Morgunblaðið - 04.11.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.11.2014, Qupperneq 2
Hætt verður að smíða Honda Ac- cord í byrjun næsta árs en Honda hefur ákveðið að láta módel þetta renna sitt skeið. Með því að leggja Accord áform- ar Honda að einbeita sér heldur að smíði, þróun og sölu mód- elanna CR-V, Civic og Jazz. Hætt verður smíði Evrópuútgáfunnar af Accord í febrúar 2015 og mód- elið mun hverfa af öðrum mörk- uðum. Nýjasta kynslóð Honda Accord sá dagsins ljós árið 2008 en nokkrar mismunandi útgáfur Hondabíla ganga undir nafninu Accord á mismunandi mörk- uðum. Í Bandaríkjunum er útgáfa af Accord seld undir nafninu Ac- ura og er borið meira í þann bíl en grunnbílinn auk þess sem hann er ögn stærri. Vel gengur að selja Acura vestanhafs og verður smíði þessa bíls því haldið áfram. Accord hefur verið vinsæll bíll á Íslandi Honda Accord-tvinnbíll af árgerðinni 2014. Honda Accord látin deyja út Bíleigendum býðst nú að nálgast handhæga lyklakippu með mynst- ursdýptarmæli án endurgjalds á næstu skoðunarstöð Aðalskoð- unar. Kippan auðveldar þeim að tryggja að þeir uppfylli ákvæði nýrrar reglu- gerðar um mynst- ursdýpt bíl- dekkja, að því er segir í til- kynningu. 3,0 mm mynstursdýpt lágmark Reglugerðin sem um ræðir tók gildi þann 1. nóvember. Nú þurfa hjólbarðar bifreiða að hafa að lág- marki 3,0 mm mynstursdýpt yfir vetrartímann (1. nóvember til 14. apríl). Yfir sumartímann þurfa hjólbarðar að hafa að lágmarki 1,6 mm mynstursdýpt. „Við leggjum áherslu á að bif- reiðaskoðun snúist um svo miklu meira en bílinn, hún snýst um að tryggja öryggi þeirra sem í bílnum eru. Dekkin eru eini snertiflötur bílanna við götuna og því lyk- ilatriði að þau séu í lagi,“ segir Bergur Helgason, framkvæmda- stjóri Aðalskoðunar. „Það getur reynst snúið að mæla mynst- ursdýptina, en með þessari nýju kippu er það leikur einn. Á henni eru líka upplýsingar um lágmarks- mynstursdýpt bæði að sumri og vetri. Ég hvet bíleigendur til að nálgast kippu á skoðunarstöðvum okkar á meðan birgðir endast“. Á eftirfarandi skoðunarstöðvum Aðalskoðunar má nálgast lykla- kippurnar: Hjallahraun 4, Hafnarfirði Skeifan 5, Reykjavík Grjótháls 10, Reykjavík Skemmuvegur 6, Kópavogi Holtsgata 52, Reykjanesbæ jonagnar@mbl.is Eru dekkin á vetur setjandi? Aðalskoðun gefur mynsturs- dýptarmæla MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014 2 BÍLAR Hugtakið „ofurbíll“ er iðulega tengt við tryllitæki frá Evrópu, á borð við Bugatti Veyron, Lamborghini Re- ventón og McLaren MP4. En nú hafa röskir menn vestanhafs leyst úr læðingi slíkt óargadýr að evr- ópsku bílarnir munu mega hafa sig alla við, eigi þeir að sitja áfram einir að téðri nafnbót ofurbíla. Tvö þúsund truntur til taks Fyrirtækið sem um ræðir kallast Trion SuperCars og þar á bæ eru menn ekki að grínast með far- artæki þau sem í framleiðslu eru. Sem dæmi má nefna módel að nafni Trion Nemesis RR, sem er handsmíðað tryllitæki frá a til ö. Líklega þarf einhver veigameiri réttindi en rétt og slétt ökupróf til að aka bílnum og er þá átt við eitt- hvað í áttina að flugréttindum á orrustuþotu. Umræddur bíll er nefnilega búinn vél sem skilar 2.000 hestöflum (já, þú last rétt – tvö þúsund!) og knýr mótorinn sá bílinn í 100 km/klst. á 2,8 sek- úndum. RR týpan er sú öflugasta en aðrar gerðir eru á bilinu 1.000- 1.400 hestöfl, sem er ekki svo amalegt út af fyrir sig. Eins og bíl- arnir séu ekki nógu æsilegir eins og er þá má fá þá í útfærslu sem fram- leiðandinn kýs að kalla „Predator Mode“ þar sem lýsing innandyra, hæðin, fjöðrun, púst og fleira er uppfært enn frekar. Merkilegt nokk þá er farang- ursrými til staðar í bílnum sem á að rúma farangur allt að golfsetti að stærð, svo hér hefur verið hugsað fyrir tómstundum í bland við flug- akstur. Ekki svo lítið afrek það. jonagnar@mbl.is Er hægt að tjónka við 2.000 hestöfl? Innanstokks er allt með naumhyggjulegum framtíðarbrag, vægast sagt. Ekk veitir af því að skjóta upp vindskeið þegar 2000 hestöfl eru þanin. Ofurbíll frá Ameríku Óhætt er að segja að Trion Nemesis RR er í meira lagi vígalegur bíll að sjá. Sala á nýjum fólksbílum í nýliðn- um október jókst um 18% miðað við október fyrir ári. Nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 84 fleiri en í fyrra, eða 551 á móti 467. Samtals hafa verið skráðir 8.720 fólksbílar á fyrstu 10 mán- uðum ársins og er það 29,8% aukning frá fyrra ári. Í tilkynn- ingu um bílasöluna í október seg- ir Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Bílgreinasambandsins, að aukningin í sölu á nýjum bílum sé komin fram úr þeim væntingum er áætlað var í upphafi árs. Aukn- inguna má rekja að stórum hluta til endurnýjunar á fjölskyldu- og atvinnubílum en þörfin á endur- nýjun var orðin brýn þar sem meðalaldur bíla er hár, segir Özur. Salan í ár er 29,8% meiri en í fyrra. 18% aukning í nýskráning- um fólksbíla í október

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.