Morgunblaðið - 12.09.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.09.2014, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ Kol og salt, Grandagarði 2, 101 Reykjavík Sími: 511 1517 / 695 6900 - elma@sagamuseum.is Einstök aðstaða til veislu- og fundarhalda í virðulegu og sögufrægu húsi. Hlýlegur salur sem hentar vel fyrir árshátíðir, brúðkaup, afmæli, fermingarveislur og móttökur. Einstakur veitingastaður í miðbæ Reykjavíkur M iklar framkvæmdir standa nú yfir á Hótel Borg og uppúr áramót- um verður opnaður þar nýr, stærri og betri Skuggabar, að ógleymdum 40 nýju herbergjum og fallegri heilsulind í kjallaranum. Þóra Sigurðardóttir er fram- kvæmdastjori Borg Restaurant (www.borgrestaurant.is) sem sér um allar veitingar og veislur á hótelinu. „Með framkvæmdunum er verið að nýta byggingarrétt á baklóðinni og verður með því til nýtt rými á jarðhæðinni til viðbótar við þá veislusali sem fyrir eru á hótelinu. Eftir framkvæmdirnar verður Skuggabarinn orðinn lengri og stærri og betur sniðinn að ólíkum þörfum viðskiptavina okkar,“ segir Þóra. Hún bætir við að gamli Skugga- bar hafi verið orðinn nokkuð gamall og lúinn, barn síns tíma sem hafi þjónað sínu hlutverki vel um langt skeið. „Rýmið er núna tekið alveg í gegn og endurhannað 100% í sama anda og aðrir hlutar hótelsins. Verð- ur einnig hægt að stúka salinn betur niður í aðskilin rými, auka þannig notagildið og gera okkur kleift að taka vel á móti gestahópum af öllum stærðum.“ Þar sem hlutirnir gerðust Hótel Borg þarf ekki að kynna les- endum Morgunblaðsins. Þetta fagra og sögufræga hótel hefur í gegnum tíðina verið einn af miðpunktum samfélagsins, og leitun að þeim borgarbúa sem á ekki einhverjar já- kvæðar minningar frá hótelinu. „Fyrir stuttu hitti ég nærri ald- argamla konu sem sagði mér einmitt frá einni af sínum bestu æskuminn- ingum, þegar hún fór á sinn fyrsta dansleik á Borgini, sextán ara göm- ul. Margir eiga minningar af sama toga, frá dansskemmtun, hlaðborði eða veislu.“ Þóra segir þessa sögu og glæsi- lega bygginguna gefa öllum veislum sem þar eru haldnar meiri glæsibrag og hátíðleika. Alla hlakki til að koma í veislu á Hótel Borg. „Staðsetningin gæti heldur ekki verið betri, hér al- veg í hjarta miðborgarinar en samt svo „prívat“. Fyrir utan er iðandi mannlífið, Laugavegur, Tjörnin og Austurvölur en þegar stigið er inn í húsið er komið inn í annan heim.“ Salir sem þarf ekki að skreyta Hún segir líka að fólk ætti ekki að halda sjálfkrafa að allur glæsileikinn og sagan geri veislur á Hótel Borg mjög dýrar. „Mér sýnist verðin hjá okkur vera mjög sambærileg við það sem gengur og gerist í veislu- og há- tíðageiranum. Engin óvænt útgjöld ættu að koma fólki í koll og hægt að stóla á fagmannlega ráðgjöf og hnökralausa þjónustu út í gegn.“ Hún skýtur þvi inn að þegar svona fagurlega innréttaður staður er val- inn fyrir veisluna þurfi heldur ekki að gera neitt meira fyrir rýmið. „Oft er fólk að eyða miklu púðri í að gera hina og þessa veislusalina fallegri og hátíðlegri. Salir eins og Gyllti sal- urinn eru hátíðlegir og glæsilegir án þess að nokkuð meira sé við þá gert.“ Veisla og notaleg næturgisting Ef til stendur að halda veislu á hót- elinu er ekki galið að skoða líka þann möguleika að gista þar eins og eina nótt, í góðu yfirlæti. Segir Þóra að algengt sé að t.d. fyrirtækjahópar utan af landi hafi þann háttinn á að blanda saman veislu og gistingu, en gistingin geti líka verið skemmtileg viðbót við eftirminnilegan dag jafn- vel ef fólk býr á höfuðborgarsvæð- inu. „Er upplifunin þá nánast eins og að vera kominn til útlanda. Gestir geta komið sér fyrir á herbergrinu uppúr miðjum degi, varið eftirmið- deginum við búðarölt eða í listasöfn- unum og tekið sig svo til fyrir veisl- una uppi á herbergi. Gestirnir halda svo heim næsta dag úthvíldir og af- slappaðir.“ ai@mbl.is Allir hlakka til að koma á Hótel Borg Umfangsmiklar fram- kvæmdir standa yfir við hótelið og eftir áramót verður opnuð ný og betri veisluaðstaða. Skuggabar stækkar og er tekinn í gegn í stíl við aðra hluta hússins. Dekó Hver krókur og kimi á hótelinu býr yfir heillandi sögu. Úrval Fagmenn fara leikandi létt með að skipuleggja storar og smáar veislur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gylling Þóra segir fallegan sal ekki þurfa neina skreytingu. „Salir eins og Gyllti salurinn eru hátíðlegir og glæsilegir án þess að nokkuð meira sé við þá gert.“ Þóra segir Íslendinga vilja almennilega steik í matinn þegar haldin er árshá- tíð. Lamba- og nautakjöt sé langsamlega vinsælast. „Fólk vill góða og vand- aða steik, en samt ekki „mömmumat“, heldur rétt sem eldaður hefur verið með kokka-„tvisti“,“ segir hún. Magnið skiptir ekki endilega höfuðmáli, heldur gæðin. „Hinn almenni gest- ur ber í dag mjög næmt skynbragð á gæði hráefnisins og það gengur ekki að bera á borð hnallþórur og svamptertur, eða eitthvað annað en fyrsta flokks kjöt. Vinsæla chili-súkkulaðikakan okkar er gott dæmi um þetta, gerð úr fín- asta fáanlega hráefni. Sneiðin er ekki risavaxin, en það er mikið að gerast í hverjum bita.“ Hátíðir snúast um steikur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.