Morgunblaðið - 12.09.2014, Side 4
Morgunblaðið/Þórður
Gersemi „Það eru fjölmargir möguleikar í þessu húsi sem hafa einfaldlega ekki verið nýttir hingað til. Þetta hús er auðvitað
alltof fallegt til að leyfa fólki ekki að njóta þess til fulls,“ segir Ása Berglind, markaðs- og verkefnastjóri hjá Gamla Bíói.
F
ramkvæmdir hafa staðið yfir
í sumar og munu gera fram
á haust að sögn Ásu Berg-
lindar. „Þegar fram-
kvæmdum lýkur verður
húsið allt miklu praktískara í notkun
og auðveldara að nýta það fyrir hvers
kyns viðburði,“ segir hún. „Notagildi
stóra salarins hefur verið heldur tak-
markað því hann var jú með föstum
sætum á hallandi gólfi. Honum erum
við að breyta ásamt því að taka önnur
rými í gegn svo þau nýtist líka við
ýmiskonar mannfagnaði. Það eru fjöl-
margir möguleikar í þessu húsi sem
hafa einfaldlega ekki verið nýttir
hingað til. Þetta hús er auðvitað alltof
fallegt til að leyfa fólki ekki að njóta
þess til fulls.“
Fjölnota aðalsalur
Eins og Ása nefndi var stóri salurinn
með niðurnegldum sætaröðum á hall-
andi gólfi ásamt föstu sviði í austur-
enda salarins sem setti notendum
hans heldur þröngar skorður. Nú hef-
ur allt þaðan verið hreinsað út, bæði
sætin og sviðið.“
„Í stóra salnum verða laus sæti
sem hægt verður að raða upp á alla
mögulega vegu, allt eftir því hvort til
stendur að hafa hér hefðbundið borð-
hald, tónleika eða hvað sem vera skal.
Hallinn hefur því líka verið tekinn af
gólfinu og nú er það einfaldlega jafn-
slétt. Þó verða útdraganlegar sæta-
raðir sem lítið fer fyrir út við vegg
þegar þær eru ekki í notkun en virka
eins og hallandi bíósætauppröðun
þegar þær eru útdregnar. Sviðið
verður sett upp aftur en í einingum
svo hægt verður að taka það sundur
og færa það til í salnum, ef vill. Þá
verður líka hægt að setja upp göngu-
pall eftir endilangri miðjunni í salnum
með sætum til beggja hliða ef setja á
upp tískusýningu. Möguleikarnir eru
nánast óþrjótandi.“ Ása Berglind
bætir því við að svalirnar í stóra saln-
um verði um leið lagaðar og betrumb-
ættar. „Þær verður svo hægt að
leigja einar og sér fyrir minni mann-
fagnaði og listviðburði.“
Petersensvítan opnuð gestum
Það er ekki á allra vitorði en á þriðju
hæð Gamla bíós var lengst af inn-
réttuð, myndarleg íbúð. Hún heitir
eftir manninum sem setti Gamla bíó á
stofn á sínum tíma. Sá hét Peter Pet-
ersen og var danskur að ætt.
Petersen þessi var ljósmyndari og í
hópi upphafsmanna kvikmyndarekst-
urs á Íslandi. Hann reisti Gamla bíó
árið 1927 og innréttaði um leið íbúð
fyrir sig á efri hæðinni. Þar bjó hann
meðan hann rak bíóið, allt til ársins
1939 þegar hann fluttist til Kaup-
mannahafnar. Hefur þar síðan heitið
Petersensvíta. „Petersensvítan er í
ákaflega fallegu rými en það hefur lít-
ið sem ekkert verið notað hingað til.
Á því verður breyting núna,“ segir
Ása Berglind. „Svítan hentar frábær-
lega fyrir minni fundi og mannfagn-
aði og opnu aðalrýmin tvö sem mynda
aðalhluta íbúðarinnar taka hvort um
sig um 20 manns. Í svítunni verður
daglega opið kaffihús og bar og þar
má halda kokteilboð, afmæli, tónleika
eða fundi af öllu tagi og umhverfið er
dásamlegt, fullt af sögu og andrúms-
loftið er einstakt.“
Af efri hæðinni verður ennfremur
gengt út á þakpallinn og þar stendur
til að setja upp skála í einu horninu.
„Af þakpallinum er stórkostlegt út-
sýni yfir borgina og þar verður án
vafa vinsælt að hafa skemmtilega við-
burði sem njóta sín undir beru lofti.“
Breytingar til fyrra horfs
Þar sem hús Gamla bíós hefur fylgt
Reykvíkingum – og reyndar lands-
mönnum öllum – um langan aldur
hefur óneitanlega sett ugg að sumum
yfir því að verið sé að taka húsið í
gegn. Margir óttast að verið sé að
vinna þessu fallega húsi óbætanlegan
skaða og reynt verði að færa húsið til
nútímalegri vegar með ófyrirséðum
afleiðingum. Ása Berglind þvertekur
fyrir að nokkuð slíkt sé í kortunum.
„Það er alls ekki svo. Þvert á móti
miða þessar framkvæmdir að því að
færa húsið sem næst sínu upp-
runalega útliti og til þess höfum við
gamlar ljósmyndir og annað slíkt til
hliðsjónar við verkið. Hvergi er brotið
í bága við friðunarlög eða aðrar
reglugerðir á nokkurn hátt heldur
eru þessar framkvæmdir unnar í
fullri sátt við þá sem fara með mála-
flokk húsfriðunar. Þá má benda á að
anddyrið, með sínum sögulegu miða-
sölugluggum, er alfriðað og þar verð-
ur ekki hreyft við neinu, bara lagfært
og frískað upp á. Hvað sætin í að-
alsalnum varðar þá heyrðum við eitt-
hvað af áhyggjuröddum þegar frétt-
ist að til stæði að hreinsa þau út og
endurnýja. Það má í þessu sambandi
benda á að sætin í salnum voru ekki
upprunaleg, svo enginn misskiln-
ingur sé um það. Það var búið að taka
upprunalegu sætin út úr húsinu fyrir
margt löngu og sumir telja að bíósæt-
in sem eru til vörslu í Árbæjarsafni
séu upprunalegu sætin úr Gamla
bíói. En við þessar framkvæmdir er
full virðing borin fyrir húsi Gamla
bíós.“
Opnað um áramótin
Fyrir utan bætta aðstöðu um allt hús
verður móttökueldhús innréttað í
kjallaranum sem getur séð gestum
fyrir veitingum í samstarfi við veislu-
þjónustur. „Svo erum við að setja
upp lyftu sem mun fara hér á milli
hæða og þá verður loks tryggt al-
mennilegt hjólastólaaðgengi, nokkuð
sem ekki hefur verið til staðar hingað
til enda lítið hugsað um slíkt á bygg-
ingartíma hússins,“ segir Ása.
Að sögn Ásu Berglindar er stefnt á
að húsið verði tilbúið til fullrar notk-
unar um áramótin en þó verði eitt-
hvað um að vera í húsinu áður en til
þess kemur. „Gamla bíó verður með-
al annars einn af tónleikastöðunum á
Iceland Airwaves í haust svo húsið
verður komið í einhverja notkun þá
þegar. Við erum nú þegar farin að
taka á móti bókunum og það er
greinilega mikill áhugi fyrir því að
koma hér inn með allskyns viðburði
og veislur. Hægt er að hafa samband
á gamlabio@gamlabio.is og svo geta
áhugasamir einnig fylgst með fram-
kvæmdunum á facebooksíðu Gamla
bíós. Svo stefnum við á að opna með
viðhöfn um áramótin, enda væri flug-
eldasýning við hæfi þegar kemur að
því að bjóða Íslendingum hingað inn
á ný.“
jonagnar@mbl.is
Aftur til fortíðar
Það stendur mikið til í hinu sögufræga húsi Gamla bíós
við Ingólfsstræti. Innanstokks er verið brjóta, breyta
og bæta – allt til að færa þetta ástsæla samkomuhús
sem næst upprunalegu horfi sínu. Blaðamaður fékk
leiðsögn um húsið me Ásu Berglind Hjálmarsdóttur,
markaðs- og verkefnastjóra hjá Gamla bíói.
Morgunblaðið/Eggert
Húsið Gamla bíó við Ingólfsstræti er sögufrægt og gullfallegt hús sem til stendur
að opna að fullu eftir gagngerar endurbætur um næstu áramót.
Möguleikar Hér sjást
nokkrar útfærslur á stóra
salnum í gamla bíói, allt
eftir því hvert tilefnið er
hverju sinni. Möguleik-
arnir eru ótalmargir.
Pallurinn Svalapallurinn verður opnaður fyrir hvers konar viðburði þeg-
ar framkvæmdum lýkur. Útsýnið þaðan á sér fáa jafningja í Reykjavík.
4 | MORGUNBLAÐIÐ