Hafnarfjörður - Garðabær - 28.06.2013, Qupperneq 4

Hafnarfjörður - Garðabær - 28.06.2013, Qupperneq 4
4 28. júní 2013 Hellisgerði 90 ára: Var fyrst eingöngu opið á sunnudögum á sumrin Síðastliðinn sunnudag var 90 ára afmæli Hellisgerðis fagnað. Há-tíðin hófst við gamla ræðupúltið og flutti Guðrún Ágústa Guðmunds- dóttir bæjarstjóri ávarp. Skemmtileg og fjölbreytt tónlistaratriði voru á sviðinu, meðal annars Pollapönk og Jón Jóns- son og slegið var upp harmonikkuballi. Það var góð stemning í blíðskaparveðri og Hafnfirðingar á öllum aldri voru samankomnir í þessum fallega skrúð- garði. Hollvinafélag Hellisgerðis stóð fyrir hátíðarhöldunum en félagið var stofnað á síðastliðnu ári. Á fésbókar- síðu félagsins kemur fram að tilgangur félagsins sé að standa vörð um og styðja við Hellisgerði. Það var að tilstuðlan Málfundafé- lagsins Magna sem garðurinn varð að veruleika. Á fundi félagsins árið 1922 kom upp sú hugmynd að setja upp blómagarð í Hafnarfirði og hafa þannig áhrif á útlit bæjarins. Einnig var til- gangurinn að koma upp skemmtistað fyrir bæjarbúa og vekja áhuga þeirra á blóma- og trjárækt. Stofnuð var nefnd innan málfundarfélagsins sem hafði það hlutverk að finna heppilegan stað fyrir skrúðgarðinn og koma hug- myndinni í framkvæmd. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar afhenti síðan málfundar- félaginu landsvæðið Hellisgerði og ræktun hófst. Jónsmessuhátíð var haldin árlega frá árinu 1923 og var það helsta fjár- öflunarleiðin til uppbyggingar og gróðursetningar í garðinum. Fyrstu áratugina var Hellisgerði einungis opið almenningi á sunnudögum til að vernda viðkvæman gróðurinn. Síðar var garðurinn opinn alla daga ársins á sumrin og um langt skeið hefur hann verið opinn almenningi allt árið um kring. LHÞ Eldri borgarar hvattir til hreyfingar: Hvíldarbekkir með vissu millibili á helstu gönguleiðum bæjarins Verkefnið Brúkum bekki var formlega sett af stað síð-astliðinn mánudag. Það er Öldungaráð Hafnarfjarðar, Félag eldri borgara og Félag sjúkraþjálfara sem standa fyrir verkefninu. Tilgangurinn með verkefninu er að stuðla að frekari hreyfingu eldri borgara. Settir verða upp bekkir með 250 – 300 metra millibili víðsvegar í bænum sem gerir eldri borgurum kleift að fara út að ganga og geta sest niður á bekki. Búið er að teikna upp göngukort með staðsetningu bekkjanna. Leitað var til bæjarstjórnar, fyrirtækja og félagasam- taka í Hafnarfirði að koma að verkefn- inu. Bekkirnir eru merktir gefendum og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hnit- merkir hvern bekk. LHÞ HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR 14. TbL. 3. ÁRgANgUR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@ fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@ fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: holmfridur@vedurehf.is, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: hafnarfjordur@vedurehf.is, Ljósmyndaar: Þórir Snær Sigurðarson, sími 615 2049, Þórður Ingi Bjarnason, sími 822 0068, Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 13.500 eintök. dreifing: Póstdreifing. Veffang: fotspor.is Fríblaðinu er dreiFt í 13.500 e intökum í allar íbúðir í HaFnarFirði / Garðabæ Þjóðhátíðin var haldin með pompi og prakt í síðustu viku og ekki er annað að heyra en að menn hafi almennt verið afar sáttir við hvernig til tókst að halda hátíðina í miðbænum. Þrátt fyrir minniháttar tafir á umferð í stuttan tíma þá voru lokanir á götum auglýstar vel í blöðum og á vefnum. Aðalskipuleggjandi hátíðarinnar segir einmitt í viðtali hér í blaðinu að hugmyndin sé að halda áfram á þessari braut að ári. Það var vel til fundið að gæða miðbæinn lífi með þessum hætti og sjálfsagt muna margir eftir þeim tímum þegar dagskráin var haldin á Thorsplani- fyrir hellulögn. Kvölddagskráin fór svo fram við Lækjarskóla þar sem komið var fyrir sviði á planinu og árvisst að einhverjir féllu (létu sig falla) í lækinn. Þá „hittu allir alla“ en meðan hátíðin var haldin á hinu víðáttumikla Víðistaðatúni var það ekki raunin. Það er full ástæða til að lífga upp á miðbæinn okkar enda er verið að gera ýmislegt í þá áttina nú í sumar. Í dag eru ansi athyglisverðar verslanir á Strandgötunni sem leggja áherslu á hönnun og skart og má segja að Strand- gatan sé að taka á sig blæ Skólavörðustígs í Reykjavík með skemmtilegar hönnunarverslanir á hverju horni.Hugmyndir unglingaráðs Hafnarfjarðar hníga einmitt að því að blása lífi í miðbæinn mneð ýmsum hætti og eru þær hugmyndir allrar athygli verðar. Allt á hálfum hraða Á þessum árstíma er eins og hægi á öllu í þjóðfélaginu. Júlímánuður er helsti sumarleyfistími landans og martröð fjölmiðlamanna tekur við. Illögulegt er að ná sambandi við embættismenn og stjórnendur á þessum tíma þar sem meirihluti þeirra er í fríi. En lesendur vilja samt sem áður frá fréttir úr bænum sínum og lesa viðtöl við áhugavert fólk. Því tökum við ekki sumarleyfi fyrr en í lok júlí og þá einungis í tvær vikur. Lifið heil Hólmfríður Þórisdóttir Komum lífi í miðbæinn á ný Leiðari Hvað veistu um bæinn þinn eru laufléttar spurningar um Hafnarfjörð og sögu hans. Svar á bls 14 HVAÐ VEISTU UM BÆINN ÞINN? ?Spurningin í þessu blaði er:Húsið var byggt árið 1886 og rúmaði um 300 manns en þá bjuggu rúmlega 400 manns í Hafnarfirði. Það var fyrsta samkomuhús bæjarins. Hvaða hús er þetta sem enn stendur? Einn bekkur kominn á sinn stað, kærkomið að setjast niður og kasta mæðinni áður en haldið er lengra. Framkvæmdanefnd verkefnisins, frá vinstri, Gylfi Ingvarsson, formaður Öldungaráðs Hafnarfjarðar, Haraldur Sæmunds- son, sjúkraþjálfari, jón Þór Brandsson, sjúkraþjálfari, jón Kr Óskarsson, formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði og Kristján Björnsson, varaformaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði. Bæjarstjórinn tók sig vel út í ræðupúltinu. jón jónsson spilaði í Hellisgerði á yngri árum, ungur og óþekktur. Hann tók lagið í afmælishófinu, eldri og þekktari í dag.Leikhópur frá Englandi heimsækir Gaflaraleikhúsið Þriðjudaginn 2 júlí flytur enski leikhópurinin Spindrift Theatre þríleikinnC ydonia: Marsiah, Me, Whilst being Humane og Phew: Kisuleikur í Gaflaraleikhúsinu. Í leik- hópnum eru íslensku leikonurnar Sólveig Eva Magnúsdóttir og Bergdís Júlía Jóhannesdóttir en þær luku námi í Rose Bruford leiklistarskólanum í vor. Verkin eru útskriftarverkefni leikarana í leikhópnum og eru skemmtilegar til- raunir með innihald og form. Gaflaraleikhúsið hefur síðastliðin sumur verið vettvangur fyrir nýja leik- ara og sviðslistafólk sem hafa menntast í erlendum leiklistar- og dansskólum og vilja kynna sig á heimaslóðum og það er ánægjulegt að bjóða upp á það enn einu sinni. Sýningin byrjar kl 20.00 og hægt er að panta miða í síma 565 5900 og ámidasala@gaflaraleikhusid.is

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.