Selfoss - 05.06.2014, Blaðsíða 14
14 5. júní 2014
Um Þingeyrarkirkju
Myndin sem við sýndum síðast var af Þingeyrarkirkju.
Þingeyrarkirkja var byggð á árunum 1909 - 1911 og vígð 9. apríl 1911. Áður stóðu
kirkja og prestsetur á Söndum í Þing-
eyrarhreppi og höfðu staðið þar frá
því snemma á 13. öld. Árið 1907,
þegar ljóst var að byggja þurfti nýja
kirkju, var ákveðið að færa kirkjuna
inn á Þingeyri, því að kauptúnið var
þá að byggjast upp og íbúar í sand-
asókn voru 618. Prestsetrið var flutt
til Þingeyrar árið 1915.
Rögnvaldur Ólafsson arkitekt og
húsameistari teiknaði Þingeyrar-
kirkju og er hún úr steini í gotnesk-
um stíl en að innan er hún prýdd
fögru tréverki. Rögnvaldur Ólafsson
var Dýrfirðingur og réð hann útliti
og staðsetningu kirkjunnar á kirkju-
lóðinni, sem Gramsverslun á Þing-
eyri gaf undir Kirkjubygginguna.
Kirkjuna lét arkitektinn snúa í norð-
ur og suður en ekki í austur og vestur
eins og viðtekin venja er og var hún
látin snúa svo sem hún gerir til að
bera vel við þeim sem koma af hafi
til Þingeyrar. Þingeyrarkirkja er vel
búin gripum.
Altaristöfluna málaði Þórarinn
B. Þorláksson, listmálari og sýnir
hún Krist sem situr úti í íslenskri
náttúru og hjá honum standa þrjár
telpur. Myndefnið er: Jesús blessar
börnin. Fyrirmyndirnar að telpunum
eru dætur málarans. Skírnarfontur
er útskorinn af Ríkharði Jónssyni,
myndskera. Hjónin Gréta Björns-
son listmálari og Jón Björnsson
málarameistari máluðu og skreyttu
kirkjuna með ýmsum trúarlegum
táknum árið 1961. Sandakirkja var
á kaþólskum tíma helguð heilögum
Nikulási og hefur listmálarinn mál-
að mynd hans hér í Þingeyrarkirkju
vinstra megin við altarið og Pétur
postula hægra megin. Þrír steindir
gluggar eru á korgafli eftir glerlista-
konuna Höllu Haraldsdóttur. Tvær
ljósastikur fornar á kirkjan frá árinu
1656 úr Sandakirkju og fleiri gripi
þaðan. Þá á Þingeyrarkirkja gripi
úr Hraunskirkju í Keldudal, sem er
aflögð. Frá upphafi hafa kirkjunni
borist fjölmargar góðar gjafir.
Í fjöldamörg ár var Ólafur Hjartar
móðurafi Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands, meðhjálpari í Þing-
eyrarkirkju. Á bernskuárum sínum
fylgdi Ólafur Ragnar afa sínum oft til
kirkju, en hann ólst upp að hluta til á
Þingeyri hjá móðurforeldrum sínum.
Til fróðleiks má geta þess að kirkj-
an á fagran altarisdúk, sem Svanhild-
ur Hjartar, móðir forsetans saumaði
og gaf kirkjunni.
Formaður sóknarnefndar er Sig-
ríður Helgadóttir og sóknarprestur
er séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir.
(Af vefnum: http:/ / www. thing-
eyri.is/ thingeyri/ thingeyrarkirkja/ )
Höfundur texta: Guðrún Edda
Gunnarsdóttir
Við hvetj um ykk ur til að
senda blað inu línu.
Láta vita af at burð um eða
vek ið at hygli á því sem vel fer
í sam fé lag inu.
Hó ið í okk ur. Skrif ið á
tor lak ur@fot spor.is eða
hring ið í síma 8942098.
10. maí 2012
3. tölublað 1. árgangur S U Ð U R L A N D
4 Foreldrar ánægðir með grunnskólana í Árborg 8-9 Samfélagið er ekki nógu gott foreldri 12 Afrískur að hætti hússins
FIMMTUDAGUR 19. maí 2011 7
Sími 512 5407
gunny@365.is arnarut@365.is sigurlaug@365.is
HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS
Málun bílastæða
Vélsópun
Malbiksviðgerðir
Bílastæðaskilti
Hellulagnir
5514000-www.verktak.is
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Sláttur
Heimapúttvellir
Fáið tilboð ykkur
að kostnaðarlausu!
577 4444
OSEA Öryggiskerfi
Vertu þinn eigin öryggisvörður
og áttu þitt eigið öryggiskerfi.
1 stk. hreyfiskynjari
1 stk. hurðaskynjari
2 stk. fjarstýringar
Tilboðsverð kr. 36.136
Dalvegi 16b s:554-2727
Vefhýsing og heimasíðugerð
Vefhýsing: 500MB þitt c-panel stjórnborð ótakmörkuð
e-mail og margt fleirra aðeins 1.000kr á mánuði.
Heimasíða: fullgerð og birt 48.000kr. (ATH verð án vsk.)
Bemar.is
Álhella 4
Til leigu Glæsileg 107 fm. 3ja herb. íbúð
í Grafarholti. 4. hæð, lyfta. Leigutími 1
ár eða lengur. Ásett leiguverð 150.000
Uppl. í s. 893 3985.
3j.herb 90fm við Teigasel 140þ og
40-80fm iðnaðarhús Smiðjuv.4a 100þ.
Mail:se1@internet.is
Húsnæði óskast
Óska eftir 4-5 herb íbúð
Óska eftir 4-5 herb. íbúð, helst á 108
svæðinu. Ef þig vantar leigendur sem
hugsa um eign þín sem sína eigin þá
erum við fjölskyldan. Toppmeðmæli.
Uppl. í s. 868 4904.
Sumarbústaðir
Framleiðum sumarhús, 20 ára reynsla,
sjá heimasíðu: sumarhus.com s. 615-
2500.
Geymsluhúsnæði
geymslur.com
Geymslur frá 3990.- kr á mán.
Í Garðabæ (hjá Ikea) og Reykjavík
(Fiskislóð) Upphitað, vaktað &
öryggismyndavélar. S. 555 3464.
www.geymslaeitt.is
Sér geymslur frá 4 til 17 m2. Lágt verð.
Opið 8-22. Búslóðir, lagerar, bókhald,
iðnaðarmenn. Upphitað og vaktað. S:
564-6500
Bílskúr
BÍLSKÚRSHURÐIR OG
OPNARAR
UPPSETNING, VIÐHALD, VIÐGERÐIR
30 ára reynsla.. Hringið í síma 892 7285
Gisting
Gisting í 2-3 manna stúdíóíbúð í
gistiheimili við Dugguvog. Verð frá
8.000 per nótt. S. 824 6692.
ATVINNA
Atvinna í boði
Óska eftir stýrimanni.
Vantar stýrimann á Valgerði BA45
skráningarnr. 2340. Í byrjun júní. Uppl.
í 893 1687 Óskar Gísla.
Vantar fólk í símasölu 2-5 kvöld
virka daga frá kl.17.30- 21.30. Góðir
tekjumöguleikar. Lágmarksaldur 20 ára.
Uppl. í síma 868 4551 eftir hádegi
virka daga.
Heildverslun
Öflugt heildsölufyrirtæki óskar
eftir að ráða sumarstarfsmann
í fullt starf við afgreiðslu,
pökkun og nótútskrift.
Lágmarksaldur 18 ár
Áhugasamir sendi
umsóknir / fyrirspurnir á
netfangið:
vinnukraftar@gmail.com
Vilt þú vinna mikið og hafa mikil laun.
Uppl. Einar 7732100 http://lrisland.
is/einar
Óska eftir vönum manni á hjólavél
sem getur séð um lóðafrágang og
hellulagnir og unnið sjálfstætt uppl:
896 1018 / byggben@simnet.is
Getum tekið nema á samning
í húsasmíði einnig ósakð eftir
verkamönnum í allskyns sumarstörf
896 1018 / byggben@simnet.is
Þríund óskar eftir að ráða
starfsmann til bar og umsjónastarfa.
Framtíðarstarf. Lágmarksaldur er 20
ár. Íslenskukunnátta skilyrði, Icelandic
skills required. Áhugasamir sendi
umsókn á thriund@simnet.is
Atvinna óskast
Rafvirkjanemi á fjórða ári óskar eftir
sumarstarfi. Vanur raflagnavinnu og
vinnu við þjónustu og sölustörf. Uppl.
s: 662 3616 eða fsrafmagn@visir.is
TILKYNNINGAR
Tapað - Fundið
Kisi minn Prinz týndist af heimili sínu í
Eskilhlíð aðfararnótt mánud. og er sárt
saknað. Grá/svart bröndóttur högni
með hvítar loppur, er gæfur og kelin
en var um sig gagnvart fólki í fyrstu.
Þorvaldur í s: 862-1184 Takk :)
Rauðri kerru með svörtum Polan Pro
Slátturtraktor og Partner sláttuvél var
stolið frá Dekkverk Garðabæ í nótt.
Fundarlaun. S 7779848
Tilkynningar
Við viljum hjálpa öðrum
Ef þú átt reiðhjól og notar það ekki og
vilt hjálpa öðrum þá getum við sótt
það til þín. Við munum gera við það og
nota til að styrkja þá sem þurfa á hjálp
að halda. Frekari upplýsingar hjá Birgi í
s. 849 9872.
Einkamál
Efnisala–Framleiðsla –Renniverkstæði – Stálsmíði – Landbúnaðartæki
GARÐATORGI 7 – 210 GARÐABÆ Sími : 545-0800 - fax : 545- 0801
gardatorg@gardatorg.is – www.gardatorg.is
Var úr sögn úr skóla skrif stof unni
sam þykkt með tveim ur at kvæð um á
bæj ar ráðs fundi í morg un (fimmtu dag)?
Svo kann að fara að úr sögn Ár borgar úr Skóla skrif stofu Suð ur lands verði end an lega sam þykkt með at
kvæð um tveggja full trúa af níu full trú um
sem sitja í bæj ar stjórn inni. Elfa Dögg
Þórð ar dótt ir, bæj ar full trúi meisri hluta
Sjálf stæð is manna er for mað ur Sam bands
sunn lenskra sveit ar manna og ekki sátt
við til lög una. Til að láta ekki sker ast í
odda gæti það orð ið henn ar út leið að vera
fjar ver andi á bæj ar ráðs fundi 10. maí (í
morg un).
Fari svo næg ir sjálf stæð is mönn um að
tveir full trú ar flokks ins greiði at kvæði á
bæj ar ráðs fund in um með til lögu um úr
sögn. Sitji Egg ert Valur, full trúi Sam fylk
ing ar inn ar, hjá á bæj ar ráðs fund in um er
til lag an end an lega sam þykkt. Bæj ar stjórn
mun þá ekki gera ann að en að sam þykkja
fund ar gerð bæj ar ráðs. Mæti Elfa Dögg
hins veg ar á bæj ar ráðs fund er erf itt fyr
ir hana að sam þykkja til lög una um úr
sögn. Komi til þess að hún greiði at kvæði
gegn kem ur það til kasta bæj ar stjórn ar að
kveða upp úr um úr sögn. Þar er lík legt að
meiri hluti sé tryggð ur – og at kvæði Elfu
Dagg ar muni ekki ráða bagga mun. Auk
henn ar hafa Arna full trúi Sam fylk ing ar
in ar og Andr és Ingi, full trúi VG, lýst yf ir
and stöðu við til lög una.
TAXÍ
TAXÍ í Hveragerði
5-8 manna bílar
Sími: 483-4200.
Sumarið byrjar á
pallinum við kaffi Krús
Mynd: ÞHH
EYRAVEGI 32 · SELFOSSI
SÍMI 480 1160
24. maí 2012
4. tölublað 1. árgangur S U Ð U R L A N D
2 Að ganga í takt 8-10 Átthagar okkar er jörðin 14 Á hennar höfuðbóli með hundi rak ég kýr
Efnisala–Framleiðsla –Renniverkstæði – Stálsmíði – Landbúnaðartæki
Sveitarfélagið Árborg, brosandi samfélag
www.arborg.is
Meiri hluti – eða ekki
Það er mál ið
Það marr aði í meiri hluta sam starf inu og það hef ur geng ið á ýmsu að styrkja meiri hlut ann í bæj ar stjórn
Ár borg ar. Sjálf stæð is flokk ur inn bauð
Fram sókn sl. föstu dag til sam starfs til að
breikka meiri hlut ann. Bæj ar full trú arn ir
reynd ust um boðs laus ir og voru rekn ir
heim eft ir fund í full trúa ráð inu morg un
inn eft ir, seg ir bæj ar full trúi Fram sókn ar.
Ekki boð legt að meiri hluta sam starf ið sé í
stór hættu reglu lega einu sinni á ári, seg ir
bæj ar full trúi Sam fylk ing ar inn ar.
Odd viti Sjálf stæð is flokks seg ir Dlist
ann hafa náð sam ræmdu göngu lagi.
Hvað gerð ist?
Sjá frétta skýr ingu á síðu 2.
Þekkirðu bæinn?
Um seiðbláar Súlur
Á setrinu sögufræga, Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, þjónaði á
síðustu öld skáldmæltur prestur, sr.
Sigurjón Guðjónsson og stundum
kemur organistum í hug að gott væri
að taka til söngs sálminn hans nr.
102. Hann hefst þannig:
Sem stormur hreki skörðótt ský
svo skunda burt vor ár.
Og árin koma ný og ný
með nýja gleði og tár.
Því stopult, hverfult er það allt
sem oss er léð, svo tæpt og valt
jafnt hraust og veikt og fé og fjör
það flýgur burt sem ör.
Þessi sálmur hæfir tímamótum eins
og reyndar öllum öðrum stundum og er
sannarlega ekki ofsunginn en fleiri ljóð
finnast eftir sr. Sigurjón í Saurbæ. Hann
vann að þýðingum og gaf út ljóðabók
með þýddum ljóðum meðan hann
var innan við þrítugt. Í Borgfirskum
ljóðum birtast löngu síðar nokkur ljóð
eftir hann, í einu þeirra litast hann um
af heimahlaði:
Að heiman
Sjá vil ég Súlur
seiðbláar, Hvalfell
Þyril, Þúfufell
og þrastasveim
sæla Saurbæjarhlíð
og signdan Vatnaskóg
horfa á fagran Fjörð
frá Hallgrímssteini.
Hlusta á huldumögn
helgrar náttúru.
Þakka Drottins dýrð
drúpa höfði
lyfta hjarta og hug
við heilagt bænamál.
Í öðrum sálmi, nr. 13, einnig við lag
eftir Sibelíus ávarpar höfundurinn Guð
og segir:
Á ferð ég er og fáráður ég spyr
við fótskör þína, krýp við þínar dyr.
Öll hugsun þín er hulin fyrir mér
hver hugsun mín er opin fyrir þér.
Hvað má því valda að þú minnist
mín svo mjög sem ég hef rofið boðin
þín.
Þegar sr. Sigurjón lést 1995 skrifaði
Ólafur Haukur Árnason eftirmæli og
segir þar:
„Séra Sigurjón Guðjónsson vann
ævistarf sitt á Hvalfjarðarströnd. Hann
var sóknarprestur í Saurbæ frá 1931 til
1966 og prófastur í Borgarfjarðarpró-
fastsdæmi frá 1946 til 1966. En þó að
hann léti af opinberu embætti hálfsjö-
tugur settist hann síður en svo í helgan
stein. Við tóku frjó starfsár og í raun-
inni lét hann ekki deigan síga fyrr en
hann var kominn vel yfir nírætt. Hann
rannsakaði sögu sálmakveðskapar og
mun margt markvert liggja eftir hann
á því sviði. En umfram allt sinnti hann
skáldskap og þýðingum með einstökum
ágætum og af stakri smekkvísi.“ Ingi
Heiðmar Jónsson
Úr Harð Haus (11)
Ingi Heiðmar jónsson
Altaristöfluna málaði Þórarinn B. Þor-
láksson, listmálari og sýnir hún Krist
sem situr úti í íslenskri náttúru og hjá
honum standa þrjár telpur.
Hafgríma heiðruð listaverðlaunum Ölfuss
Á setningu Hafnardaga í síðustu viku, voru Listaverðlaun Ölfuss
afhent í fyrsta skipti. Menningarnefnd
sveitarfélagsins óskaði eftir tilnefn-
ingum til verðlauna og valdi úr inn-
sendum tilnefningum. Fjölmargir
tilnefndu Hafdísi Hallgrímsdóttur,
myndlistarkonu og var ákveðið að
heiðra hana með verðlaunum. Hafdís
notar listamannsheitið „Hafgríma“ og
hefur alla tíð haft mjög gaman af að
teikna. Hún er fædd í Reykjavík árið
1953 og ólst upp á Seltjarnarnesinu.
Hún byrjaði ekki að mála myndir
fyrr en í kringum árið 2006 og ekki
af neinni alvöru fyrr en árið 2010.