Hafnarfjörður - Garðabær - 05.04.2013, Side 9
95. apríl 2013
Margrét Tryggvadóttir skrifar:
Af hverju Dögun?
Fyrir rúmum fjórum árum fór þjóðfélagið á hliðina. Við gættum ekki að okkur og
steyttum á skeri með hörmulegum
afleiðingum. Mörg okkar sjá ekki
enn fram úr brimsköflunum. Margir
hafa misst allt sitt, vinnuna, húsnæðið
og jafnvel lífsförunautinn. Og órétt-
lætið svíður. Öll berum við einhverja
ábyrgð. Þó voru það bara örfáir sem
áttu beinan þátt í að setja Ísland á
hausinn. En gleymum ekki hverjir
það voru. Glæpur okkar hinna var að
treysta og trúa þegar við hefðum átt
að spyrja gagnrýninna spurninga. Við
treystum stjórnvöldum. Við treystum
bönkunum, fjölmiðlunum og fræði-
mönnunum. Við trúðum lygunum.
Þegar allt hrundi ákvað ég að gera
allt sem í mínu valdi stæði til að laga
Ísland. Síðustu fjögur ár hef ég starfað
fyrir þjóðina á Alþingi og reynt að
vanda mig.
Dögun, ný stjórnmálasamtök
munu bjóða fram í komandi Alþing-
iskosningum. Meðal helstu stefnu-
mála okkar eru aðgerðir til handa
heimilum landsins. Leysa verður
skuldavanda þeirra með róttækum
hætti og bæta aðstöðumun almenn-
ings gagnvart fjármálavaldinu. Leita
skal lausna á forsendum lántakandans
frekar en lánveitandans. Við viljum
tafarlaust afnám verðtryggingar á
neytendalánum og almenna leið-
réttingu húsnæðislána. Þá viljum við
að lágmarks framfærsluviðmið verði
lögfest og að vextir í landinu verði
hóflegir. Og það er hægt, það sem
er ekki hægt er að búa við óbreytt
ástand.
Við viljum líka lýðræðisumbætur.
Núgildandi stjórnarskrá var skrifuð
fyrir 19. aldar Dani. Við erum 21.
aldar Íslendingar og okkur skortir
samfélagssáttmála sem kveður á um
réttindi okkar og skyldur stjórnvalda.
Og viljum breytta og sanngjarnari
skipan auðlindamála. Orkufyrirtæki
eiga að vera í eigu hins opinbera og
arðurinn af auðlindunum á að renna í
sameiginlega sjóði okkar allra. Stokka
þarf upp skipan fiskveiða og tryggja
atvinnufrelsi í greininni.
Dögun hefur á að skipa frábæru
fólki í öll sæti sem málefni almenn-
ings brenna á sem hefur hugrekki
og þor til að breyta. Við viljum búa í
réttlátu samfélagi, lausu við spillingu
og við ætlum að byggja það saman.
Nánari upplýsingar um frambjóð-
endur og stefnumálin er að finna á
www.xt.is.
Margrét Tryggvadóttir skipar
1. sæti á lista Dögunar
í Suðvesturkjördæmi
Hafnarborg:
Listamannsspjall með Daða
Guðbjörnssyni og hugleiðsla
Sunnudaginn 7. apríl tekur Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður þátt í leiðsögn og ræðir við gesti
um verk sín á samsýningunni Tilraun
til að beisla ljósið sem nýlega var opnuð
í Hafnarborg.
Titill sýningarinnar Tilraun til að
beisla ljósið er fenginn úr lýsingu Daða
á eigin listsköpun, en hér vísar ljósið
til andlegrar uppljómunar, leiðarljóss
og hughrifa. Sýningin hverfist um
myndlistina sem farveg fyrir and-
lega leit og upplifanir en hér eru sýnd
saman myndverk samtímalistamanna
og heilara. Í sýningunni er leitast við
að varpa ljósi á áhrif andlegra fræða á
myndlist og skoða snertifleti við mynd-
verk heilara
sem oft hafa
önnur mark-
mið en mynd-
listarleg við
gerð verka
sinna. Verkin
á sýningunni
eiga það öll sameiginlegt að vera unnin
af sterkri löngun til að myndgera and-
legar upplifanir og deila með áhorf-
endum. Á sýningunni mætast myndlist
og heilun og gefst sýningargestum færi
á að velta fyrir sér hugmyndafræði-
legum og fagurfræðilegum tengingum
listarinnar við hin andlegu svið.
Sýnendur eru Ásdís Sif Gunnars-
dóttir, Daði Guðbjörnsson, Erla Þórar-
insdóttir, Helga Sigurðardóttir, Helgi
Þórsson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Ingi-
björg Magnadóttir, Katrín Snæhólm
Baldursdóttir, Margrét Elíasdóttir,
Reynir Katrínar, Sigrún Olsen, Sig-
tryggur Berg Sigmarsson, Snorri Ás-
mundsson, Steingrímur Eyfjörð, Viðar
Aðalsteinsson og Þórey Eyþórsdóttir.
Í tengslum við listamannsspjallið
bjóða Daði og aðrir félagar frá Sahaja
Yoga á Íslandi upp á kynningu á Sahaja-
yoga hugleiðslu milli kl. 14 og 17. Um
er að ræða stutta kynningu á einfaldri
hugleiðsluaðferð Sahajayoga sem ætlað
er að stuðla að auknu andlegu og lík-
amlegu jafnvægi og vellíðan
Garðabær:
Nýtt hjúkrunarheimili á Sjálandi
verður opnað í dag, föstudag
Heimilið er allt hið glæsilegasta og þar eru 60 einstaklingsherbergi ásamt sameiginlegu rými og þjónustu. Heimilið er ein af stofnunum bæjar- ins og hefur fengið nafnið Hjúkr-unarheimilið Ísafold.
Hundurinn Píla vinnur fyrir matnum sínum:
Þefar upp meindýr
og gefur merki um
dvalarstað þeirra
Hundurinn Píla vinnur svo sannarlega fyrir mat sínum. Milli þess sem hún leikur
sér og hvílir lúin bein að hundasið
þá fer hún í vinnuna. Vinnan hennar
snýst um að finna meindýr, mýs og
rottur í húsum og hefur Píla einstakt
nef fyrir þeim hvimleiðu gestum.
Píla er tveggja ára blendingstík
af labrador og schäferkyni. Eigandi
hennar, Sigurður Ingi Sveinbjörns-
son, meindýraeyðir, ætlaði að þjálfa
hana til að finna geitungabú. Fljót-
lega kom í ljós að Pílu var afar illa
við geitungana og þeim enn verra við
hana svo það starf var fljótlega gefið
uppá bátinn.
Hæfileikar Pílu komu í ljós eitt
sinn þegar hún fékk að fylgja eiganda
sínum á vettvang þar sem talið er að
mýs hefðu hreiðrað um sig milli þilja
en óvíst nákvæmlega hvar. Hún þefaði
bæli músanna uppi með mikilli ná-
kvæmni svo ekki þurfti að rífa niður
nema afar takmarkaðan hluta af vegg
til að ná meindýrunum. Íbúar í við-
komandi húsi urðu afar ánægðir með
að sleppa svo billega en oft þarf að
rífa niður heilu veggina til að útrýma
vágestinum.
Í framhaldinu var Píla þjálfuð til að
bregðast við þeirri skipun að „finna
mús“. Þegar Píla kemur í hús og fer
að leita gengur hún afar skipulega
til verks og leitar kerfisbundið að
músinni. Þegar hún hefur fundið
staðinn gefur hún merki með því að
klóra á staðinn með ákafa og þá er
hægt að hefjast handa.
Eigandi Pílu segir hana hafa alltaf
rétt fyrir sér. Margir séu tortryggnir
í upphafi en það rjátlist fljótt af
mönnum þegar árangurinn kemur
í ljós. Hann segir að mjög mikið sé
af mús þennan veturinn. Sjálfsagt
hafi það eitthvað að segja að síðasta
sumar hafi verið afar gott og hagstætt
fyrir mýs sem skýri það að stofninn
fá því í sumar hafi verið óvenju stór
og mildur vetur sé kjöraðstæður fyrir
þær.
Píla fær alltaf harðfisk í verðlaun
að loknu góðu dagsverki sem er það
allra besta sem hún fær.
Margrét Tryggvadóttir.
Daði Guðbjörnsson.