Morgunblaðið - 12.09.2014, Síða 9

Morgunblaðið - 12.09.2014, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ | 9 L ykillinn að því að eiga skemmtilega stund við veisluborðið er að sitja til borðs með áhugaverðu fólki sem gaman er að ræða við. Fátt er pín- legra en að sitja með kræsingarnar fyrir framan sig, í sparifötunum og reyna af veikum mætti að halda uppi samræðum við óáhugaverðan sessunaut. Góður gestgjafi þarf að leggja ákveðna vinnu í sætaskipanina, ellegar treysta því að fólk raði sér nokkurn veginn vel niður á borðin ef sætaröðunin er frjáls. Finna má á vefnum og í handbókum ýmis ráð um hvernig á að raða gestum niður og geta reglurnar verið breytilegar eftir því hvers konar viðburð er um að ræða. Á árshátíð fyrirtækis gilda ekki endilega sömu lögmálin og í brúðkaups- eða afmælisveislu, og gestgjafinn getur líka haft mjög mis- mikla þekkingu á persónuleika og áhuga- málum gestanna. Hafa sumir gengið svo langt að þróa flók- in fræði í kringum niðurröðunina eftir ná- kvæmum reglum um hvaða manngerðir geta setið saman og hverjar ekki. Nöldrarar og trúðar Ágætt er að reyna t.d. að skilja gróflega hvernig hver gestur er líklegur til að hegða sér í boðinu. Sumir eru miðpunktur athygl- innar og aðrir fámálir hlustendur. Sumum hættir til að nöldra, slúðra eða kvarta og aðrir gera ekki annað en ræða um stjórn- mál. Sumir eru í innsta hringnum og þekkja alla, en aðrir eru nýliðar og með lítil tengsl við aðra gesti. Þarf að finna ákveðið jafnvægi á milli þessara persónugerða. Gefðu nýliðanum smá hækju að styðja sig við með því að sitja við hliðina á opnum gesti sem þekkir alla og getur greitt leiðina að öðrum veislugestum. Ekki fylla heilt borð af þöglum týpum og alls ekki setja alla röflarana í einn hóp, því þeir eiga bara eftir að magna upp röflið hver í öðrum. Gestgjafinn sjálfur þarf oft að vera á ferðinni um veisluna og þarf þess vegna að muna að velja sér sessunauta sem geta ver- ið sjálfbjarga ef gestgjafinn stendur upp frá borðum. Gjárnar brúaðar Stundum hjálpar sætaskipanin líka til við að hrista fólk saman. Hver kannast ekki við að hafa farið í fermingarveislu eða brúðkaup þar sem ein ættin hélt sig í öðru horninu og hin ættin í hinu horninu. Þetta fólk fær ekki mörg tækifæri til að kynnast og um að gera að ýta fólki út úr þægindahringnum. Sama gildir með vinnustaði, að veislan getur brúað bil á milli deilda. Kannski það skapi nýjar og verðmætar samskiptaleiðir ef söludeildin situr með bókhaldinu, eða lag- erfólkið með tæknimönnunum. Í öðrum tilvikum þarf að reyna að hafa sem lengst bil á milli sumra gesta. Kannski er best að tengdamæðurnar sitji hvor í sín- um enda salarins og snúi baki hvor í aðra, eða vinnufélagarnir sem lyndir ekki vel hverjum við annan séu a.m.k. ekki hafðir við sama borðið. Í brúðkaupsveislum og sambærilegum viðburðum þykir líka stundum við hæfi að pör sitji sitt í hvoru lagi og blandi þannig geði við fleira fólk. Hjónin geta þá t.d. setið hvort andspænis öðru við hringborð eða langborð. ai@mbl.is Meiri gleði með réttu sessunautana The White House Hefðir Gestir snæða páskakvöldverð með Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu. Niðurröðunin er án vafa vandlega úthugsuð, rétt eins og allt annað í salnum. Getur skipt miklu fyrir veisl- una hvar fólk situr og hver situr með hverjum. Við erum líka góð í smærri veislum Veisluþjónusta Hörpu býður upp á alhliða þjónustu fyrir hvers kyns viðburði. Meginstefið er ný íslensk matargerðarlist þar sem framsetningin kemur á óvart. Eldað er úr öllu því ferskasta á hverjum árstíma með áherslu á íslenskt hráefni. Við tökum að okkur brúðkaupsveislur, fermingar- veislur, afmæli, erfisdrykkjur, árshátíðir, fundi, ráðstefnur og þannig mætti lengi telja. Starfsfólk okkar er fagfólk með mikla reynslu; úrvalshópur matreiðslumanna og sérfræðinga í skipulagningu á veislum. Við tryggjum einstaka stemningu, ánægjulegar stundir og auðvitað gómsætar veitingar. Hafið samband við okkur og fáið persónulega ráðgjöf um hvað hentar veislunni þinni. veislur@harpa.is | 528 5070

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.