Morgunblaðið - 04.11.2014, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014
4 BÍLAR
Þ
að var einstakur heiður að
vera boðið í höfuðstöðvar
Ford fyrr í þessum mán-
uði og sömuleiðis að fá
að reynsluaka fimmtíu ára afmæl-
isútgáfu af Ford Mustang.
Blaðamaður var þar staddur
ásamt öðrum meðlimum dóm-
nefndarinnar WWCOTY (Women’s
World Car of the Year) og var vel
við hæfi að líta inn hjá Ford í Dear-
born í Michigan þar sem Ford
Fiesta 1.0 L. Eco-Boost var valinn
bíll ársins á síðasta ári.
Þrjár gerðir véla
Sjötta kynslóð Ford Mustang er
sú sem hér var til prófunar og var
frábært að fá að aka amerískum
bíl í beinskiptri útfærslu. Ford
Mustang 2015 verður fáanlegur
með þremur mismunandi vélum
og allar gerðir fást bæði með sjálf-
skiptingu og beinskiptingu. Fyrst
ber að nefna 2.3 L EcoBoost sem
er fjögurra strokka og skilar 310
hestöflum. Sá bíll mun vera með
eindæmum sparneytinn í saman-
burði við ameríska dreka í svip-
uðum flokki. Hægt er að aka um
32-33 mílur á galloni af bensíni
sem samsvarar um 8,5 lítrum á
hverja 100 kílómetra. Þó svo að
þessar tölur þyki ótrúlegar í
Bandaríkjunum koma þær okkur
eflaust öðruvísi fyrir sjónir.
Þegar bílablaðamaður fær loks
að prófa Ford Mustang 2015, sem
er hreinasti unaður, þá er ekki
hægt að verja mörgum línum í
eyðslutölur. Það bara má ekki og
því fer ekki meira púður í það!
Næsta gerð vélar er 3.7 L 300
hestafla V6 en sú vélargerð sem
undirrituð varð þeirrar ánægju að-
njótandi að prófa var 5.0 L Coyote,
435 hestafla V8-vél. Ó já, það var
gaman! Og hljóðið. Maður lifandi!
Það var einstaklega fagurt, rétt
eins og tónlist í mínum eyrum.
Á að vera skemmtilegur
Það var með eindæmum áhuga-
vert og fræðandi að hitta fólkið
sem hannaði þennan Mustang.
Yfirverkfræðingur yfir framleiðslu
þessa Mustangs, Tom Barnes, hef-
ur unnið að framleiðslu Mustang í
12 ár. „Við höfum selt yfir níu millj-
ónir bíla og hugmyndin að baki
þessum bíl hefur alltaf verið sú að
hann sé skemmtilegur og að öku-
maðurinn skemmti sér. Samt sem
áður viljum við líka að hann geti
verið bíll til daglegrar notkunar og
að hann sé hentugur. Þessum bíl á
að aka með bros á vör og það á að
vera hægt að koma barnabíl-
stólum fyrir í aftursætunum,“ seg-
ir hann. Það er líka hægt að koma
golfsettum fyrir í farangursrýminu,
vandræðalaust. Hugmyndafræðin
sem verkfræðingurinn lýsir end-
urspeglast í hönnuninni og það er
ánægjulegt að sjá að ætl-
unarverkið hefur tekist!
Mustang 2015 er sá öruggasti af
þeim kynslóðum bílsins sem fram-
leiddar hafa verið. Það var mark-
miðið með framleiðslunni þegar
hafist var handa fyrir fjórum árum
að framleiða betri Mustang en
nokkurn tíma og eftir því sem
næst verður komist þykir mönnum
útkoman stórkostleg.
Hið örsmáa og hárfína
Nú kunna menn að halda að
undirrituð sé í sæluvímu eftir akst-
urinn og sjái hlutina ekki í réttu
ljósi, svo ægilegir séu gullhamr-
arnir. Þannig er nú að mikið hefur
verið lagt í þessa afmælisútgáfu
og sem betur fer er það vel vandað
til verks að hampa má bílnum eins
og hér er gert. Til dæmis er hvert
smáatriði, áferð og efnisval þaul-
hugsað. Þannig að meira að segja
fólk eins og ég tekur eftir atriðum
á borð við hvernig álið er burstað í
kringum hanskahólfið.
Nýjungar í afmælisbílnum
Í raun er allt nýtt við þessa sjöttu
kynslóð Mustang. Margt hefur ver-
ið þróað út frá sérútgáfunni af
Mustang Boss 302 sem kom árið
2012.
Vélarnar eru nýjar og það sama
á við um fjöðrunina en ný sjálfstæð
afturfjöðrun var hönnuð sér-
staklega fyrir þennan bíl. Það er
ljómandi gott því í síðustu kynslóð
man ég eftir að mér leið örlítið eins
Malín Brand reynsluekur Ford Mustang GT 2015
Goðsögnin endurfædd
Eftir fjögurra ára þrotlausa vinnu leit fimmtíu ára afmælisútgáfan dagsins ljós ogGræni liturinn er í anda Bullitt-bílsins og er hér endurvakinn.
Framljósin sýna örlítið grimman
svip villidýrsins sem undir býr.Sérstakt rými hjá Ford þar sem lakk bílsins og allir fletir eru birtuprófaðir.
Sjötta kynslóð Ford Mustang er bæði sú öruggasta og sparneyt-
nasta frá upphafi. Þrjár ólíkar vélargerðir eru fáanlegar og þar á
meðal er 2.3 lítra EcoBoost-vélin sem skilar 310 hestöflum.