Morgunblaðið - 10.06.2014, Blaðsíða 1
Reynsluakstur Nýr Kia Sportage er tals-
vert breyttur milli kynslóða, ótrúlega spar-
neytinn, frábærlega hljóðein-
angraður og vel búinn á
alla lund.
A
udi A3 hefur verið valinn
besti bíll ársins 2014 eða
„World Car of the Year“.
Dómnefndin var skipuð
69 bílablaðamönnum frá 22 lönd-
um og völdu þeir A3 sem sigurveg-
ara. Audi A3 g-tron fékk auk þess
sæti meðal þriggja efstu í flokkn-
um besti græni bíllinn eða „World
Green Car“. Rupert Stadler, stjórn-
arformaður Audi AG, sagði við
þetta tilefni: „Audi A6 var allra
fyrsti bílinn sem fékk þessi verð-
laun og erum við afar ánægð með
að Audi A3 hafi endurtekið það af-
rek með því að vera valinn heims-
bíll ársins 2014 (2014 World Car of
the Year). Audi A3 hefur sýnt frá-
bæra tæknilega hæfni á öllum
sviðum. Þessi virðulegu verðlaun
eru áfangi sem allt fyrirtækið getur
fagnað.“
e-tron seinna á árinu
Seinna á þessu ári mun verða
hægt að fá A3 Sportback sem e-
tron, sem er hybrid og kemst allt
að 50 kílómetra á rafmótornum
áður en bensínvélin tekur við. Audi
í Þýskalandi býður viðskiptavinum
sínum upp á grænt rafmagn, eða
svokallaða Audi-orku. Samstarfs-
aðili Audi í því er orkufyrirtækið
LichtBlick SE í Hamburg. Audi-
orkan kemur öll frá endurvinn-
anlegum orkugjöfum og er enn ein-
göngu fáanleg á sérstökum orku-
stöðvum í Þýskalandi, Austurríki
og Sviss. Með Audi-orku er A3 e-
tron algjörlega laus við að menga
þegar notast er við rafmagnsmót-
orinn.
Velgengni Audi A3 hófst árið
1996, þegar fyrsta kynslóðin leit
dagsins ljós og braut blað í sögunni
með opnun nýs markaðar, svokall-
aðs „premium compact class“
(minni bílar í hágæðaflokki). Með
tilkomu annarrar kynslóðar Audi
A3 árið 2003 jókst forskotið, þá
sérstaklega með tilkomu Cabriolet
sem fæst þriggja dyra og sem
Sportback. Þriðja kynslóðin, A3, er
fáanleg í fjórum gerðum og margar
hagkvæmar vélarstærðir eru í boði.
Sigursælt merki
Með þessum sigri fyrir Audi A3
hefur Audi haldið sess sínum sem
framleiðandi bifreiða með flesta
„World Car of the Year“-titla. Vöru-
merkið með hringina fjóra hefur
áður fengið þrjá „World Perform-
ance of the Year“-titla (frammi-
staða ársins) og tvo „World Car De-
sign of the Year“-titla (hönnun
ársins), að ógleymdum titlinum
„World Car of the Year“ (bíll árs-
ins). Í heildina hefur Audi fengið sjö
titla á World Car of the Year Awards
eða Bíll ársins-verðlaununum.
Verðlaun:
2005 Audi A6 World Car of the
Year
2007 Audi RS 4 World Perform-
ance Car, Audi TT World Car De-
sign of the Year
2008 Audi R8 World Perform-
ance Car, Audi R8 World Car De-
sign of the Year
2010 Audi R8 V10 World Per-
formance Car
2014 Audi A3 World Car of the
Year
njall@mbl.is
Audi A3 valinn heimsbíll ársins 2014
Audi vann titilinn Bíll ársins í annað sinn á 10 árum, nú fyrir A3 módelið.
Verðlaunagripur World Car of the
Year er einkar glæsilegur.
Scott Keogh með dóm-
nefndinni við verð-
launaafhendinguna.
Fáir bílaframleiðendur sanka að sér fleiri verðlaunum en Audi
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2014
BÍLAR
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
NÝ
TT
Tryllitæki