Morgunblaðið - 12.09.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 12.09.2014, Síða 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ Bláa Lónið býður upp á veislusal og dekur með. 10 12.09.2014 Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók Árni Sæberg Prentun Landsprent ehf. Gamla bíó opnað aftur eftir gagngerar endurbætur. 4 Salurinn Ásgarður við Stangarhyl er sívinsæll. 6 Veisluþjónustan Cocktail.is byggir á reynslunni. 12 Ljúffengur matur og falleg aðstaða einkennir Sólon. 14 Maður er manns gaman og það hefur aldrei vafist fyrir Íslendingum að koma saman og gera sér glaðan dag. Tilefnin eru líka mörg og margvísleg til þess að slá tappa úr, slá í glas og slá svo loks á létta strengi. Það er þó að mörgu að huga ef vel á að vera og góð veisla krefst nokkurs skipulags, eins og gefur að skilja. Hvort sem til stendur að taka slaginn sjálfur – skreyta salinn, undirbúa veitingar, og ræsta að hittingi loknum – ellegar fá til þess fagfólk, þá er í ýmis horn að líta. Í þessu sér- blaði, sem helgað er veislusölum í höfuðborg- inni og nágrenni, er að finna upplýsingar um ýmsa kosti sem standa þeim til boða sem hafa veisluhöld, fundi eða annars konar mannamót á döfinni. Hvort sem fyrir dyrum er tíu manna fundur, tvö hundruð manna brúðkaup eða enn stærra ættarmót, þá eru hér viðtöl og umfjall- anir um sali af öllum stærðum í ákaflega fjöl- breytilegum húsakynnum. Það er því vonandi að lesturinn gagnist þeim sem eru í þeim hug- leiðingum að leigja sér húsnæði fyrir eitthvert tilefnið. Það er nefnilega ekki ráð nema í tíma sé tekið. Morgunblaðið/Styrmir Kári Góða veislu gjöra skal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.