Hafnarfjörður - Garðabær - 27.06.2014, Blaðsíða 11
1127. júní 2014
svavar@islenskurmatur.is
reynslu liðinnar helgi. Svona rétt í lokin
má skjóta því að til gamans - af því
heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
stendur yfir - að rabarbari er borðaður
að segja má í öllum heimshornum.
Matarblaðamaður veit með vissu að
hann er vinsæll víða í bæði Suður- og
Norður-Ameríku, Asíu og Evrópu.
Menn líta hann reyndar mismunandi
augum og framreiða hann hver með
sínu nefi.
Ólík rabarbaramenning
Í Chile þykir rabarbari góður í samspili
við chili pipar þótt við séum vanari
honum með einhverju sætu. Í Evrópu
er rabarbari skilgreindur sem græn-
meti samkvæmt opinberum stöðlum
en í Bandaríkjunum er hann áxöxtur.
Við íslendingar getum svo skeggrætt
yfir grautnum hvort réttast sé að segja
rabarbari, rabbarbari eða rabbabari!
Jafnvel má halda slíkum umræðum
áfram eftir matinn yfir góðu glasi af
rabarbaralíkjör og kaffi. Einhver gæti
líka freistast til að troða dálítlu rabar-
baralaufi í pípu og reykja það. Matar-
blaðamaður mælir hins vegar ekki með
því, enda getur það valdið sárindum í
munni og hálsi og fleiri leiðindum - ef
marka má frétt í Morgunablaðinu frá
1918. lengi lifi rabarbarinn!
Rabarbaraafurðirnar eru fjölbreyttar
eins og glöggt má sjá.
Kræsingar úr rabarbara blöstu við hvert sem litið var á rabarbarahátíðinni
í Reykholti.
Það er um að gera að skoða sig vel um og smakka.