Morgunblaðið - 04.11.2014, Síða 5

Morgunblaðið - 04.11.2014, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014 BÍLAR 5 og ég sæti á dúandi svampköku. Í V8-bílnum er fjöðrunin skemmti- lega stíf, vilji maður hafa hana þannig. Það hlýtur að teljast kost- ur að geta haft hjólin fjögur öll á götunni samtímis, ekki satt? Líka þegar ökumaður er að leika sér. Enn ein nýjungin í þessum bíl er svokölluð „knee airbag protection“ en það er loftpúði sem blæs út undan hanskahólfinu, tímanlega áður en hnéskeljar farþegans skella á plastinu. Nú kann maður að spyrja hvers vegna í ósköp- unum menn hafi eytt púðri í þá nýj- ung? Fyrir því er góð og gild ástæða sem ég fékk góðar útskýr- ingar á hjá Sean West, hugmynda- smiði púðans. Í 18 ríkjum Banda- ríkjanna er ekki refsivert að aka um án öryggisbeltis. Árið 2013 var þó áætlað að um 87% bílstjóra notuðu bílbelti í Bandaríkjunum. Þetta kemur okkur sennilega spánskt fyrir sjónir þar sem fæst- um dytti í hug að aka af stað óspenntum. En þar ytra þarf líka að hugsa um þau 13% ökumanna og farþega þeirra sem ekki nota bílbelti og þar kemur loftpúði West til sögunnar. Niðurstöður Á heildina litið er 50 ára afmæl- isútgáfan og sjötta kynslóð Ford Mustang einkar vel gerð og ekki annað hægt að segja en að gott skipulag og samvinna ólíkra teyma hafi skilað þessum árangri. Goðsögnin, Ford Mustang, er endurfædd og er sú endurfæðing sérlega mikið ánægjuefni fyrir unnendur þessa bíls. Það er líka ljóst að í höfuðstöðvum Ford er ríkari áhersla lögð á umhverfis- þáttinn en áður hefur þekkst í landi bílarisanna. Þó svo að sú út- gáfa bílsins sem hér var prófuð mengi mikið og eyði töluverðu þá er EcoBoost-vélin skynsamlegur kostur fyrir þá sem kjósa til- tölulega umhverfisvænan sportbíl. Ómögulegt er að gera fram- leiðsluferlinu öllu skil í einni grein og því verður nánar fjallað um fleiri hliðar hönnunar sjöttu kynslóðar Mustang í bílablaðinu á næstu vik- um. Meðal annars verður birt við- tal við Kemal Curic sem á heið- urinn af ytri hönnun bílsins og Doyle Letson sem hannaði innan- rýmið. malin@mbl.is g má með sanni segja að mikið hafi verið lagt í gripinn. Afturljósin halla skemmtilega og athygli vekur að hvergi stendur „Must- ang“ eða „Ford“ á bílnum. Hestinn, tákn Mustang, þekkja líka flestir. Að innan á hönnunin að minna á flugstjórnarklefa og hraðamælirinn sýn- ir meðal annars „ground speed“ til að undirstrika það. Fjölskyldusvipurinn leynir sér ekki og Mustang er alltaf Mustang. Ford Mustang GTV8 Árgerð 2015 • 18 tommastálfelgur • Eiginþyngdkg: 1.680bsk • Farangursrými: 383 lítrar • 0-100km/sek:4,5 •Hámark: 264km/klst •Afturhjóladrif •Verð: Frá$32.925 í Bandaríkjunum • 12,4l/100kmíblakstri • Umboð:Hægtaðpanta hjáBrimborg •Mengunargildi: 385gCO2/km •5,0 lítraV8 • 435hestöfl • 6gírabeinskiptur Morgunblaðið/Malín Brand

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.