Morgunblaðið - 12.09.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.09.2014, Blaðsíða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ L ava, veitinga- og veislusalur Bláa Lónsins er byggður inn í hraunið. Óhætt er að segja að hann veiti við- burðum sem þar fara fram bæði fallega og ævintýralega um- gjörð,“ segir Magnea Guðmunds- dóttir, upplýsingafulltrúi Bláa Lóns- ins. „Klettaveggurinn sem umlykur salinn utan frá er upplýstur og setur samspil lýsingarinnar og Bláa Lóns- ins skemmtilegan svip á salinn.“ Lava hentar að sögn Magneu vel fyrir stærri viðburði eins og árshátíðir fyrirtækja sem hafa salinn þá út af fyrir sig, en sal- urinn býður upp á mikla möguleika. „Salurinn er vel tækjum búinn og býður upp á fjöl- breytta mögu- leika í lýsingu. Einnig má skipta saln- um niður í tvo eða þrjá hluta allt eftir gestafjölda. Þykkar gardínur og tveir stórir skjávarpar eru í salnum sem býður uppá ýmsa möguleika með myndir og myndbönd.“ Magnea bendir ennfremur á að Lava barinn á annarri hæð sé tilval- inn fyrir fordrykk og þegar vel viðrar geta veislugestir einnig farið upp á þak Lava þar sem þeir njóta óviðjafn- anlegs útsýnis yfir svæðið. Þægileg akstursfjarlægð Fundasalir Bláa Lónsins henta vel fyrir minni og stærri fundi, og ráð- stefnu- og fundasalir eru í Bláa Lón- inu og einnig í Eldborg sem er við orkuverið í Svartsengi. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð frá þeim sem hafa fundað hjá okkur, og óhætt er að segja að einstakt umhverfi Bláa Lónsins veiti fundagestum inn- blástur, hvert sem fundarefnið kann að vera hverju sinni,“ segir Magnea og brosir við. „Staðsetningin er einn- ig þægileg þar sem hóparnir fara út úr bænum, kúpla sig þannig út úr sínu daglega umhverfi en eru samt sem áður í þægilegri akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. En Eldborg er sérstaklega góður kostur fyrir veislur fyrir allt að 200 manns. Í Bláa lóninu og Eldborg eru einnig fullbúin stjórnarherbergi sem eru tilvalinn kostur fyrir minni fundi. Öll fund- arherbergi eru búin góðum tækja- búnaði. Svæðið býður einnig upp á mikla möguleika þar sem funda- og ráðstefnugestir geta einnig unnið og fundað í minni hópum utan funda- herbergjanna, þessi möguleiki er vin- sæll hjá þeim sem funda hér hjá okk- ur,“ bætir hún við. Slökun að fundi loknum „Bláa lónið er einnig mikið aðdrátt- arafl fyrir hópa sem funda hjá okkur yfir daginn og óhætt er að segja að það sé fátt betra en að ljúka góðum fundardegi í lóninu sjálfu,“ segir Magnea. „Fundagestir ná þá að end- urnærast og slaka á í lok dags og veit- ir oft ekki af eftir strembna vinnu- eða fundatörn.“ Þegar það kemur að upplifun í lóninu bjóða Magnea og samstarfsfólk hennar upp á fjöl- breytta möguleika. „Okkar vinsæl- asta heimsókn heitir „Experience Comfort.“ Auk þess að fara í Bláa Lónið fá gestir afnot af handklæðum og baðsloppum og nudd og drykk að eigin vali í lóninu. Þá fylgir lítill pakki með völdum húðvörum einnig með heimsókninni. Betri stofa Bláa Lónsins – þar sem boðið er upp á einkaklefa og arinstofu – er góður kostur fyrir smærri hópa, að sögn Magneu, en Betri stofan hentar fyrir allt að 12 gesti. „Spa meðferðir og nudd í Lóninu eru fáan- legar og henta þær vel fyrir minni hópa þar sem allt að átta gestir geta fengið nuddmeðferð samtímis.“ Stjörnukokkar stjana við gesti Bláa Lónið leggur mikla áherslu á upplifun gesta og á það jafnt við um umhverfi, þjónustu og veitingar, eins og Magnea bendir á. „Matreiðslu- meistarar Bláa Lónsins þeir Ingi Þórarinn Friðriksson, Þráinn Freyr Viktorsson, fyrirliði landsliðs ís- lenskra matreiðslumeistara, og Vikt- or Örn Andrésson, matreiðslumeist- ari Norðurlanda 2013, leggja mikla áherslu á hráefni upprunnin í ná- grenni Bláa Lónsins. Íslenskt sjáv- arfang er þar í fyrirrúmi enda er Bláa lónið staðsett í Grindavík. Mat- reiðslumeistararnir hafa þróað sam- setta matseðla sem henta bæði minni og stærri hópum.“ Áhersla er lögð á matarupplifun sem hluta af heildarupplifun heim- sóknarinnar í Bláa Lónið. „Í vetur verður boðið upp á enn fjölbreyttari matseðla og m.a. með villibráðarívafi en villibráðarhlaðborð Bláa Lónsins hafa notið mikilla vinsælda und- anfarin ár. Magnea minnir ennfremur á að staðsetningin á Reykjanesinu feli einnig í sér frábær tækifæri fyrir hópa sem vilja hafa útiveru sem hluta af fundardeginum. „Á Reykjanesi er stórbrotin náttúra og tilvalið aðheim- sækja t.d. Gunnuhver og brúna milli heimsálfa sem hluta af fundardeg- inum,“ segir hún. „Sem dæmi má nefna að Orkustígurinn sem liggur um athafnasvæði Bláa Lónsins og til Grindavíkur er skemmtileg 5 km gönguleið sem tilvalið er að fara í lok dags áður en hópurinn fer í Bláa Lón- ið eða til að brjóta upp daginn. Þá bjóðum við einnig skemmtilegar ferð- ir um Bláa Lónið undir leiðsögn, gestir kynnast þá sögu og uppruna Bláa Lónsins á lifandi og skemmti- legan máta. Áhersla okkar hjá Bláa Lóninu er alltaf að koma til móts við óskir viðskiptavina okkar og leggja okkar af mörkum til að fundardag- urinn eða viðburðurinn verði sem ánægjulegastur,“ segir Magnea að endingu. jonagnar@mbl.is Magnað umhverfi og matarupplifun Það er óhætt að segja að Bláa Lónið njóti ákveðinnar sérstöðu sakir umhverfis síns og þeirra heilnæmu eig- inleika sem í lóninu sjálfu felast. Bláa Lónið býður fjölbreytta mögu- leika þegar kemur að veislum og mannfagnaði og þar skapar umhverfið eftirminnilega umgjörð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Einstakt Bláa Lónið og umhverfi þess er einstakt og aðdráttarafl þess á Íslendinga sem og erlenda ferðamenn er ávallt mikið. Morgunblaðið/RAX Vellíðan Funda- og ráðstefnugestir geta látið líða úr sér í nuddi, fljótandi í sjálfu lóninu. Betri slökun er sjálfsagt vandfundin. Náttúra Hraun og vatn mætir húsi Bláa Lónsins og myndar magnaða heild. Magnea Guðmundsdóttir Hraunið Hátt er til lofts og vítt til veggja í veitingasalnum og hraunið rammar hann inn. Veisluborð Lava, veitinga- og veislusalur Bláa Lónsins, rúmar veglegar veislur við öll tækifæri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.