Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 40

Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Sýning á þremur vídeóverkum eftir myndlistarkonuna Ásdísi Sif Gunn- arsdóttur hefst í dag kl. 17 í Lista- safni Íslands og ber hún yfirskrift- ina Surrounded by the purest Blue, I welcome you. Sýningin er í kaffi- stofu safnsins. Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar er opið lengur í safninu og sýnir þá listamaður eða hópur listamanna vídeóverk í sam- starfi við vídeólistahátíðina 700IS Hreindýraland. Ásdís er fimmti listamaðurinn sem sýnir verk sín á kaffistofunni í þessu samstarfs- verkefni Listasafns Íslands og 700IS Hreindýralands og stendur sýning hennar til 30. júní. Verkefn- inu lýkur 27. nóvember og er sýn- ingunum ætlað að efla vídeólist í landinu og skapa vettvang fyrir umræður. Aðgangur ókeypis. Vídeólist Kynningarmynd fyrir sýninguna. Ásdís Sif sýnir þrjú vídeóverk í LÍ Þráður á landi, sýning á verkum Borghildar Óskarsdóttur myndlist- armanns, verður opnuð í dag kl. 17 í Artóteki í aðalsafni Borgarbóka- safns Reykjavíkur og er hún á dag- skrá Listahátíðar í Reykjavík. Á opnuninni mun Hlynur Helgason, lektor í listfræði við Háskóla Ís- lands, segja frá sýningunni og list Borghildar. „Verkið á sýningunni er um fimm kynslóðir sömu ættar, sem bjó á sjö býlum á Rangár- völlum og í Landsveit frá 1760 til 1941. Þetta fólk er löngu horfið en víða eru ummerki búsetu þess, hlaðnir garðar og húsveggir og grónar tóftir. Sumstaðar eru ummerkin ógreinileg, jafnvel horfin undir gróð- ur og sand. Fólkið er minning og býl- in eru grónar tóft- ir,“ segir m.a. um sýninguna í til- kynningu. Sýn- ingin er tvískipt og verður seinni hluti hennar settur upp við sögu- staðina á Rangárvöllum og í Land- sveit seinna í júní. Sýningin í Artó- tekinu stendur til 29. júní. Borghildur Óskarsdóttir Fimm kynslóðir á sjö býlum Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Samvera, spilagleði og frumkvæði tónlistarfólks eru í forgrunni á hátíð- inni,“ segir Arngunnur Árnadóttir, einn skipuleggjenda kammertónlist- arhátíðarinnar Podium festival sem hefst á morgun og stendur til sunnu- dags. Á hátíðinni er klassísk tónlist, allt frá endurreisnartíma til dagsins í dag, leikin af efnilegu ungu tónlist- arfólki sem um þessar mundir legg- ur grunninn að ferli sínum, en lista- fólkið kemur frá Austurríki, Þýskalandi, Noregi og Íslandi. „Þetta er fjórða árið sem hátíðin er haldin hérlendis, en Podium festi- val á Íslandi dregur nafn sitt af samskonar hátíðum í Þýskalandi og Noregi,“ segir Arngunnur og tekur fram að það sé afar dýrmætt að eiga aðgang að góðu tengslaneti tónlist- arfólks í gegnum systurhátíðirnar erlendis. Opnunartónleikar hátíðarinnar verða í Norræna húsinu í kvöld kl. 19.30. Á efnisskránni verða verk eft- ir J. Francaix, E. Schulhoff og J. Brahms auk þess sem frumflutt verður verk eftir Halldór Smárason sem er hátíðartónskáldið þetta árið, en hann er nýútskrifaður frá Man- hattan School of Music. „Inn í myrkrið“ er yfirskrift tón- leika sem fram fara í neðri kjallara Hörpu, K2, annað kvöld kl. 19.30. „Tónleikagestum gefst tækifæri til að skynja tónlistina á nýjan hátt, því áheyrendur munu upplifa tónlistina óhindrað í niðamyrkri,“ segir Arn- gunnur og tekur fram að efnisskráin verði fjölbreytt. „Leikin verða verk eftir m.a. Györy Ligeti, Arvo Pärt, H.I.F. Biber, Esa Pekka Salonen og William Byrd.“ „Dáið þér kammermúsík?“ er yfir- skrift síðdegistónleika í Norræna húsinu laugardaginn 7. júní kl. 14, en á efnisskránni verða verk eftir J. Haydn, A. Schnittke, L. Bernstein, W. Rihm og F. Schubert. „Síðar sama dag eða kl. 21 verðum við með tónleika á KEX hosteli þar sem leikin verða verk eftir W.A. Mozart og J. Adams auk þess sem við frumflytjum verk eftir Ingi- björgu Friðriksdóttur. Hugmyndin með staðsetningunni var að endur- vekja stemninguna frá klassíska tímabilinu þegar tónleikar fóru gjarnan fram í afslöppuðu umhverfi, enda var tónlistin afþreyingartónlist síns tíma.“ Lokatónleikarnir verða sunnu- daginn 8. júní kl. 15 á Norður- bryggju Hörpu og á efnisskránni eru verk eftir P. Hersant, N. Kap- ustin og L. Ornstein. „Aðgangur að lokatónleikunum er ókeypis, en miðaverði er stillt í hóf á öllum hin- um tónleikunum.“ Allar nánari upp- lýsingar um hátíðina eru á vefnum podiumfestival.com. Fiðluleikari Eygló Dóra Davíðsdóttir er meðal þeirra sem koma fram. Spilagleðin við völd  Kammertónlistarhátíðin Podium festival stendur dagana 5.-8. júní Fyrrverandi aðalballstaðuryngri Reykvíkinga,Glaumbær, sem upp-haflega var íshús en síðar endurbyggt í núverandi mynd undir Listasafn Íslands eftir eldsvoðann 1971, var umgjörð þrennra tónleika mán.-miðvikudag 2.-4. júní er náðu yfir öll heildarverk Beethovens fyrir selló og píanó. Vissulega markverð- ur viðburður á yfirstandandi Listahátíð, enda munu umrædd verk stórmeistarans ekki einasta hin fyrstu í tónlistarsögunni sem gera báðum hljóðfærum jafnhátt undir höfði líkt og sagði í dagskrár- kynningu, heldur hafa þau einnig sjaldan verið flutt hér í heild, þótt ekkert kæmi því miður fram um það – ólíkt dagskrárskrifum SÍ um „tón- listina á Íslandi“. Engu að síður hlaut hvort tveggja að kynda undir góðri aðsókn á kammerkvarða. Var salurinn að sama skapi þétt setinn miðað við húsrými, sem takmarkaðist að vísu talsvert af plássfrekum skreyt- ingum fyrirverandi myndlistarsýn- ingar á staðnum ásamt hitastækri ljósadýrð. Verra var þó að koma þyrfti hljómlistarmönnunum fyrir við stuttan vesturvegg salarins af sömu sökum, í stað lengri suður- veggjar sem jafnan hefur reynzt betur til hljómlistarflutnings – og flyglinum lengst inni í horni. Það lofaði varla góðu um hljóm- burð, enda reyndist staðsetningin afdrifarík. Alltjent man ég ekki eftir annarri eins glymjandi frá seinni ár- um á þessum stað, jafnvel þótt ég færði mig síðar til norðurs. Það bætti hins vegar sáralítið úr skark- alanum, sem aðallega var píanó- leiknum til baga. „Glaumbær“ reyndist hörmulegt réttnefni – og stórskerti að mínu viti ánægjuna af annars snöfurlegum samleik þeirra tvímenninga, jafnvel þótt viðmæl- endur í hléi vildu gera lítið úr því. Einkum var sárt að kenna muninn á tandurskýrri heyrð Eldborgar fjór- um dögum áður í leik Khatiu Buni- atishvili og þeirri glerhörðu hlust- skolun sem hér varð til að spilla fágun jafnslyngs kammerpíanista og Önnu Guðnýjar Guðmunds- dóttur, er átti sannarlega betri óm- vist skilda. Miðað við í raun óboðlegar að- stæður skilaði dúóið furðuvönduðum samleik, jafnt í æskuverkunum Op. 5 nr. 1 og Tilbrigðunum (er kórfólk þekkir bezt sem Canticorum jubilo) sem í djúpsæknari þriðjaskeiðssón- ötunni Op. 102 nr. 2, enda þótt meira hefði mátt tjalda ofurveikum leik þá við átti en raun bar vitni. Samt hefði hann að líkindum farið fyrir næsta lítið í jafnaumri ómvist. Með öðrum orðum björguðu þeir félagar því sem bjargað varð, og með meiri reisn en ætla skyldi – þrátt fyrir þennan illfyrirgefanlega akústíska blett á orðspori Lista- hátíðar í Reykjavík 2014. Ljósmynd/Valgarður Gíslason Réttnefni „„Glaumbær“ reyndist hörmulegt réttnefni – og stórskerti að mínu viti ánægjuna af annars snöfurlegum samleik þeirra tvímenninga,“ segir meðal annars um tónleika Önnu Guðnýjar og Sigurgeirs í Listasafni Íslands. Glymjandi Beethoven Listasafn Íslands / Listahátíð Kammertónleikar bbbnn Beethoven: Sellósónötur Op. 5,1 og 102,2; Tilbr. um Judas Maccabaeus WoO 45. Sigurgeir Agnarsson selló og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó. Mánu- daginn 2.6. kl. 20. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Hvernig hefur bíllinn það? Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30 BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Við hjá BJB erum sérfræðingar í dekkjum, pústi og smurningu og fleiru sem viðkemur reglubundnu viðhaldi bíla. Komdu með bílinn í BJB Hafnarfirði og þú færð góða þjónustu og vandað vinnu. 2012 Tímapantanir í síma 565 1090

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.