Morgunblaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014
6 BÍLAR
B
ílsmiðjan Dacia, rúm-
enskt dótturfyrirtæki
Renault, hefur notið
mikillar hylli undanfarin
misseri og er ekkert lát þar á.
Fyrstu átta mánuði ársins jókst
sala Daciabíla í löndum Evrópu-
sambandsins (ESB) um 30% og
nam 247.942 eintökum.
Ekkert annað bílamerki hefur
notið jafnmikils vaxtar á árinu og
Dacia. Aðeins dró þó úr segla-
vindinum í ágústmánuði er aukn-
ingin var einungis 2,7%. Í ágúst-
lok nam hlutdeild Dacia í
heildarmarkaði fólksbíla í Evrópu
3,2%. Sem er meira en mark-
aðsskerfur Nissan og dregur
Dacia jafnt og þétt á Fiat og
Toyota.
Sala Dacia nemur 35% allrar
bílasölu Renaultfyrirtækins og
þökk sé hinum rúmensku smiðj-
um þá hefur franski bílsmiðurinn
notið söluaukningar á heimsvísu
í ár.
Það var einræðisherrann Nic-
olae Ceaucescu sem stofnaði
Dacia eftir valdatökuna 1966 í
þeim tilgangi að framleiða ódýra
bíla fyrir óbreytta landsmenn.
Réð hann nokkra verkfræðinga
frá Renault til að koma bílsmíð-
inni á fót. Nefndi hann fyrirtækið
eftir frumbyggjum Rúmeníu,
Dakíumönnum, og Dakíu, hinu
forna rómverska skattlandi við
Svartahaf sem var um það bil
þar sem Rúmenía er nú.
Fyrsta módel Dacia var kassa-
laga fernra dyra stallbakur sem
hét einfaldlega Dacia 1100. Sá
var byggður á Renault 8. Árið
1969 bættist við Dacia 1300
sem var lítið annað en Renault
12 og smíðaður með leyfi frá
Renault. Sá var rennilegri en
1100-bíllinn og réð ríkjum á veg-
um Rúmeníu allt þar til smíði
hans var hætt árið 2004. Þá
höfðu meira en tvær milljónir
eintaka verið smíðaðar. Bíllinn
varð ekki beint almenningseign
því annaðhvort urðu menn að
hafa sambönd til að komast yfir
einn eða bíða árum saman á bið-
listum. Svo ótraustir voru Dacia-
bílarnir í stjórnartíð Ceausescus,
að haft var í flimtingum, að hver
einasti Rúmeni væri bifvélavirki
af illri nauðsyn.
Eftir fall Ceaucescus og
kommúnistastjórnar hans keypti
Renault Dacia árið 1999 og hóf
að framleiða ódýrustu bíla Evr-
ópu í samsetningarsmiðjunum í
Rúmeníu.
Logan laumast úr landi
Fyrsta afurð hinnar uppstokk-
uðu starfsemi sem öðlaðist mikl-
ar vinsældir var Logan sem kom
á götuna 2004. Fulltrúar Ren-
ault tóku eftir því að Logan var
kominn á götur í Vestur-Evrópu
þótt fyrirtækið hefði ekki selt þá
út fyrir Rúmeníu. Þótti þetta
benda til að markaður væri fyrir
bílinn billega þótt smíðagæðin
og frágangur væri ekki eins og
Vestur-Evrópumenn áttu að
venjast.
Því var hafinn útflutningur á
bílum Dacia og til að gera langa
sögu stutta hefur salan aukist
að jafnaði um 10% ár hvert. Í
dag rjúka Logan II og Sandero II
út eins og heitar lummur enda á
innan við 8.000 evrur, 1,5 millj-
ónir króna, í grunnútgáfum.
Sömuleiðis rýkur hinn fjórdrifni
Dacia Duster út en aftur á móti
hefur dregið úr vinsældum
Lodgy og Dokker. Í dag eru
smiðjur Dacia í Rúmeníu keyrðar
á 95% afköstum og runnu úr
þeim 343.000 bílar í fyrra. Árið
1989 voru starfsmenn bílsmiðj-
unnar við Argeselána norður af
Búkarest tvisvar sinnum fleiri en
í dag en afköstuðu þó ekki nema
innan við þriðjungi þess bíla-
fjölda sem nú er þar smíðaður.
Er það til marks um endurbætur
sem Renault hefur gert á smiðj-
unum og nútímavæðingu þeirra.
agas@mbl.is
Dacia heillar Evrópubúa
Stallbakurinn Dacia Sandero Stepway mælist vel fyrir. Hinn nýi Dacia Duster fær góðar móttökur.
Eins og við sögðum frá í síðustu
viku mætir Toyota til leiks á bíla-
sýningunni í París í október með
hugmyndabíl að nýjum smáj-
eppa.
Stefnt mun vera að því, að bíll-
inn, sem á þessu stigi er nefndur
Toyota C-HR, verði kominn á göt-
una innan eins árs, eða síðsum-
ars 2015.
Toyota hefur veitt afar tak-
markaðar upplýsingar um bílinn
en birti í gær tvær myndir til að
kynda upp áhuga fyrir frumsýn-
ingunni eftir 10 daga. Þær sýna
svo ekki verður um villst að jap-
anski bílsmiðurinn er að sveigja
inn á nýjar brautir í bílhönnun og
stílfræði. Eftirtektarvert er, að
táknmerki Toyota hefur líklega
sjaldan sést jafnstórt á bíl og á
framgrilli C-HR-smájeppans.
Með C-HR-bílnum virðist og
Toyota loks ætla að blanda sér í
keppnina um hylli kaupenda lítilla
jeppa. Hann mun því keppa við
bíla á borð við Honda CR-V,
Mazda CX-5 og Nissan Juke, svo
einhverjir séu nefndir.
Í tilefni myndbirtingarinnar
sagði Toyota, að C-HR yrði einum
stærðarflokki minni en RAV4-
jeppinn og tvinnbíll. Þar sagði og
að hugmyndabíllinn endurspegl-
aði „kraftmikið nýtt hönn-
unarþema“. Óhætt er að segja að
um sé að ræða djörfustu bílhönn-
un Toyota um margra ára skeið.
Bíllinn situr hátt á áberandi
stórum hjólum, flæðandi þaklínan
sveipast aftur eftir honum og
fram- og afturljósin eru einkar
áberandi. Þá er yfirbragð bílsins
mjög í anda tvennra dyra fólks-
bíla, rétt eins og Nissan Juke.
Toyota C-HR verður ekki eini
nýi bíllinn í París sem hugsaður
er sem svar við Nissan Juke. Þar
verða einnig hinn nýi smájeppi frá
Fiat, 500X, og ný Evrópuútgáfa
af Honda HR-V.
agas@mbl.is
Toyota sýnir meira af
C-HR-smájeppanum
Óhætt er að segja að Toyota fari inn á nýjar brautir í bílhönnuninni með
C-HR smájeppanum. Hönnunin er sú djarfasta um margra ára skeið.
Bílaritið Auto-
Express sýnir
þá ótrúlegu
dirfsku að
taka sér fyrir
hendur að út-
nefna versta
bíl sögunnar.
Það ætlar
blaðið reyndar
að gera með
hjálp lesenda,
sem geta sent
tillögu sína
um versta bíl-
inn. Þeir eru
svo hvattir til að rökstyðja til-
löguna með því að senda
blaðinu línu á Facebook eða
Twitter, „ekki síst ef þið hafið
átt eitthvað af þessum
skrímslum“, eins og blaðið
kemst að orði.
Eflaust rata bílaframleiðendur
ekki alltaf á réttu lausnina er
þeir smíða nýtt módel. Það ger-
ist þó líklega sjaldnar nú til
dags en áður. AutoExpress seg-
ir að ömurlegir bílar hafi runnið
af færiböndum bílsmiðja um
dagana og leikur hugur á að
vita hver hafi verið þar fremstur
í flokki; að ömurleik.
Hér er annars listinn sem
AutoExpress hefur útbúið yfir
kandídata að versta bíl sög-
unnar, og dæmi nú hver fyrir
sig:
– Rover CityRover
– Suzuki X-90
– Renault Safrane
– FSO Polonez
– Lexus SC 430
– Citroën C3 Pluriel
– Chrysler PT Cruiser
Convertible
– Hyundai Pony
– Mitsubishi Mirage
– Lada Riva
– Austin Allegro
– Kia Pride
– Morris Marina
– Alfa Romeo Arna
– Nissan Micra C+C
– G-Wiz
– Austin Ambassador
– Nissan Cube
– Ssangyong Rodius
– Chrysler Ypsilon
agas@mbl.is
Rover CityRover er meðal bíla sem til álita koma sem
versti bíll sögunnar. Þar er hann í afleitum félagsskap.
Leita að versta bíl sögunnar
Chevrolet Cruze hefur verið einn mest seldi stallbakurinn í Bandaríkj-
unum undanfarin ár. Í nýliðnum ágústmánuði náðist merkilegur áfangi
í sögu þessa bíls, sem einnig hefur reynst vinsæll hér á landi.
Um mánaðamótin skýrði General Motors frá því að þriðji milljónasti
Cruze-bíllinn hefði verið seldur í ágúst – aðeins 16 mánuðum eftir að
annar milljónasti bíllinn var keyptur.
Cruze kom fyrst á götuna árið 2008 og hefur mælst vel fyrir á mark-
aði í öllum álfum heims. Hann er nú framleiddur í 11 löndum og seldur í
118. Hefur hann átt mjög hratt vaxandi vinsældum að fagna á nýjum
mörkuðum, ekki síst í Kína. Þar höfðu selst 1,13 milljónir Cruze-bíla við
síðastliðin júlílok, eða rúmlega þriðjungur allra selda eintaka bílsins.
Næststærsti markaður bílsins er á heimavelli í Bandaríkjunum, en
þar eru um 900.000 á götunni. Rússland er í þriðja sæti með 195.000
eintök. Lista yfir 10 stærstu sölulönd Cruze fylla síðan Brasilía, Kan-
ada, Suður-Kórea, Mexíkó, Tyrkland, Indland og Suður-Afríka.
agas@mbl.is
Þrjár milljónir Chevrolet Cruze seldar
Chevrolet Cruze er seldur í 118
löndum, þar á meðal á Íslandi.