Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2014 Yfirmatreiðslumaður óskast til starfa Helstu verkefni og ábyrgð: Yfirmatreiðslumaður ber ábyrgð á rekstri eldhússins, þar með talið innkaupum og vinnuskipulagi starfsmanna. Verkefnin eru fjölbreytt en auk þess að matreiða hádegisverð og kvöldverð hefur matreiðslumaður yfirumsjón með morgunverði í samráði við hótelstjóra. Yfirmatreiðslumaður er einnig virkur þátttakandi í fundum og ýmsum öðrum viðburðum þar sem matur og kaffiveitingar koma við sögu. Vinnutími er samningsatriði. Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk. Hæfniskröfur: • Menntun á sviði matreiðslu nauðsynleg . Reynsla í stjórnun eldhúsa er æskileg . Áhugi á fjölbreyttri og hollri matargerð . Góð framkoma og rík þjónustulund . Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum . Snyrtimennska áskilin REYK JAVÍK NATURA REYK JAVÍK MARINA í KEFLAVÍK FLÚÐIR VÍK KLAUSTUR HÉRAÐ AKUREYRI HAMAR Icelandair hótel Klaustur rúmar 150 manns í sæti og er rómað fyrir fjölbreyttan mat og frábæra þjónustu. Hótelið er fallega staðsett mitt í einstakri náttúrufegurð Suðurlands en Kirkjubæjarklaustur er líka annálað fyrir veðurblíðu og þar er öll þjónusta innan seilingar. Nánari upplýsingar veitir : Sveinn Jensson í síma 487 4900 virka daga kl. 10-17. Glugga og hurða- smiðja SB ehf Óskum eftir að ráða smið eða mann vanan tölvustýrðum vélum í vélasal okkar. Eins vantar okkur starfsmann í málningar- deild og samsetningu og frágang glugga og hurða. Uppl. gefur Jónas Sigurðsson. Glugga og hurðasmiðja SB ehf. Hvaleyrarbraut 39 220 Hafnarfjörður Sími 565-4151 www.sbgluggar.is ATVINNUVEGA- OG NÝSKÖPUNARRÁÐUNEYTI Starf sérfræðings í fjármálum á skrifstofu fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er laust til umsóknar starf sérfræðings í fjármálum á skrifstofu fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu. Starfið lýtur að vinnu við tillögur að skiptingu fjárhagsramma ráðuneytisins og umsjón með fjárlagavinnu stofnana, eftirfylgni með áætlanagerð og samningum ásamt rekstrarlegu eftirliti. Undir skrifstofuna heyra mál sem lúta að rekstri ráðuneytisins, mannauðsmálum, skjalavistun og miðlun upplýsinga auk þess sem skrifstofan veitir fagskrifstofum ráðuneytisins stoðþjónustu. Þá fer skrifstofan með skiptingu á fjárhagsramma ráðuneytisins og annast framkvæmd og eftirfylgni fjárlaga. Helstu verkefni á sviði rekstrar og fjárlaga  Þátttaka í fjárlagagerð.  Vinna við afstemmingar og uppgjör á bókhaldi ráðuneytisins og eftirfylgni með uppgjörum stofnana þess.  Vinna við áætlanagerð ráðuneytisins.  Eftirfylgni með áætlanagerðum stofnana ráðuneytisins.  Eftirfylgni með samningum. Menntunar- og hæfniskröfur  Viðskiptafræði eða sambærileg menntun. Framhaldsmenntun er kostur.  Reynsla af fjármálum og áætlanagerð. Gerð er krafa um að lágmarki 3ja-5 ára reynslu.  Góð þekking á uppgjöri og bókhaldi er nauðsynleg.  Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er æskileg.  Gott vald á excel er skilyrði og þekking á bókhaldskerfi ríkisins kostur.  Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku nauðsynleg.  Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg.  Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.  Hæfni í mannlegum samskiptum. Starfið er laust og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um fullt starf er að ræða. Laun taka mið af kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gísladóttir skrifstofustjóri (gudrun.gisladottir@anr.is). Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2014 og skal umsóknum skilað á netfang atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, postur@anr.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum nr. 464/1996 sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2014 og skulu umsóknir sendar til Öldrunarráðs Íslands, Hrafnistu við Laugarás, 104 Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Pétur Magnússon, formaður stjórnar Öldrunarráðs. Fyrirspurnir sendist á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is Stjórn Öldrunarráðs Íslands Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins: Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.