrákir eftir
Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, verður flutt í dag kl.
17.30. Tvær listflugvélar teikna form innblásið af bylgj-
um Guðseindarinnar eða Higgs-agnarinnar og mun
Kvennakórinn Katla samtímis túlka ferðalag flugvél-
anna og verður söngnum útvarpað beint á Rás 1.
Áhorfendum er bent á að safnast saman við Sólfarið á
Sæbrautinni þar sem verkið verður flutt yfir Kollafirði.
Lokaverkið innblásið af Guðseindinni
Píanóleikarinn Tamara Stefanovich
leikur einleik á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í kvöld kl.
19.30. Hleypur hún í skarðið fyrir
Nicolas Hodges sem varð að afboða
komu sína vegna veikinda. „Tamara
Stefanovich er þekkt fyrir áhrifa-
ríka túlkun á verkum frá ólíkum
tímabilum tónlistarsögunnar,“ segir
m.a. í tilkynningu frá hljómsveit-
inni.
„Þrátt fyrir þessar ófyrirsjáan-
legu breytingar er efnisskrá tón-
leikanna að öllu óbreytt og mikill
fengur að fá Stefanovich til Íslands
með svo stuttum fyrirvara.“
Á efnisskránni eru píanókonsert
eftir György Ligeti og „Duet“ eftir
hljómsveitarstjóra tónleikanna
George Benjamin. Upphafs- og
lokaverk tónleikanna eru eftir
Claude Debussy, annars vegar pí-
anósvítan „Children’s Corner“ í nýj-
um hljómsveitarbúningi og hins
vegar hljómsveitarverkið „La mer“.
Tamara Stefanovich hleypur í skarðið
Tilbúin Tamara Stefanovich leikur sömu
efnisskrá og þegar hafði verið auglýst.
Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á
Gullna hliðinu eftir Davíð Stef-
ánsson verður gestasýning í Borg-
arleikhúsinu í haust. Egill Heiðar
Anton Pálsson leikstýrir sýning-
unni og með aðalhlutverk fer María
Pálsdóttir. Gullna hliðið er eitt
þekktasta og vinsælasta verk ís-
lenskrar leiklistarsögu og segir af
kerlingu sem getur ekki hugsað sér
að nýlátinn eiginmaður hennar,
Jón, hljóti vist í helvíti og leggur
því í ferðalag til að koma sál hans
inn í himnaríki.
Gullna hliðið sýnt í Borgarleikhúsinu
Sígilt Leikarar í Gullna hliðinu, sígildu verki Davíðs Stefánssonar.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 6/6 kl. 19:30
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt! Sýningum lýkur í vor.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fim 5/6 kl. 19:30 13.sýn Fös 13/6 kl. 19:30 14.sýn Lau 14/6 kl. 19:30 15.sýn
Fimm stjörnusýning sem enginn ætti að missa af. Aðeins þessar sýningar.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 7/6 kl. 14:00 Lau 14/6 kl. 14:00
Lau 7/6 kl. 16:00 Lau 14/6 kl. 16:00
Fimm stjörnu sýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 til 12 ára.
Stund milli stríða (Stóra sviðið)
Lau 7/6 kl. 19:30
Sýningin var valin áhugaverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2013 - 2014.
Saga (Kassinn)
Fim 5/6 kl. 19:30 Fös 6/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna - hluti af Listahátíð í Reykjavík
Prinsessan og kynngin (Stróa Sviðið)
Þri 10/6 kl. 19:30 Fim 12/6 kl. 19:30
Flamenkó, spænsk miðaldatónlist og dans.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★ – BL, pressan.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fös 6/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Ferjan (Litla sviðið)
Fim 5/6 kl. 20:00 aukas Lau 7/6 kl. 20:00 37.k Fim 12/6 kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00 36.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k Fös 13/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar