Morgunblaðið - 04.11.2014, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014
6 BÍLAR
Það bar til tíðinda í mánuðinum
að Fiat Chrysler samsteypan
flutti aðalskráningu sína á hluta-
bréfamarkaði frá Mílanó og til
New York, að eigin sögn í þeim
tilgangi að laða að enn frekari
fjárfestingu. Af því tilefni raðaði
samsteypan úrvali af bílum sín-
um upp fyrir framan kauphöllina
í New York (NYSE) þann 13.
október sl. Nokkur hækkun varð
á hlutabréfunum fyrst um sinn
og vonuðust stjórnendur til þess
að sú hækkun fæli í sér fyrirheit
um það sem koma skyldi.
Margt glæsilegra bifreiða
Það er vitaskuld viðeigandi að
röðum glæsivagna sé stillt upp í
þessu höfuðvígi Mammons, Wall
Street, og enginn vakti meiri at-
hygli en ofursportbíllinn Ferrari
LaFerrari.
Má því segja að fyrirtækið hafi
fengið skínandi góða auglýsingu
úti á götu um leið og helstu
stjórnendurnir, forstjórinn Ser-
gio Marchionne og stjórn-
arformaðurinn John Elkann,
hringdu inn viðskipti dagsins
innandyra með bjöllunni víð-
frægu í tilefni af skráningu fé-
lagsins á NYSE.
Áhugasömum fjárfestum má
benda á að fyrirtækið er skráð á
NYSE undir markinu FCAU, fyrir
Fiat Chrysler Automobile.
jonagnar@mbl.is
Lúxusvögnum stillt upp á Manhattan
LaFerrari á
Wall Street
Bílum frá Fiat Chrysler var raðað upp fyrir framan kauphöllina á Wall Street í New York. Dýrasta djásnið var
rauði draumurinn sem er hér í forgrunni.
Bandaríski íhlutasmiðurinn Vis-
teon hefur þróað mælaborð sem
gerir ökumönnum kleift að stjórna
ýmsum aðgerðum með augna- og
höfuðhreyfingum.
HMeye hefur hugmynd þessi
verið nefnd en að mestu er nýjung
þessi á hugmyndastigi enn sem
komið er.
Hún mun gera ökumönnum
kleift að hafa hendurnar öllum
stundum á stýrinu en kveikja á
sama tíma á útvarpinu, loftræst-
ingunni og jafnvel gervihnattaleið-
sögutækjum með augunum einum
saman.
Litlar myndavélar fylgjast með
hreyfingum augna og höfuðs en
slíkar myndavélar eru þegar í
nokkrum bílmódelum til að mæla
eftirtekt og athygli ökumanna und-
ir stýri, svo sem í Lexus, svo ein-
hverjar bílgerðir séu nefndar.
Tæknin er því ekki eins fram-
úrstefnuleg og fjarlæg og virðast
kann.
„Starandi augnaráðsneminn og
stýrishreyfingar gefa hraða svör-
un,“ segir yfirmaður nýsköp-
unardeildar, einn af uppfinn-
ingamönnum Visteon.
Og bætir við, að nýja mæla-
borðið geti stuðlað að auknu um-
ferðaröryggi með því að lágmarka í
viðbrögðum sínum augnhreyfingar
af veginum.
En hvað finnst ökumönnum um
þessa boðuðu augnstýring-
artækni? Visteon segist hafa kynnt
útgáfu af þessari hugmynd sinni
sérstöku úrtaki fólks. Niðurstaðan
var sú, að 81% sögðu stýringarnar
auðveldar í notkun og 78% sögðu
þennan nýjan búnað skemmti-
legan viðfangs.
Þekkt er að stórum hópi öku-
manna hefur þótt öll innbyggð
kerfi í bílum ofurflókin í notkun og
kvartað stórum undan því. Hér er
kannski að koma fram lausn sem
léttir þeim bæði lund og aksturinn.
agas@mbl.is
Visteon er að þróa mælaborð sem stýra má með augunum.
Stjórna bílnum með
hreyfingu augnanna
Einn stærsti bílavefur Bretlands
gagnrýnir umræðuna um nauðsyn
þess að reka gamalt fólk af veg-
unum og hvetur til hugarfarsbreyt-
ingar um það efni og nýrrar um-
ræðu um aldraða ökumenn.
Fólk yfir áttræðu, segir vefurinn
WeLoceAnyCar.com, elski bílinn
sinn, pæli mjög í að kaupa sér nýj-
an bíl, sé miklu öruggari ökumenn
en þeir yngri og sé sjálft í bestri að-
stöðu til að ákveða hvenær það
hætti akstri.
Um 13.000 manns hafa skrifað
umsögn um bíla á vefnum og veita
skrifin hrífandi innsýn í flestar
gerðir ökumanna; ungra, ríkra, fá-
tækra, djarfra og aldraðra. Eftir að
hafa greint ummælin var það nið-
urstaða vefjarins, að eftirfarandi
einkenndi ökumenn yfir áttræðu:
Tala oft um næsta bílinn sem
þeir hyggist kaupa, lofa núverandi
bíl sinn í samanburði við marga þá
fyrri, láta sér annt um afköst og
sparneytni, sýna einstökum bíl-
merkjum hollustu og láta bíla sína
endast lengur en gengur og gerist,
velja bíl vegna þæginda og auð-
velds aðgengis, setja ending-
artraust ofar öllu öðru, sjá bíl sem
tákn um aukið sjálfstæði sitt og
vita hvenær tími er kominn til að
hætta akstri.
Í stuttu máli þá eru eldri öku-
menn líkir flestum öðrum bíl-
stjórum en hafa bara miklu meiri
reynslu undir stýri en flestir.
Í Bretlandi eru 1.101.779 manns
yfir áttræðu með gildandi öku-
skírteini og þeir eru með hlutfalls-
lega færri refsipunkta á skírteinum
en aðrir aldurshópar. Aðeins 3%
ökumanna yfir áttræðu er með
virka refsipunkta en 10% öku-
manna á aldrinum 40 til 50 ára.
Þá skiptir engu hvaða mæli-
kvarðar eru brúkaðir; áttræðir
ökumenn og eldri koma sjaldnar
við sögu umferðarslysa og eru þar
af leiðandi öruggari ökumenn en
aðrir, segir talsmaður WeLoveA-
nyCar.com. „Í hvert einasta sinn
sem öldruð kona keyrir á bíl á bíla-
stæði stórmarkaðar sjáum við fyr-
irsagnir í fjölmiðlum þar sem þess
er krafist að gamla fólkinu verði
kippt af götunum. Það er bíræfin
óskammfeilni því þeir eru miklu
betri ökumenn en umfjöllunin gef-
ur tilefni til að halda,“ segir hann.
Í ummælum sínum á vefnum
geta hinir öldnu ökumenn oft um
aldur sinn. Væri sú tilvitnun tekin
út segir talsmaður vefjarins að
umfjöllun þeirra sé ekkert frá-
brugðin dómum hinna yngri.
„Ljóst er að mörgum eldri öku-
mönnum finnst þeir ekkert of
gamlir. Þeir líta á bílana sína sem
gagnlegt tæki í daglegum athöfn-
um sínum. Bílsmiðir og bílasalar
gerðu betur með því að láta ekki
sem þeir væru ekki til. Stað-
reyndin væri nefnilega sú, að stutt
verður í að áttræðir ökumenn og
eldri verði 10% allra akandi manna
á vegunum.
agas@mbl.is
Bílanautn á sér
engin aldursmörk
Gamla fólkið er öruggast í umferðinni og ekur best.
Lifandi verk eru hluti af verkefni
sem listamaðurinn Trina Merry í
Brooklyn í New York stendur fyrir
og kallast „Mannlega mót-
orhjólið“.
Merry hefur getið sér frægð
með því að mála mannslíkamann í
þágu listforma sinna. Fékk hún
nokkrar naktar konur til liðs við þá
tilraun sína að skapa eftirmynd af
tveggja hjóla vélfák.
Eftir að hafa málað þær „rað-
aði“ hún konunum saman svo að
niðurstaðan líktist sem best vél-
hjóli af gerðinni Ducati Panigale.
Terry segist hafa valið sex konur
með mismunandi sköpulag til að
Mannslíkami verður mótorhjól
Mannlega mótorhjólið Ducati Panigale. Ducati Panigale, fyrirmynd mannlega mótorhjólsins.