Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
Þrettán verkefni hlutu styrk úr
Hönnunrasjóði í fyrradag og fór út-
hlutunin fram á aðalfundi Hönn-
unarmiðstöðvar Íslands. Alls var 17,5
milljónum úthlutað til framúrskar-
andi hönnuða og arkitekta og hlaut
fatahönnuðurinn Bóas Kristjánsson
hæsta styrkinn, 2,5 milljónir króna,
til kynningar á vörumerki sínu á al-
þjóðlegum hátískumarkaði. 100 um-
sóknir bárust sjóðnum að þessu sinni
og 41 umsókn um ferðastyrk. Sam-
tals var sótt um rúmlega 200 m.kr.
sem er tífalt hærri upphæð en það
sem sjóðurinn hefur úr að spila, að
því er segir í tilkynningu.
Flestar styrkupphæðirnar voru á
bilinu ein til tvær milljónir króna og
styrkir til markaðssetningar erlendis
námu samtals sjö milljónum en
styrkir til þróunar- og rannsókna
einni og hálfri milljón. Ríflega helm-
ingur sjóðsins rann til verkefna-
styrkja, rúmar níu milljónir króna,
og tíu ferðastyrkir voru veittir að
upphæð 100 þúsund krónur hver.
Tveggja milljóna króna styrk
hlutu Spark Design Space til mark-
aðssetningar og kynningar á starf-
semi sinni, Reykjavík Letterpress
vegna markaðssetningar í Dan-
mörku á Einstökum serívettum og
fylgihlutum og Studiobility ehf. til
markaðssetningar á Selected by Bil-
ity. Hálfa milljón króna hlutu Þórunn
Árnadóttir fyrir Slipp og Hoj, Ígló
ehf. fyrir hönnunarverkefnið Songs
from the horizon og Magnea Ein-
arsdóttir fyrir fatalínu sína magneu.
Eina milljón hlutu Elísabet V.
Ingvarsdóttir fyrir Falinn skóg og
nýtingu hans – hönnunarsýningu í
Djúpavík á Ströndum, Guðrún Valdi-
marsdóttir fyrir húsgagnalínu sína
og Oddgeir Þórðarson fyrir Go Form
Concept-húsgögn. Upplýsingar um
sjóðinn má finna á sjodur.honn-
unarmidstod.is.
Styrkir Frá úthlutun úr Hönnunarsjóði í Hönnunarmiðstöð Íslands.
17,5 milljónum úthlut-
að úr Hönnunarsjóði
París norðursins, væntanleg kvik-
mynd leikstjórans Hafsteins Gunn-
ars Sigurðssonar, hefur verið valin
til þátttöku í aðalkeppni alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Karlovy
Vary í Tékklandi sem haldin verður
4.-12. júlí. Myndin verður frumsýnd
á hátíðinni sem er í flokki sk. A-
hátíða og því með þeim virtari í
heiminum. Það er því bæði heiður
fyrir Hafstein að mynd hans sé val-
in í keppnina og mikil kynning á
henni um leið. Björn Thors, Helgi
Björnsson og Nanna Kristín Magn-
úsdóttir fara með aðalhlutverk í
myndinni. Hross í oss eftir Bene-
dikt Erlingsson, sem sýnd hefur
verið á yfir 50 kvikmyndahátíðum
og hlotið 16 verðlaun, verður einn-
ig sýnd í Karlovy Vary í flokknum
Another View. Hross í oss er enn í
sýningum í Bíó Paradís.
Ágætisbyrjun Nýjasta kvikmynd Haf-
steins verður frumsýnd á Karlovy Vary.
París norðursins í aðalkeppni Karlovy Vary
L
16
12
ÍSL
TAL
★ ★ ★ ★ ★
„Besta íslenska kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FAULT IN OUR STARS Sýnd kl. 8 - 10:40
MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10:30
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:20
TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 6
14
20.000
manns á aðeins
10 dögum
TÖFRANDI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
BYGGÐ Á METSÖLUBÓKINNI
SKRIFAÐ Í STJÖRNURNAR
Stórkostlegasta
ástarsaga
áratugarins
-Entertainment
Weekly
www.kia.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-0
1
3
4
Glæsilegur Kia Rio
- rúmgóður og einstaklega sparneytinn
Nútímatækni og hönnun hefur ekki einungis skilað mögnuðum gæðabíl, heldur er hann
einn sparneytnasti fjöldaframleiddi dísilbíll í heimi. Magn CO2 í útblæstri er einnig mjög
lítið svo hann fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Að sjálfsögðu er 7 ára
ábyrgð á nýjum Kia Rio, svo hún gildir til ársins 2021.
Komdu og reynsluaktu, við tökum vel á móti þér.
Eyðir aðeins frá 3,6 lítrum á hundraðið
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Verð frá 2.590.777 kr. Rio 1,1 dísil
Eigum
bíla ti
l
afgre
iðslu
strax
!