Morgunblaðið - 08.10.2014, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
UPPGJÖR 2014
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Atli Guðnason, sóknartengiliðurinn
reyndi í liði FH, var besti leikmaður
Pepsi-deildar karla í knattspyrnunni á
árinu 2014 að mati Morgunblaðsins.
Hann varð efstur í einkunnagjöf
blaðsins, M-gjöfinni, og fékk samtals
17 M fyrir frammistöðu sína í 22 leikj-
um Hafnarfjarðarliðsins í deildinni á
nýloknu keppnistímabili.
Eins og fram kemur í viðtali við
Atla á forsíðu íþróttablaðsins er þetta
í þriðja sinn á sex árum sem hann
stendur uppi sem efsti maður í M-
gjöfinni í mótslok en það gerðist einn-
ig árin 2009 og 2012.
Baráttan um efstu sætin var mjög
jöfn í allt sumar en undir lokin voru
það fjórir leikmenn sem stóðu feti
framar en aðrir.
Atli Guðnason fékk M fyrir ellefu
leiki í sumar. Einu sinni þrjú, fyrir
frammistöðu sína gegn Val í næstsíð-
ustu umferðinni, og hann fékk fjórum
sinnum tvö M. Fyrir leik gegn Fylki í
2. umferð, gegn Val í 10. umferð, gegn
Fjölni í 18. umferð og gegn KR í frest-
uðum leik 19. september. Samtals 17.
Elías Már Ómarsson, hinn bráð-
efnilegi sóknarmaður Keflvíkinga,
varð annar en hann fékk 16 M. Elías
átti mjög jafnt og gott tímabil og fékk
fimmtán sinnum M fyrir sína leiki, þar
af einu sinni tvö. Elías spilaði 20 leiki
þannig að það gerðist aðeins fimm
sinnum að hann fengi ekki M fyrir
frammistöðu sína.
Árni Vilhjálmsson, annar ungur og
efnilegur sóknarmaður, úr Breiða-
bliki, fékk 15 M fyrir 20 leiki Kópa-
vogsliðsins. Hann fékk þrettán sinn-
um M, þar af tvö M tvívegis.
Igor Taskovic, fyrirliði og miðju-
maður Víkinga, fékk einnig 15 M en
hann spilaði 21 leik með nýliðunum.
Taskovic fékk tvisvar tvö M og alls
þrettán sinnum M fyrir leiki liðsins.
Hér fyrir ofan má sjá úrvalslið
Morgunblaðsins 2014, byggt á ein-
kunnagjöfinni, en þar er valið ellefu
manna lið og níu varamenn. Þetta eru
þeir 20 einstaklingar sem voru
fremstir í flokki á keppnistímabilinu
2014.
Eflaust furða einhverjir sig á því
hve fáir úr Íslandsmeistaraliði Stjörn-
unnar eru í þessum hópi. En það segir
kannski meira en margt annað um
liðsheild Garðabæjarliðsins því M-in
dreifðust mjög á leikmenn liðsins í
stað þess að einhver einn þeirra stæði
uppúr á tímabilinu.
Til að vera í fremstu röð í M-
gjöfinni þurfa leikmenn að spila nán-
ast allt tímabilið. Tveir leikmenn sem
komast á varamannabekkinn spiluðu
færri leiki en aðrir og hefðu því getað
verið ofar á listanum. Aron Elís
Þrándarson úr Víkingi missti af sex
leikjum og Þórir Guðjónsson úr Fjölni
missti af fimm leikjum en samt eru
þeir báðir í þessum 20 manna hópi
með 12 M hvor. Margir sem settu svip
sinn á tímabilið, svo sem Jeppe Han-
sen, Rolf Toft, Kristján Gauti Em-
ilsson og Steven Lennon, léku aðeins
hálft sumarið og koma því ekki við
sögu í úrvalsliðinu.
Hægra megin í opnunni má sjá
fimm bestu leikmennina í hverju liði í
deildinni, samkvæmt einkunnagjöf-
inni. Þar má einnig sjá að FH-ingar fá
afgerandi flest M fyrir sumarið í heild
en Stjarnan og KR eru jöfn í öðru og
þriðja sæti en Þórsarar fengu fæst M
á tímabilinu. Til hægri eru svo úrvals-
lið „öldunga“, sem fæddir eru 1981 og
fyrr, með hinn 42 ára gamla Dean
Martin í broddi fylkingar, og úrvalslið
yngri leikmanna en þar eru piltar
fæddir 1994 og síðar sem settu mark
sitt á deildina á þessu ári.
Fjórir leikmenn stóðu
uppúr á tímabilinu 2014
Atli Guðnason efstur í M-gjöfinni í þriðja sinn Elías Már fast á hæla honum
Lið ársins 2014 hjá Morgunblaðinu
4-3-3
Ingvar Jónsson
Stjörnunni
Hversu oft leikmaður var valinn í lið umferðarinnar2
Pétur Viðarsson
FH
Daníel Laxdal
Stjörnunni
Aron Elís
Þrándarson
Víkingi
Davíð Þór
Viðarsson
FH
Magnús Már
Lúðvíksson
Val
Bergsveinn
Ólafsson
Fjölni
Jonas Sandqvist
Keflavík
Brynjar Gauti
Guðjónsson
ÍBV
Kassim Doumbia
FH
Ólafur Páll
Snorrason
FH
Þórir Guðjónsson
Fjölni
Varamannabekkur:
Haukur Heiðar
Hauksson
KR
Bjarni Ólafur
Eiríksson
Val
Atli Guðnason
FH
Guðjón Pétur
Lýðsson
Breiðabliki
Igor Taskovic
Víkingi
Árni Vilhjálmsson
Breiðabliki
Elías Már
Ómarsson
Keflavík
Gary Martin
KR
Fjöldi sem leikmaður fékk á leiktíð2
17
6
13
6
12
2
11
3
12
4 13
6
13
6
15
5
15
2 13
5
12
2
12
4
12
4
12
3
12
2
11
4
12
3
12
3
16
4
10
2
Ljósmynd/Víkurfréttir
16 M Elías Már Ómarsson, sóknar-
maður úr Keflavík.
Morgunblaðið/Eva Björk
15 M Árni Vilhjálmsson, sóknar-
maður úr Breiðabliki.
Morgunblaðið/Ómar
15 M Igor Taskovic, miðjumaður og
fyrirliði Víkings í Reykjavík.
Undankeppni EM U19 karla
3. riðill í Króatíu:
Tyrkland – Ísland .................................... 7:3
Enes Unal 27., 32., 48., 68., Mert Öztürk
42., Melih Okutan 81., Ogulcan Caglayan
90. – Albert Guðmundsson 17., Samúel Kári
Friðjónsson 39., Alexander Sigurðarson 90.
Króatía – Eistland ................................... 1:0
Ísland mætir Króatíu á morgun og Eist-
landi á sunnudag. Tvö efstu liðin komast í
milliriðil sem er leikinn seinnipart vetrar.
Þá kemst lið með bestan árangur í þriðja
sæti í undanriðlunum þrettán einnig áfram.
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Víkingur – Grótta ................................. 22:25
Staðan:
Grótta 4 4 0 0 107:82 8
Fjölnir 3 3 0 0 73:59 6
Víkingur 3 2 0 1 74:65 4
Mílan 3 1 1 1 68:63 3
Selfoss 3 1 0 2 73:71 2
Hamrarnir 3 1 0 2 62:72 2
ÍH 3 1 0 2 65:74 2
Þróttur 3 0 1 2 64:85 1
KR 3 0 0 3 56:71 0
Vináttuleikur U18 kvenna
Holland – Ísland..................................... 25:2
Mörk Íslands: Sandra Erlingsdóttir 9,
Andrea Jacobsen 7, Alexandra Diljá Birki-
sdóttir 2, Þórunn Eva Sigurbjörnsdóttir 1,
Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Ragnhildur Edda
Þórðardóttir 1, Sara Lind Stefánsdóttir 1.
HANDBOLTI
Svíþjóð
Solna – Jämtland ................................. 73:75
Sigurður Gunnar Þorsteinsson skoraði 6
stig, tók 5 fráköst og gaf tvær stoðsend-
ingar í leiknum fyrir Solna.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Meistaradeild kv., 32-liða, fyrri leikur:
Samsungvöllur: Stjarnan – Zvezda ......... 20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
DHL-höllin: KR – Valur ...................... 19:15
Stykkishólmur: Snæfell – Haukar...... 19:15
TM-höllin: Keflavík – Breiðablik ........ 19:15
Grindavík: Grindavík – Hamar ........... 19:15
Í KVÖLD!
Bítlarnir auglýsa tónleika seint ásjöunda áratugnum en nokkrumdögum áður en talið er í hættir
Lennon í bandinu og McCartney leggst
á spítala. Harrison var vissulega frábær
og Ringo flottur trommari, en framlínan
er horfin. Er hægt að ætlast til þess að
gítarleikari og söngvari þeirrar slæmu
sveitar Smokie leysi annan snillinginn
af, Ítalinn Lucia Battisti hinn og
skemmtunin verði jafn áhugaverð og
mögnuð og áður hafði verið reiknað
með? Vitaskuld ekki.
Rauða liðið frá Bítlaborginni, Liver-
pool, er í vanda statt þessa dagana.
„Lennon“ og „McCartney“ eru báðir
fjarri góðu gamni; Luiz Suárez farinn til
frambúðar en Daniel Sturridge á sjúkra-
listanum. Suárez gerði 31 mark í deild-
inni í fyrra, Sturridge 21. Suárez var
bestur allra. Hann skoraði fleiri mörk að
meðaltali í leik en nokkur annar í sögu
úrvalsdeildarinnar á einni leiktíð; fleiri
en Shearer, Ronaldo, Drogba …
Vitað mál er að „McCartney“ nær sér
af veikindunum: Sturridge snýr sem
sagt aftur en liðið sem heillaði heims-
byggðina í fyrravetur er aðeins svipur
hjá sjón. Frábær sóknarleikur kom þá í
veg fyrir að fjöldinn áttaði sig á því hve
MEIRA
EN BARA
LEIKUR
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Lennon og McCartney
eða söngvari Smokie?
Suárez LambertBalotelli Sturridge
Ásgeir ÖrnHall-
grímsson, leik-
maður Nimes í
Frakklandi, er
ekki í lands-
liðshóp Íslands í
handbolta sem
tilkynntur var í
gær fyrir leikina
gegn Ísrael 29. október og Svart-
fjallalandi 2. nóvember í und-
ankeppni Evrópumótsins 2016. Ás-
geir gaf ekki kost á sér í hópinn af
persónulegum ástæðum.
Allir aðrir leikmenn sem AronKristjánsson, landsliðsþjálfari
Íslands, falaðist eftir í landsliðshóp-
inn gáfu kost á sér. Nær allir eru
fastamenn í íslenska landsliðinu að
undanskildum Björgvini Þór Hólm-
geirssyni, skyttu úr ÍR sem á aðeins
að baki einn A-landsleik.
Björgvin semer 27 ára,
hefur farið á kost-
um með ÍR í upp-
hafi Íslandsmóts-
ins í handbolta og
skorað 46 mörk í
fimm leikjum, eða
að meðaltali 9,2
mörk í leik með
ÍR í Olís-deildinni, en ÍR-ingar eru í
2. sæti með 8 stig.
Auk Ísraels og Svarfjallalands erÍsland í riðli með Serbum, en
öll liðin leika innbyrðis heima og að
heiman og komast tvö efstu lið riðils-
ins í lokakeppni EM 2016 í Póllandi.
Fólk sport@mbl.is