Morgunblaðið - 20.06.2014, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.06.2014, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2014 Heimsmeistarakeppnin í Brasilíu er á góðri leið með að verða sú skemmtilegasta sem ég man eftir. Nú þegar önnur um- ferð riðlakeppninnar er nýhafin höfum við orðið vitni að mörgum frábærum leikjum og vonandi verður ekkert lát á þessum kræs- ingum. Það er ekki annað að sjá en að umgjörð leikjanna í samba- landinu sé góð og þrátt fyrir vandræði og seinagang Brass- anna með að gera allt klárt fyrir mótið virðist fótboltinn ekkert hafa liðið fyrir það. Spánverjar, sem margir höfðu spáð að myndu verja heimsmeistaratitilinn, þó ekki undirritaður, fara heim með skottið á milli fótanna eftir leik- inn á móti Ástralíu. Ríkjandi meistararar mættu til leiks nán- ast bensínlausir og áttu hrein- lega engin svör gegn Hollend- ingum og Sílemönnum, sem gjörsamlega slátruðu „tiki-taka“- leikaðferð Spánverjanna. Ég spáði því fyrir mót að Þjóðverjar myndu standa uppi sem meist- arar og ég stend enn við þau orð. Ég hef alltaf haft taugar til hollenska landsliðsins á HM og leikir þess í Brasilíu hafa svo sannarlega ekki svikið fótbolta- áhugamenn. Leiftrandi sókn- arleikur hefur verið aðalsmerki þeirra með Robben og van Persie í broddi fylkingar. Hollendingar hafa burði til að fara alla leið og það yrði ekkert leiðinlegt að fá heimsmeistara á Laugardals- völlinn hinn 13. október þegar Ís- land og Holland eigast við í und- ankeppni EM. Brassarnir sjálfir hafa ekki sýnt neina sambatakta og satt best að segja finnst mér nokkrir leikmenn brasilíska liðsins ekki sóma sér vel í gula búningnum. Þar get ég nefnt leikmenn eins og Fred, Paulinho, Gustavo og Hulk. Það er enginn meist- arabragur á þessu liði. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is mörg skot í leiknum og hávörn gerir í blakleik. Fyrstu landsliðsmörk Elínar Þessa leiks verður kannski ein- hvern tíma minnst fyrir það að Elín Metta Jensen skoraði sín fyrstu mörk fyrir A-landsliðið en hún lék sinn 10. landsleik. Hún gæti hæg- lega raðað inn landsliðsmörkunum næsta áratuginn eða svo ef fram heldur sem horfir. „Það er skemmtilegt að skora og gott að vera loksins búin að skora með A-landsliðinu. Þegar ég spila fótbolta þá hugsa ég alltaf um að skora. Við vissum svo sem að lið Möltu væri ekki sérstaklega sterkt og myndi reyna að pakka í vörn. Það var bara eitt lið á vellinum að reyna að spila fótbolta af alvöru. Við hefð- um getað skorað miklu fleiri mörk og gæðin í okkar spili hefðu mátt vera meiri,“ sagði Elín Metta Jensen þegar Morgunblaðið ræddi við hana. Stórleikur gegn Dönum í ágúst Annars konar verkefni bíður ís- lenska liðsins í ágúst þegar Danir mæta á Laugardalsvöllinn í úrslita- leik um annað sætið í riðlinum. Liðin gerðu jafntefli ytra á dögunum og landsliðsþjálfarinn Freyr Alexand- ersson er bjartsýnn á að hægt sé að leggja Dani að velli síðsumars. „Við ætlum að vinna þann leik. Við höfum getuna og við höfum heima- völlinn. Þá vona ég að hér verði full áhorfendastúka og við vinnum Dani í fyrsta skipti í stórkeppni. Við Ís- lendingar elskum að vinna Dani og ætlum okkur að gera það,“ sagði Freyr í samtali við Morgunblaðið. Ísland er áfram í öðru sæti riðils- ins eftir þessi úrslit, stigi á undan Dönum sem sigruðu Ísrael örugg- lega á útivelli í gær, 5:0. Íslenska lið- ið á nú eftir heimaleiki gegn Dan- mörku, Ísrael og Serbíu og þarf öll níu stigin sem þar eru í boði til að eiga raunhæfa möguleika á að kom- ast í umspilið fyrir HM í Kanada. Morgunblaðið/Ómar Þrengsli Það var oft þröng á þingi í vítateig Möltu. Hér sækir Elín Metta Jensdóttir að markinu og Harpa Þorsteinsdóttir er á fjórum fótum á meðan malt- verskur varnarmaður liggur á vellinum. Elín náði að skora fyrstu tvö mörk sín fyrir íslenska landsliðið í leiknum. Sótt í 90 mínútur Laugardalsvöllur, undankeppni HM kvenna, 3. riðill, 19. júní 2014. Skilyrði: Nánast logn, 12 stiga hiti og skúrir. Völlurinn blautur. Skot: Ísland 34 (23) – Malta 0. Horn: Ísland 17 – Malta 0. Ísland: (4-4-2) Mark: Þóra B. Helgadóttir. Vörn: Elísa Viðarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Hallbera G. Gísladóttir. Miðja: Fanndís Friðriks- dóttir (Rakel Hönnudóttir 86.), Þór- unn Helga Jónsdóttir (Harpa Þor- steinsdóttir 60.), Dóra María Lárusdóttir, Hólmfríður Magn- úsdóttir (Sara Björk Gunnarsdóttir 73.). Sókn: Elín Metta Jensen, Dagný Brynjarsdóttir. Malta: (4-4-2) Mark: Keoney Demi- coli. Vörn: Kimberly Parnis, Re- becca D’Agostino, Natasha Pace (Dionne Tonna 86.), Charlene Zam- mit. Miðja: Shona Zammit, Stefania St. Farrugia, Antoinette Sammut (Gabriella Zahra 74.), Francesca Chircop (Brenda Borg 77.). Sókn: Jade Flask, Alishia Sultana. Dómari: Séverine Zinck – Frakk- landi. Áhorfendur: 579. Ísland – Malta 5:0  Ísland vann öruggan 5:0 sigur á Möltu í undankeppni HM  Lið Möltu pakk- aði í vörn  Komust vart fram yfir miðju  Ísland er áfram í öðru sæti riðilsins Í LAUGARDAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Ef maður sér nógu marga íþrótta- kappleiki um ævina þá nær maður líklega að sjá flestar þær útgáfur sem íþróttirnar bjóða upp á. Í gær- kvöldi sá greinarhöfundur fótbolta- leik í undankeppni HM kvenna í knattspyrnu, þar sem annað liðið komst varla fram yfir miðju og það eru engar ýkjur. Ísland vann þá Möltu 5:0 og íslensku landsliðskon- urnar héldu því upp á kvenrétt- indadaginn með öruggum sigri. Þó yfirburðir Íslendinga hafi ver- ið óumdeildir þá getur verið hægara sagt en gert að skora mörk þegar andstæðingurinn tjaldar bók- staflega í eigin vítateig. Það hafðist þó fimm sinnum í gærkvöldi og þeg- ar ísinn hafði verið brotinn á 12. mínútu þá var engin spurning um hvar stigin þrjú myndu hafna. Með nánast allt sitt lið inni í eigin vítateig á löngum köflum tókst Maltverjum að forða sér frá stærra tapi. Erfitt var fyrir íslensku landsliðskonurnar að búa til pláss í teignum og varn- armenn Möltu vörðu líklega álíka 1:0 Hólmfríður Magnúsdóttir 12.skallaði knöttinn í netið eftir góða hornspyrnu frá Hallberu Guðnýju Gísladótt- ur frá hægri. 2:0 Elín Metta Jensen 20. skoraði meðskoti úr miðjum vítateignum í vinstra hornið eftir barning í vítateignum. 3:0 Dóra María Lárusdóttir 40. skor-aði með föstu skoti úr miðjum víta- teig. Hólmfríður sendi inn á teiginn og Dóra lagði boltann fyrir Elínu Mettu. Skot hennar var varið af varnarmanni, Dóra hirti frákast- ið og skoraði. 4:0 Dagný Brynjarsdóttir 64. DóraMaría tók hornspyrnu. Leik- mönnum Möltu tókst ekki að koma bolt- anum út úr teignum. Hann féll fyrir Dag- nýju sem skoraði með hnitmiðuðu skoti. 5:0 Elín Metta Jensen 86. skoraði meðgóðu skoti með vinstri fæti í hægra hornið eftir góðan undirbúning Hörpu Þor- steinsdóttur. I Gul spjöld:Engin. I Rauð spjöld: Engin. M Hallbera Guðný Gísladóttir Dóra María Lárusdóttir Dagný Brynjarsdóttir Hólmfríður Magnúsdóttir Elín Metta Jensen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.