Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 44

Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 44
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 156. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Telur sig hafa séð þotuna alelda 2. Þetta lærði Bryndís af … 3. Lík breska ferðamannsins fundið 4. Tófa réðst á selkóp »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Selma Guðmundsdóttir, píanóleik- ari og formaður Richard Wagner- félagsins á Íslandi, var í liðinni viku kjörin í stjórn Alþjóðasambands Richard Wagner-félaga í Graz til fimm ára. Í Alþjóðasambandi Wag- ner-félaga eru 137 félög víðs vegar í heiminum og eru félagsmenn þeirra yfir 20 þúsund. Alþjóðasambandið var stofnað árið 1991 af Josef Lien- hart í Freiburg og hefur íslenska Wagnerfélagið verið meðlimur í því frá árinu 1996. Morgunblaðið/Eggert Í stjórn alþjóðasam- taka Wagner-félaga  Frumsýning á brúðuleiksýningu Wakka Wakka Pro- ductions, Saga, verður í Kass- anum í Þjóðleik- húsinu í kvöld. Í Sögu er rakin saga Gunnars Oddmundssonar nokkurs sem lenti illa í efnahags- hruninu. Meðal leikenda í sýningunni er Andrea Ösp Karlsdóttir. 30 brúður í Kassanum  Hópfjáröflun fyrir heimildarmynd um Fjallabræður á vefnum Karolina- fund hefur gengið vonum framar og styrkti einn velgjörðarmaður kórsins hana um hálfa milljón króna. Munu Fjallabræður launa honum með einkatónleikum. Heimildar- myndin verður frumsýnd á há- tíðinni Skjaldborg um helgina. Styrkti Fjallabræður um hálfa milljón Á föstudag Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og bjartviðri, en þokuloft á annesjum fyrir norðan og austan. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 5-10 m/s og rigning eða skúrir en bjart með köflum á Norðurlandi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan. VEÐUR Ef Luis Suárez spilar með Úrúgvæjum eru þeir sig- urstranglegasta liðið í D- riðli heimsmeistarakeppn- innar í Brasilíu. Ítalir vilja gera mun betur en í Suður- Afríku fyrir fjórum árum. Minni væntingar virð- ast vera gerðar til Englendinga en oft áður og lið Kostaríku mun eiga erfitt uppdráttar gegn þremur öflugum and- stæðingum. »2-3 Spennandi bar- átta þriggja liða „Ég var eiginlega búinn að gefa allt frá mér og búinn að segja við um- boðsmanninn minn að vera ekkert að leita að neinum félögum fyrir mig, því ég kæmist eiginlega ekkert í burtu frá Noregi. Ég væri eiginlega bara í fangelsi í þessu húsi,“ sagði hand- bolta- mark- vörð- urinn Hreiðar Levý Guðmunds- son, en hann hefur staðið í löngu máli vegna hús- næðisins sem hann býr í og á í Noregi og hamlaði honum að flytja annað til að spila handbolta. »1 Hélt að hann væri fastur í Noregi í ónýtu húsi Lokarimma San Antonio Spurs og Miami Heat um meistaratitil NBA- deildarinnar í körfubolta hefst í nótt. Miami er með LeBron James, besta leikmann heims, en San Antonio er með sterkari leikmannahóp. Sagan er einnig á bandi Spurs en pistlahöf- undur Morgunblaðsins hefur tröllatrú á meistaraliðinu og telur að Miami vinni einvígið í sex leikjum. »4 Besti leikmaðurinn eða besti hópurinn? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Um 450 sjálfboðaliðar um land allt vinna að fataverkefni Rauða kross- ins en deildir hans um allt land safna notuðum fötum sem öll nýtast til hjálparstarfs. Fatnaðurinn er m.a. gefinn eða seldur í Rauða- krossbúðum landsins, ein þeirra er efst á Laugavegi en alls eru verslanirnar á höfuðborgar- svæðinu fjórar talsins. „Verslunin er sem betur fer mjög vinsæl en þeim sem heimsækja hana fjölgar stöðugt. Viðskipta- mannahópurinn hefur breikkað og nú fáum við fólk til okkar á öllum aldri,“ segir Sandra Grétarsdóttir, rekstrarstjóri fataverslana Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Eitt mikilvægasta verkefnið Fatasöfnun Rauða krossins er orðin eitt mikilvægasta fjáröfl- unarverkefnið fyrir Rauða krossinn á Íslandi en á höfuðborgarsvæðinu eru söfnunargámar á öllum endur- vinnslustöðvum Sorpu og grenndar- stöðvum. „Það gengur mjög vel að fá fatnað í búðina og fólk er mjög duglegt við að styðja okkur með því að gefa föt í söfnunargámana. Við fáum alls kyns fatnað hingað inn og erum mjög þakklát fyrir það fram- lag,“ segir Sandra en í hverri viku vinna um 22 sjálfboðaliðar í versl- uninni. „Það er mismunandi við hvaða að- stæður fólk kemur til okkar í vinnu. Sumir koma til okkar á meðan þeir leita að vinnu eða áður en þeir fara í nám en það er þó alltaf fastur kjarni í búðinni.“ Sandra segir að framlag sjálf- boðaliðanna skipti sköpum við rekstur verslananna. „Þetta er frá- bært fólk sem vinnur góða vinnu en launakostnaðurinn í kringum þetta verkefni er í lágmarki. Án sjálf- boðaliðanna væri ekki mögulegt að reka verslunina,“ segir Sandra. Í glugga verslunarinnar standa tvö reiðhjól sem ætlað er að vekja athygli á umhverfismálum og Rauða krossinum en hópurinn Craft around the world færði Rauðakross- versluninni hjólin að gjöf. „Hóp- urinn býr til alls kyns handverk til styrktar Rauða krossinum og var svo góður að gefa okkur hjólin. Þau eru búin að prjóna fallega í kringum hjólin, sem eru sett þarna í gluggann til að vekja athygli á okk- ur og þeim málum sem standa okk- ur nærri eins og umhverfismálum,“ segir Sandra. Ekki hægt án sjálfboðaliða  Hópur prjónar handverk í kring- um reiðhjól Morgunblaðið/Eggert Rauði krossinn Fatnaðurinn er m.a. gefinn eða seldur í Rauðakrossbúðum landsins. Ein þeirra er efst á Laugavegi en alls eru verslanirnar á höfuðborgarsvæðinu fjórar talsins. Allir starfsmenn verslananna eru sjálfboðaliðar. Morgunblaðið/Þórður Handverk Í hópnum sem gaf hjólin í glugganum eru konur alls staðar að úr heiminum og þær búa til handverk til styrktar Rauða krossinum. Sandra Grétarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.