Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Qupperneq 2

Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Qupperneq 2
2 20. september 2013 Hreyfing eykur blóðflæði Hvað gerir BEETELITE örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betra blóðflæði, 30% æðaútvíkkun, 30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og úthald, hraðar bata eftir æfingar. Bættir árangur íþróttafólks allt að 20% Örvar upptöku annara vítamína, fæðubótarefna. U m b o ð : w w w .v it ex .is Hvað gerir VIAGRA - SILDENAFIL The release of nitric oxide molecules causes erection. BEETELITE Rauðrófukristall 100% lífrænt og því fullkomlega öruggt 1 skot 30 mín. fyrir æfingar blandað í 150 ml af vatni. Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði 30 mín. eftir inntöku. Fæst í World Class, Sportlíf, apótekum og heilsubúðum Nitric Oxide Nóbelsverðlaun 1998 - Sameind ársins 1992 Iðnskólinn í Hafnarfirði hefur starfað í 85 ár - næg atvinnutækifæri fyrir þá sem útskrifaðst frá málmiðnaðardeild Iðnskólinn í Hafnarfirði var stofnaður 11. nóvember 1928 á fyrsta fundi Iðnaðarmannafélags Hafnarfjarðar og rak félagið skólann sem kvöldskóla til ársins 1955. Emil Jónsson, bæjarverkfræðingur og síðar forsætisráðherra í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins var fyrsti skólastjóri skólans og gegndi starfinu til ársins 1944. Kennsla samningsbundinna iðn- nema hefur farið fram allt frá stofnun skólans. Helstu tímamót í sögu skól- ans urðu þegar ríkið og bæjarfélagið tóku við rekstrinum árið 1956 og varð hann þá dagskóli. Með stofnun grunn- deilda málmiðna 1974 var tekin upp verkleg kennsla við skólann. Grunn- deild tréiðna og verklegt nám fyrir háriðnir hófst árið 1977 og á sama tíma hófst kennsla í tækniteiknun. Síðasta grunndeildin var stofnuð 1983 með verklegri kennslu í rafiðnum. Verk- deildirnar hafa verið, og eru ennþá, kjölfesta skólastarfsins. Árið 1990 var komið á fót hönnunarbraut að frum- kvæði þáverandi skólameistara Steinars Steinssonar en henni var síðan breytt í listnámsbraut, s.kv. Aðalnámskrá fram- haldsskóla, árið 1999. Útstillingadeild var stofnuð haustið 1998. Frumdeild var starfandi árin 1993-2002 og almenn námsbraut tók til starfa haustið 2000. Flutt í nýtt húsnæði árið 2000 Skólinn flutti í nýtt húsnæði í jan- úar árið 2000 við Flatahraun 12. Í því fólst veruleg stækkun og bylting á allri aðstöðu nemenda og kennara. Skólahúsnæðið er fjármagnað, reist og rekið af einkaaðilum og er það fyrsta fjölhæða stálgrindarhúsið sem reist er hérlendis. Áður hafði Iðnskólinn verið á tveimur stöðum þar sem bóknám fór fram í húsnæðinu við Reykjavíkurveg og verknámið var til húsa við Flata- hraun. Í nýja skólanum var öll aðstaða undir sama þaki en vegna mikillar að- sóknar og fjölgunar í skólanum hefur áhaldahús bæjarins verið gert upp og notað sem kennslurými til bráðabirgða meðan leitað er lausna við stækkun skólans. Iðnskólinn í Hafnarfirði er heilsu- eflandi framhaldsskóli og á hverju ári er unnið eftir ákveðnu þema, í ár er það geðrækt. 13. September sl. hófst dagskrá vetrarins. Sigurbjörn Hreiðarsson, sem er leiðtogi átaksins í skólanum, ræddi um það sem verður á döfinni. Næst kom Ársæll skólameist- ari og ræddi um mikilvægi þess að láta áhyggjur og stress ekki íþyngja manni um of. Eftir það var farið í góðan göngutúr þar sem boðið var upp á ávexti á leiðarenda. Að lokum var hresst upp á andann með því að hlusta á uppistand Ara Eldjárns. Sterk hefð fyrir málm- iðnaðardeildinni Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að málmiðnaðardeildin sé og hafi alltaf verið öflug í starfi Iðnskóla Hafnarfjarðar, hefðin fyrir þeirri starf- semi sé mjög sterk. Ávallt sé ásókn í að ráða til starfa rennismiði, stálsmiði og vélvirkja til starfa, ekki síst hjá stórum og taustum fyrirtækjum í íslensku at- vinnulífi, eins og t.d. Össur og Marel. Í haust eru um 530 nemendur við Iðn- skóla Hafnarfjarðar. Iðnskólinn í Hafnarfirði. Í kennslustund í málmsmíði. Í tréiðnaðardeild. Vanda skal að fyrstu gerð. Ársæll Guðmundsson skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær styrkir félaga- samtök, fyrirtæki og einstaklinga Bæjarráð Hafnarfjarðar veitir ár hvert félagasamtökum, fyr-irtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangs- röð sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er til næsta sunnudags, 22.september. Reglur um styrkveitingar er hægt að nálgast gegn gegnum ,,Mínar síður – umsókn um styrk – bæj- arráðsstyrkur“ og þar er einnig hægt að nálgast umsóknareyðublað. Gert er ráð fyrir að úthlutun verði lokið fyrir 1. desember nk. Horft yfir Hafnarfjörð. Skólastjórar, síðar skólameistarar hafa verið: Emil Jónsson verkfræðingur og, sfyrrverandi forsætisráðherra, skólastjóri í 16 ár 1928 – 1944 Bergur Vigfússon, skólastjóri í 12 ár 1944 – 1956 Snæbjörn Bjarnason véltæknifræðingur, skólastjóri í 1 ár 1956 – 1957 Sigurgeir Guðmundsson byggingafræðingur, skólastjóri í 18 ár 1957 – 1974 og 1975 – 1976 Steinar Steinsson véltæknifræðingur, skólameistari í 18 ár 1974 – 1975, 1976 – 1984 og 1985 – 1994 Jóhannes Einarsson véltæknifræðingur, skólameistari í 17 ár 1984 – 1985 og 1994 – 2010. Núverandi skólameistari er Ársæll Guðmundsson. Kennslustaðir Iðnskólans hafa verið: Gamli barnaskólinn við Suðurgötu 1928-1929 Barnaskóli Hafnarfjarðar 1929-1939 Flensborg 1939-1957 Bókasafnið við Mjósund 1957-1972 Reykjavíkurvegur 74 frá 1972-1999 ásamt verkdeildahúsi við Flatahraun 1974-1999 Nú fer kennsla fram að Flatahrauni 12 og 14 og einnig í Gjótuhrauni.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.