Hafnarfjörður - Garðabær - 05.04.2013, Side 10

Hafnarfjörður - Garðabær - 05.04.2013, Side 10
10 5. apríl 2013 Það tekur allt tíma en láttu hvern einasta dag telja Með hækkandi sól og hita hleypur oft kapp í kinn. Nú á að taka kroppinn í gegn til að getað spókað sig um á léttum klæðum og njóta sín í góða veðrinu. Margir vilja koma sér í bikiníformið þ.e. geta verið á bikiníinu/sundskýl- unni og verið ánægðir með sig, hafa enga muffins toppa lekandi yfir brók- ina heldur stinna og spengilega vöðva sem sjást!! Já, kröfurnar eru miklar og vonir og væntingar líka. En það er í góðu lagi að vera með góðan ásetning og hafa stóra drauma. Draumar eiga það alveg til að rætast svo um munar. Það er alveg hægt að ná þessu, en það er vinna og það þarf að færa fórnir. Ef þér finnst þú þurfa að færa of miklar fórnir er spurning um hversu mikilvægt þetta er þér. Ef þú hefur áhuga á að komast í bikiníformið/sundskýluformið þarftu svo sannarlega að hysja upp um þig og byrja NÚNA. Það er enn tími en hann er að hlaupa frá þér. Þú verður líka að vilja fórna einhverju í núverandi lífsstíl til að komast þangað. Ef þú breytir ekki neinu breytist ekki neitt heldur. Fyrst er að byrja á að setja sér mark- mið. Hvert ertu að fara, hvert stefnir þú? Settu niður tölur á blað, skrifaðu þetta niður. Skrifaðu líka niður dag- setninguna sem þú vilt ná markmiði þínu. Það er betra að hafa raunhæf markmið svo vonbrigðin verði ekki mikil og brjóti niður sjálfstraustið. Það þarf líka að gera lista yfir þær breytingar sem þú þarft að gera á nú- verandi lífsstíl og vera tilbúin/n – sátt/ ur við að gera það sem þarf að gera. Listinn gæti verið eitthvað á þessa leið 1. Borða alltaf morgunmat. 2. Út- búa nesti. 3. Reikna með tíma til að elda. 4. Sleppa sælgæti og kökum. 5. Sleppa snakki og áfengi. 6. Hreyfa mig lágmark 3x í viku. 7. Undirbúa mig andlega fyrir áhlaup annara á mig. (Fólk á það til að skipta sér full mikið af því þegar einhver er að gera lífsstílsbreytingar og því er vissara að vera undirbúin/n). Þetta gætu verið eitthvað af atriðum sem þú þarft að hafa á listanum þínum og ótal önnur. Brjóttu markmið þitt niður í minni bita. Settu markmið fyrir hvern dag fyrir sig. Í dag ætla ég að drekka meira vatn en ég geri venjulega eða ég ætla ekki að borða sælgæti eða ég ætla að elda og skipuleggja næsta dag osfrv. Gerðu þetta samt á þann veg að þér takist að ná daglega markmiðinu þínu. Það er svo gaman að tikka við og segja, þetta gekk vel og var ekkert mál. Svona líða dagarnir einn af öðrum og ef óhemjan í þér kemur ekki upp á leiðinni ætti allt að ganga eðlilega fyrir sig. Kílóin trilla af, eitt í einu, þolið eykst, kroppurinn styrkjst osfrv hvað það er nú sem þú stefndir að. Vertu búin að gera þér grein fyrir því að það er ekkert sem gerist á einni nóttu!! Það tekur allt tíma en láttu hvern einasta dag telja. Það er ótrú- legt hvað tíminn líður hratt. 1,2,og 3 og mánuðurinn er liðinn. Þú vilt geta litið til baka með stolti og ánægju yfir því hve vel hefur tekist til og hve vel þú nýttir tímann þinn. Það er ekkert leiðinlegra en að „uppgötva“ að 4 vikur eru liðnar frá því þú settir þér markmið og þú ert enn að slást á sama staðnum af því að afsakanir og sjálfsblekking tóku yfirhöndina. Ef eitthvað er svekkjandi þá er það það!! Þú færð neikvæða upplifun á þér og brýtur sjálfstraustið niður fyrir þennan aumingjaskap yfir að hafa ekki getað staðið með þér í þetta skiptið. Það vantar ekki skammirnar á sjálfan sig!! Svo er annað mál. Það þurfa ekki allir að líta út eins og fitness módel eða vaxtarræktartröll. Ef þyngdin þín er á heilbrigðum stað miðað við hæð þína og þú ert í góðu formi er ekki þar með sagt að þú þurfir að hafa sixpack til að geta spókað þig um í bikiní eða á sundskýlunni. Heilsa og vellíðan ættu alltaf að vera í fyrsta sæti. Kær heilsukveðja, Sigga. Hafnarfjörður Garðabær Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.is. HEilSUáRiÐ 2013 MEÐ SiGGU í HRESS Sælkerafiskur allt árið -spennandi matreiðslubók er komin út Matreiðslubókin Sælkerafiskur allt árið kom nýlega út. Bókin er gefin út af Hafn- firðingnum Jóhannesi Þór Ævarssyni sem er eigandi fyrirtækisins Sælkerinn ehf. Í bókinni er að finna uppskriftir eftir Ólaf Ágústsson matreiðslumann. ,,Ólafur er einn af þessum ungu flottu kokkum sem hafa komið fram á síðustu árum og bera uppskriftirnar klárlega keim af hinu nýja ferska eldhúsi þar sem menn eru óhræddir við að blanda saman óhefðbundnum hráefnum,‘‘ segir Jóhannes. Þrátt fyrir óhefðbundna sam- setningu eru uppskriftirnar settar upp á einfaldan máta þannig að flestir ættu að geta séð sér fært að prófa. Sælkerinn ehf er til húsa við Akra- lind í Kópavogi. Fyrirtækið stofnaði Jóhannes árið 2006. ,,Upphaflega var tilgangurinn að sýsla með aðföng fyrir veitingahús og þjónusta þau en árið 2008 var vörumerkið Sælkerafiskur sett á markað,‘‘ segir Jóhannes. Í fyrstu unnu tveir starfsmenn við fyrirtækið en í dag eru þeir sex talsins. Stærsti hluti viðskiptanna er sala á smávöru til versl- anna og þá sérstaklega Sælkerafisk. Auk þess er sala á ýmsum árstíðartengdum vörum mikil. ,,Við höfum fundið mik- inn meðbyr með Sælkerafiski og fólk er orðið opnara og víðsýnna í matargerð, meðal annars með tilkomu sushi,‘‘ bætir Jóhannes við. Jóhannes segir að hugmyndin að bók- inni hafi vaknað þegar hann vildi leita nýrra leiða til að auglýsa vörurnar sem fyrirtækið selur og nálgast viðskiptavini á nýjan hátt. Hann telur að með því að miðla góðum og girnilegum upp- skriftum sem unnar eru af fagmanni fæst fólk til að kaupa vörur sem það hefur jafnvel ekki verslað áður. Jó- hannes segir að matreiðslubókin henti öllum þeim sem áhuga hafa á matreiðslu og vilji elda gott sjávarfang. Mikill áhugi er á bókinni á meðal sushi unnenda sem sjá með henni leiðir til að nýta hráefnið á margvíslegan hátt tengt sushigerðinni. ,,Bókin er verðlögð þannig að það ætti ekki að vera hindrun fyrir viðskipta- vini okkar að grípa hana með,‘‘ segir Jóhannes. Bókina Sælkerafisk allt árið er hægt að nálgast í flestum matvöru- verslunum og þá yfirleitt í námunda við frystiborðin þar sem Sælkerafisk er að finna. Bókin er einnig væntanleg á næstu dögum á rafrænu formi á slóðinni www. skinna.is Linda Hrönn Þórisdóttir Uppskrift úr bókinni: Steikt hörpuskel með eplum og rús- ínum í karrýsósu Innihald: 4 stk stór hörpuskel (Sælkerafiskur) ¼ rautt epli – skorið í grófa bita 2 msk rúsínur 1 pk gult karrýmauk (deSIAM yellow curry paste) 1 dós kókosrjómi (deSIAM Coconut cream) 1 límóna – safinn 2 msk chiliolía Olía til steikingar 5 stk graslaukur – gróft saxaður Salt Aðferð: Byrjið á að hreinsa litla vöðvann frá hörpuskelinni. Gott er að þerra skelfiskinn áður en hann er settur á pönnuna til þess að fá fallega steikingu. Steikið hörpuskelina á snarpheitri pönnu og kryddið með salti. Brúnið karrýið létt í víðum potti ásamt eplunum og bætið kókosrjóm- anum út á. Hitið að suðu og kryddið til með límónusafa og salti. Lækkið undir þegar suðan kemur upp, bætið rúsínum út í og látið malla í 10 mínútur. Raðið upp á disk eða fat og skreytið með chiliolíunni og graslauknum. Samkvæmt leit á Google er konan á myndinni módel í yfirstærð Það er eitthvað rangt við það!!

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.