Morgunblaðið - 04.11.2014, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014
8 BÍLAR
Þ
ó að nokkrir mánuðir séu
liðnir síðan Þjóðverjar
tryggðu sér heimsmeist-
aratitilinn í fótbolta á
HM í Brasilíu má enn tryggja sér
eintak af Kia-bílum í svokallaðri
WCE-útfærslu (World Cup Edi-
tion). Þar sem Kia var einn helsti
bakhjarl mótsins sendi framleið-
andinn frá sér WCE-útgáfur af
Sportage, Cee’d og Carens.
Cee’d Sportswagon í heims-
meistaraútgáfu var tekinn til
kostanna og hann féll í kramið –
sem fjölskyldubíll. Nánar að því
síðar.
Staðalbúnaður og pláss
Það má WCE-útfærslan eiga að
það er hellingur af búnaði sem
fylgir með í kaupunum. Bæði á
það við um hreina öryggisþætti
(svo sem 6 loftpúða, ABS með
stöðugleikastýringu, þokuljós í
framstuðara og upphitaða
spegla), þægindi (hæðarstillingu
á bílstjórasæti, aðgerðastillingar í
stýri, fínasta aðgerðaskjá í mæla-
borði), lúxus (hita í stýri, leð-
urklæddan gírstangarhnúð) og
útlitsþætti (litað afturrúðugler,
króm kringum glugga og samlita
spegla, stuðara og hurðarhúna).
Bíllinn sem var prófaður er auk
þess af svokallaðri EX-gerð þar
sem stærri felgur, LED-ljós,
bakkskynjari og kæling í hanska-
hólfi bætast við staðalbúnað og
bíllinn því prýðlega dekkaður
hvað græjur varðar.
Það væsir því ekki um öku-
mann og farþega hvað búnaðinn
varðar og fjöðrunin er afar ljúf
svo aksturinn er í það heila
ánægjulegur. Í því sambandi
verður einnig að nefna að inn-
anrýmið er til stakrar fyr-
irmyndar. Nógu vel fer um öku-
mann og farþega í framsæti en
aftursætið er það sem kemur á
óvart. Þar komast þrír fullorðnir
vel fyrir, bæði hvað áhrærir sæt-
isbreidd og fótarými. Ef farþegar
í aftursæti eru þrjú börn er pláss-
ið svo yfrið nóg að við liggur lúx-
us. Farangursrýmið í skottinu er
líka gott svo bíllinn ætti að haka
við flesta reiti hjá fjölskyldufólki
sem er að leita sér að vel búnum
og rúmgóðum bíl. Þá er eldsneyt-
isnotkunin vel viðunandi fyrir bíl
af þessu tagi. Umboðið gefur upp
5,6 lítra á hundrað kílómetra í
blönduðum akstri, en 7,3 í innan-
bæjarakstri. Það er í takt við það
sem undirritaður fékk út.
Rangnefndur sportari
Það eina sem finna má að bíln-
um er að hann stendur satt að
segja ekki undir nafni sem
„SportsWagon“ – til þess vantar
hann einfaldlega afl. En það má
spyrja sig hvort hér hafi mark-
aðsdeild Kia ekki hlaupið á sig?
Bíllinn hefur nefnilega nánast allt
til að bera sem fjölskyldufólk leit-
ar að í skutbíl og þegar farmurinn
er jafn dýrmætur og blessuð
börnin er öryggi, búnaður, pláss
og þægindi það sem máli skiptir
og selur, en ekki hestöfl og kraft-
ur. Það á því ekki að koma að sök
þó að aflið sé af skornum
skammti og þessum bráðfallega
bíl er enginn greiði gerður með
því að búa til svo ríflegar falsvonir
hjá væntanlegum kaupendum.
Það er spurning hvort hann hefði
ekki einfaldlega átt að heita Esta-
teWagon? Kostir hans standa all-
tént undir því og þar með eru öll
loforð uppfyllt. Að því sögðu væri
ekki verra að hafa fáeina hesta í
viðbót undir húddinu en það er
tæpast úrslitaatriði þegar bíll af
þessu tagi er annars vegar. En
það er óþarfi að staðfæra hann
svo ranglega á markaði því það
gæti skapað vonbrigði að ósekju.
Loks er vert að hrósa Kia fyrir 7
ára ábyrgð. Það sýnir að fram-
leiðandinn hefur fulla trú á bíln-
um og gefur kaupendum hugarró
því sjö ár eru býsna langur tími í
þessu sambandi. Fyrir fjöl-
skyldufólk sem hefur annað að
gera við krónurnar en að dæla
þeim í dýrar viðgerðir þá er sjö
ára áhyggjuleysi kannski æskileg-
asti staðalbúnaðurinn.
jonagnar@mbl.is
Jón Agnar Ólason reynsluekur Kia Cee’d Sportswagon WCE
Morgunblaðið/Þórður
Kia Cee’d er hinn laglegasti að sjá, útlitið rennilegt og framendasvipurinn flottur. Rýmið innandyra er að sama skapi til fyrirmyndar.
HM-útgáfa
af Kia Cee’d
WCE-útfærslan af Kia Cee’d er vel búin og mælaborðið í píanósvörtum
sparifötum. Frágangur er allur til sóma og búnaður ekki amalegur.
Kia Cee’d SportswagonWCE Edition Árgerð 2015
• 16 tommaálfelgur
• Eiginþyngd: 1402kg.
•Farangursrými:528/1642L.
• 0-100km/sek: 11,6
•Hámark: 191 km/klst.
• Framhjóladrif
• Verð: 4.590.777kr.
• 5,6Lí bl.akstri
• Umboð:Askja
•Mengunargildi:
149gCO2/km
• 1,6Ldísilvél
• 128hestöfl
• 6þrepasjálfskipting
Plássið fyrir ökumann og farþega er hið fínasta og er með helstu kostum
Kia Cee’d Sportswagon. Framí sem afturí er gnægð rýmis á alla kanta.
Kostir: Staðalbúnaður,
pláss, 7 ára ábyrgð
Gallar: Vantar afl