Morgunblaðið - 23.09.2014, Page 2

Morgunblaðið - 23.09.2014, Page 2
F áir bílar hafa vakið viðlíka at- hygli í umferð- inni hér á landi og Ferrari nokkur, rauð- ur að lit. Bíllinn var skráður fyrir um tíu dögum og loguðu net- heimar vegna gripsins. Bílablaðamaður Morg- unblaðsins varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka í græjuna og ljóst er að bíltúrinn góði gleymist ekki svo glatt! 620 hestöfl og 3,7 í hundraðið Að heyra nafnið Ferrari er eitt og sér nóg til að áhugafólk um bíla kippist við. En til að fara nánar of- an í saumana á þessum tiltekna bíl þá er þetta Ferrari 599GTB (Grand Tourer Berlinetta), tveggja sæta bíll með 6.0 l. Tipo F140C V12 vél sem skilar góðum 620 hestöflum og er 3,7 sek úr kyrr- stöðu upp í hundrað kílómetra hraða. Ef ég færi að lýsa tilfinning- unni við akstur þessa bíls myndi einhver sennilega benda mér á að gefa bara út ljóðabók. Þess vegna læt ég eitt orð nægja: Stórkost- legt! Þetta eintak er frá árinu 2006 og var breytt af þýska fyrirtækinu Novitec sem sérhæfir sig í breyt- ingum á Lamborghini, Ferrari og Maserati. Bíllinn er með 21" felg- um að aftan og 20" að framan. Að aftan eru sérsmíðuð Pirelli dekk 355/25/21 fyrir Saleen, Mure- celagio og Novitec. Fyrir áhuga- sama þá má geta þess að felgur og dekk að framan eru 275/30/ 20. Bíllinn er sérbúinn KW Race- dempurum sem tengdir eru vökvakerfi sem getur hækkað bíl- inn að framan sem kemur sér ákaflega vel á hinu hraðahindr- anaskreytta höfuðborgarsvæði. Þá er einfaldlega ýtt á takkann og hann hækkar sig um 25 mm. Hann lækkar sig sjálfkrafa þegar farið er yfir 80 kílómetra hraða. Þetta er ekki búið því bíllinn er með ECU upgrade, því sama og 599 GTO- bíllinn sem gefur hraðari skipti- tíma, eða 60 millisekúndur. Bremsurnar eru ótrúlega magn- aðar en í bílnum eru Ceramic- bremsur sem er eins gott því það þarf eitthvað almennilegt til að stöðva 620 hestafla tryllitækið. Að innan er bíllinn stílhreinn og ekkert verið að flækja málin um of með óþörfum tökkum hér og þar. Í stýrinu eru stillingartakkar sem kallast „Manettino“ og svara til þess sem er að finna í F1 kapp- akstursbílum. Undirrituð ók að mestu með stillt á Race Mode. Sætin eru úr karboni og leðri, Day- tona style. Aðrir ökumenn hættulegir Það reyndist hin mesta þraut að mynda þennan fallega bíl því hvar sem stöðvað var þyrptist fólk að og flestir með síma á lofti til að taka mynd af bílnum. Það var nú ekki það versta því fjölmargir öku- menn í umferðinni á fallegum laugardagseftirmiðdegi í borginni, tóku upp myndavélasíma og smelltu af í miðjum akstri. Einn daginn á rauði Ferrari-inn eftir að valda upplausnarástandi í umferð- inni. Það var kúnstugt að upplifa þetta. Til að mynda ók einn næst- um út af þar sem hann snéri sér við og tók mynd af bílnum í stað þess að hafa augun á veginum. Þykist ég viss um að það var verið að mynda bílinn en ekki bílstjór- ann. Í það minnsta skapast þessar aðstæður sjaldnast þegar ég ek um á mínum tuttugu og þriggja ára Justy. Það er spurning hvort bíllinn hætti að vekja slíka athygli á göt- unni en hann er og verður alltaf áberandi fallegur. Og hljóðið mað- ur! Það er nú nóg til þess að allir í ákveðnum radíus frá bílnum fái gæsahúð um allan skrokk. 6 lítra V12 vél skilar undurfögrum hljóð- um sem jafnast á við fegurstu tón- list. Hesthús eða Ferrari? Árið 2006 var verðmiðinn á svona bíl, fyrir utan breytingarnar hjá Novitec eitthvað um 240.000 evrur í Þýskalandi þannig að sú spurning vaknar hvort það sé ekki rándýrt að fjárfesta og reka þenn- an 620 hestafla bíl. Eigandi bílsins svarar að bragði: „Það er ódýrara að fjárfesta og reka þennan 620 hesta bíl heldur en til dæmis að eiga hesthús með aðeins tveimur hestum.“ Kallar þetta á frekari út- skýringar? Ég held ekki. malin@mbl.is Ferrari 599GTB mættur til leiks 620 hestafla tryllitæki í Reykjavík Í drauma „dótakassanum“ gæti verið eins og einn Ferrari og einn Pitts Monster. Svona til dæmis. Hann stingur dálítið í stúf við umhverfið nánast hvar sem komið er og það er eitt af því skemmtilega. „Manettino“ stillingartakkinn gegnir gríð- arstóru hlutverki í almennilegum bílum. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014 2 BÍLAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.