Morgunblaðið - 04.11.2014, Page 1

Morgunblaðið - 04.11.2014, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014 BÍLAR Reynsluakstur Fimmtíu ára afmælisútgáfa af hin- um sívinsæla sportbíl, Ford Mustang, var prófuð á dögunum. Allt er nýtt í bílnum og útkoman með eindæmum áhugaverð. Þrjár vélargerðir standa kaupendum til boða en 435 hestafla GT V8 var tekinn til reynslu hér. »4 MAX er mættur! Öflugir radarvarar frá ESCORT Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is Þ að er skammt stórra högga á milli hjá íslensk- um torfæruökumönnum. Í síðustu viku sögðum við frá góðum árangri Kára Jónssonar á Ironman GNCC-keppninni í Bandaríkjunum en um þessa helgi var það Ragnar Ingi Stefánsson, nífaldur Íslandsmeistari í motoc- ross, sem kom, sá og sigraði. Ragnar fór utan til að keppa í World Vet-keppninni á hinni marg- rómuðu Glen Helen-keppnisbraut og gerði sér lítið fyrir og vann keppnina á laugardeginum í tveimur flokkum, 45+ Expert og 50+ Expert. Í keppninni eru þrír getuflokkar og er Expert- flokkurinn fyrir þá bestu, en alls kepptu menn frá yfir 30 löndum hvaðanæva úr heiminum. Ein erfiðasta braut í heimi Ragnar Ingi keppti að sjálfsögðu á glænýju Kawasaki-hjóli enda er Ragnar Ingi framkvæmdastjóri Nítró sem er umboðsaðili Kawa- saki á Íslandi. Blaðamaður Morg- unblaðsins sló á þráðinn til Ragn- ars Inga og truflaði hann aðeins við að gera sig ferðbúinn til heim- ferðar. Ragnar Ingi sagði að heimsmeistarakeppni hefði verið haldin á Glen Helen-brautinni síð- an 1991 og þykir mjög erfið braut. „Í henni eru alveg svakalegar brekkur og beygjur, en auk þess er hún mjög gróf og þykir ein erf- iðasta braut í heimi. Ég hef sjaldan komið á jafn miklum hraða inn í beygju eins og þarna, kom í fimmta í fyrstu stóru beygjuna sem þýðir að ég hef verið á um 120 km hraða. Það var sérstakur fílingur að vera fremstur í þessari beygju með hina organdi fyrir aft- an sig,“ sagði Ragnar Ingi og hló. „Það rigndi eins og hellt væri úr fötu á laugardag, en það gerist að- eins örsjaldan á þessum stað og var því frekar óvenjulegt. Ég græddi á því að vera vanur að keppa við erfiðarar aðstæður á Ís- landi. Keppninni var frestað tvisv- ar um morguninn meðan reynt var að koma brautinni í lag með jarð- ýtum. Brautin varð fljótt skorin og erfið yfirferðar og ef menn pöss- uðu sig ekki á að halda línu voru þeir fljótt úr leik,“ sagði Ragnar Ingi ennfremur. Aðstæður voru betri á sunnudeginum en þá gekk Ragnari Inga ekki eins vel. „Ég lenti í samstuði við nokkra sem höfðu dottið og beyglaði fram- bremsudisk sem þýddi að ég gat lítið notað frambremsuna þann daginn.“ Þegar upp var staðið eftir helgina hafði Ragnar Ingi haft sig- ur í þremur motoum, fjórði í einu og sjötti í öðru. Ragnar vildi að lokum koma á framfæri þökkum til Pepsi MAX, World Class, Nítró og KG Racing fyrir að gera honum ferðina á þessa keppni mögulega. njall@mbl.is World Vet-keppnin á Glen Helen 2014 Ragnar Ingi heimsmeistari öldunga Ragnari Inga gekk vel í startinu og hér má sjá hann fyrir miðjum hóp á hjóli með keppn- isnúmerið 0. Brautin þykir sérlega erfið og gott start getur gert gæfumuninn í keppni. Ragnar Ingi sést hér fyrir miðjum hóp í hröðu beygjunni þar sem keppendur koma inn í fimmta gír á fullri gjöf. Ragnar gaf ekkert eftir og stóð uppi sem heimsmeistari í sínum flokki. Morgunblaðið/Karl Gunnlaugsson Ragnar Ingi á spjalli við annan keppanda rétt fyrir keppni. Ragnar Ingi í stökki í miðri keppni á sunnudeginum en þá hafði veðrið skánað mikið og var hætt að rigna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.