Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Side 4
4 20. september 2013
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
Átta mánuðir til bæjarstjórnarkosninga
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skipa 11 fulltrúar. Í kosningunum 2010 fengu Samfylkingin og
Sjálfstæðisflokkurinn 5 fulltrúa hvor
og Vinstri hreyfingin grænt fram-
boð 1 fulltrúa. Samfylking og Vinstri
grænir mynda meirihluti í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar, bæjarstjóri er
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
og forseti bæjarstjórnar Margrét
Gauja Magnúsdóttir og formaður
bæjarráðs Gunnar Axel Axelsson.
Reglulegir fundir bæjarstjórnar eru
haldnir hálfsmánaðarlega, á miðviku-
dögum kl.14:00 í Hafnarborg en með
fundunum er hægt að fylgjast í út-
varpi á FM97,2.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks eru
Valdimar Svavarsson, Rósa Guðbjarts-
dóttir, Kristinn Andersen, Geir Jónsson
og Helga Ingólfsdóttir. Fyrir Samfylk-
inguna sitja í bæjarstjórn Margrét
Gauja Magnúsdóttir, Gunnar Axel Ax-
elsson, Eyjólfur Sæmundsson, Sigríður
Björk Jónsdóttir og Lúðvík Geirsson
og fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt
framboð er það Guðrún Ágústa Guð-
mundsdóttir bæjarstjóri. Átta mánuðir
eru nú eftir af kjörtímabili bæjarstjórn-
arinnar en sveitarstjórnarkosningar
fara fram í lok maímánaðar 2014,
líklega laugardaginn 31. maí. Ekkert
hefur heyrst um það hvort núverandi
bæjarfulltrúar sækjast eftir því að sitja
áfram á framboðlistum flokka sinna,
en búast má við nú á haustdögum að
margir fari að hugsa sér til hreyfings,
alltaf eru einhverjir fýsandi þess að gera
sig gildandi í pólitík en styttra kann
að vera í prófkjör eða uppstillingu hjá
stjórnmálaflokkunum. Framsóknar-
flokkurinn náði ekki inn manni í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar vorið 2010 en
líklegt verður að teljast að Framsóknar-
menn í Hafnarfirði hugsi sér aftur til
hreyfings. Við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar var kjörsókn afar dræm, eða
aðeins 65% en þá voru liðlega 17.800
manns á kjörskrá í Hafnarfirði.
HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR
19. TbL. 3. ÁRgANgUR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang:
as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík.
Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson,
sími: 898-5933 & netfang: geirgudsteinsson@simnet.is. Umbrot: Prentsnið, Prentun:
Ísafoldarprentsmiðja, 13.500 eintök. dreifing: Póstdreifing. Veffang: fotspor.is
Fríblaðinu er dreiFt í 13.500 e intökum
í allar íbúðir í HaFnarFirði / Garðabæ
Að elska fjölskyldu sína þykir flestum sjálfsagt mál, en að elska óvin sinn og bera fyrir honum virðingu er hreinn kærleikur. Kærleikurinn er einfaldur, sýndu hann því það er svo auðvelt og kostar ekkert. Einelti
er allt of algengt hér á landi, og oft líðst það þrátt fyrir fögur orð um að tekið
sé með festu á slíkri vanvirðu. Stúlka sem var fædd með skarð í vör hefur
þurft að þoka slíkt einelti alla tíð. Það lýsir hins vegar afar bágum karakter
þeirra sem slíkt stunda, jafnvel heimsku. Sumt af því sem við þessa fallegu
stúlku hefur verið sagt er þannað að ekki er hægt að hafa það eftir hér. Þessi
harðneskja í samskiptum fólks birtist með ýmsum hætti og er allt of algeng
er í nútíma þjóðfélagi. En kannski hafa þeir unglingar sem telja einelti ekk-
ert athugavert það eftir háttarlagi þeirra fullorðnu. Þeir verða kannski varir
við harðneskjulegar innheimtuaðgerðir í garð foreldra sinna frá bönkum,
tryggingafélögum og fleiri stofnunum, jafnvel inni á eigin heimilum og
finnst því ekkert athugavert að endurspegla það. Hafa skal í huga að sumar
innheimtuaðgerðir eru ekkert annað en gróft einelti.
Virðing þjóðarinnar fyrir Alþingi er í molum, og þar er við engan annan
að sakast en sjálfa þingmennina. Þingmenn þjóðarinnar ættu að sýna hver
öðrum meiri kærleika, þá gengju þingstörfin kannski betur á Alþingi og meiri
virðing yrði borin fyrir stjórnmálamönnum almennt og þeirra verkum. Flest
kosningaloforð stjórnarflokkanna sem gefin voru á vordögum hafa ekki enn
séð dagsins ljós, en vonandi stendur það til bóta, a.m.k. hefur forsætisráðherra
boðað stórfellda hjálp til handa þeim heimilum sem verst standa fjárhags-
lega. Almenningur vill trúa því að svo verði, annars fer allt í bál og brand
og þá verður svokölluð búsáhaldabylting aðeins hjóm eitt í samanburði við
þær aðgerðir sem reiður almenningur gæti gripið til. Hveitibrauðsdögum
ríkisstjórnarinnar lauk 1. september sl., nú bíður þjóðin raunhæfra aðgerða
frá henni.
Vonandi ber bæjarstjórn Hafnarfjarðar gæfu til að selja þær byggingalóðir sem
nú er verið að auglýsa í Smárahlíðinni. Þar með þéttist byggðin á Völlunum,
tiltrú unga fólksins á svæðinu eykst, fleiri þjónustufyrirtæki sjá hag sinn í
því að setjast þar að. Þjónusta bæjarfélagsins gagnvart íbúum þessa svæðis
ætti líka að aukast um leið og fjárhagur bæjarsjóðs batnar, kafsundinu úr
dýfunni sem tekinn var við efnahagshrunið 2008 fer kannski að ljúka. Með
aukinni hagsæld batnar þjónustan, ekki bara við íbúana á Völlum, heldur við
alla Hafnfirðinga. Það á líka við íbúa nágrannasveitarfélagsins, Garðabæjar.
Þar stendur til að bjóða út byggingalóðir í fallegu landi, en það er öllum
sveitarfélögum nauðsyn að geta boðið ungu fólki byggingalóðir, og það á
öllum tímum, ekki bara í nálægð sveitarstjórnarkosninga. Ef það gerist ekki
leita leita íbúarnir yfir lækinn þar sem aðstaðan og þjónustan er betri. Það
er alveg deginum ljósara.
Geir A. Guðsteinsson
ritstjóri
Er raunverulega von
á hjálp við heimili í
fjárhagsvanda?
Leiðari
margrét Gauja magnúsdóttir stjórnar bæjarstjórnarfundinum.
bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi 18. september sl. Þrír bæjarfulltrúar voru fjarstaddir og tóku varamenn sæti þeirra
á fundinum.
Skarðshlíð á Völlunum
- framtíðar byggingasvæði í Hafnarfirði
Lóðir í 1. áfanga Skarðshlíðar eru komnar í sölu. Um er að ræða lóðir við Hádegisskarð,
Bergsskarð, Drangsskarð, Bjargsskarð,
Glimmerskarð og Vikurskarð. Byrjað
var að taka á móti umsóknum laugar-
daginn 7.september sl. en umsóknar-
frestur er til til 27. September nk. Sótt
er um á ,,Mínum síðum“ hjá Hafnar-
fjarðarbæ. Skarðshlíð er um 30 ha að
stærð og liggur upp að hlíðinni sunnan
og vestan í Ásfjalli. Svæðið er í hlíð sem
hallar mót suðri og liggur í skjóli fyrir
norðan- og austanáttum. Efst í hlíðinni
verða einbýlishús, þar fyrir neðan par-
og raðhús og fjölbýlishús næst Ásvalla-
brautinni, sem er aðkoman inn í hverfið.
Í hverfinu er fyrirhugað að byggja 4–6
deilda leikskóla og hjúkrunarheim-
ili. Byggðin er tengd náttúrunni með
tveimur grænum ósnortnum svæðum
þvert inn í byggðina og tengist þannig
þungamiðju hennar.
Leitast var við að hafa sjálfbæra þróun
og vistvænt skipulag að leiðarljósi við
hönnun Skarðshlíðarhverfis. Þéttriðið
stíganet er í hverfinu, í tengslum við
megin göngustíga, hjólreiða- og al-
menningsvagnakerfi bæjarins.
Skarðshlíðin hefur upp á allt að
bjóða. Á svæðinu, í Vallahverfinu, er
sundlaug, íþróttamiðstöð Hauka og
öflugt skólasamfélag, m.a. Hraunvalla-
skóli og leikskólar. Stutt er í ósnortna
náttúruna, Ásfjall, Ástjörn, Hvaleyrar-
vatn, Helgafell og Bláfjöll.
séð yfir skarðshlíð en svæðið er tilbúið, og þar geta hafist framkvæmdir innan tíðar hjá þeim sem þar fá úthlutað
lóðum. ekki er ósennilegt að undir hlíðinni sé gott skjól fyrir norðanáttinni.