Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Síða 9
920. september 2013
Dell bætir enn þjónustuna á
Íslandi með ProSupport
Dell kynnti á Haustráðstefnu Advania fyrir skömmu samning sem fyrirtækin
hafa gert með sér um svokallaða
ProSupport-þjónustu en Advania
og forveri þess hafa um langt árabil
verið þjónustuaðili Dell á Íslandi.
Með ProSupport mun öll þjónusta
við viðskiptavini Dell verða enn
öflugri en áður. Með ProSupport er
tryggt að varahlutir berist strax næsta
virka dag séu þeir ekki fyrir hendi á
Íslandi. Með þessari nýju þjónustu er
einnig tryggt að viðskiptavinir njóti í
neyðartilvikum þjónustu sérfræðings
innan fjögurra klukkustunda frá
þjónustubeiðni.
Tímamótasamningur
Samningurinn markar um leið tíma-
mót í endurskipulagningu Dell á þjón-
ustu sinni við viðskiptavini í náinni
samvinnu við Advania. Með ProS-
upport hefur Dell eflt varahlutalager
sinn á Íslandi og sérfræðiþjónustan
er nú enn öflugri en áður, m.a. með
símaþjónustu allan sólarhringinn.
Samhliða hyggst Advania kynna not-
endum Dell aukið framboð þjónustu.
Fyrir tilstilli ProSupport hafa Dell-
notendur á Íslandi aðgang að stuðn-
ingsneti á annað þúsund sérfræðinga
í þremur þjónustumiðstöðvum og
varahlutalager í Glasgow sé hans þörf.
,,Með ProSupport munu viðskipta-
vinir okkar á Íslandi nú til fullnustu
njóta allra kosta þjónustunnar sem
Dell býður upp á og standa þannig
jafnfætis notendum í Bandaríkjunum
og í Evrópu. Dell leggur áherslu á að
bjóða sérfræðiþjónustu sem hentar
rekstrarumhverfi viðskiptavinanna.
Hluti af bættri þjónustu okkar felst
í margvíslegum valkostum í ábyrgð
og ráðgjöf. Markmiðið er að við-
skiptavinir njóti alls þess ávinnings
sem lausnir Dell fela í sér. ProSupport
þjónustan okkar er staðfesting þess að
við viljum veita íslenskum neytendum
allt það besta sem við höfum upp á
að bjóða,“ segir David Spruyt, svæð-
issölustjóri Dell á Íslandi.
Betri þjónusta
- aukið öryggi
„Við hjá Advania erum afar ánægð
og stolt yfir því að geta boðið við-
skiptavinum okkar á Íslandi Dell
ProSupport. Innleiðing á þjón-
ustuframboðinu hérlendis er rök-
rétt framfaraskref í samstarfi Dell
og Advania á Íslandi. Notendum
Dell búnaðar stendur til boða betri
þjónusta og meira rekstraröryggi en
áður hefur verið völ á hérlendis. Þjón-
ustuinnviðir Advania og sérfræðingar
okkar hafa nú undirgengist strangar
kröfur og vottanir til þess að tryggja
gæðu þjónustu við íslenska viðskipta-
vini. Bætt þjónusta mun án efa auka á
ánægju viðskiptavina okkar á Íslandi
og auka jafnframt áhuga kröfuhörð-
ustu kaupenda á búnaði frá Dell,“
segir Hafsteinn Guðmundsson, for-
stöðumaður hjá Advania.
Söfnuður Hafnarfjarðarkirkju bíður nýs sóknarprests:
Messa, skírn og sunnudags
skóli síðasta sunnudag
Hafnarfjarðarkirkja var vígð 20. desember 1914 og verður því 100 ára á næsta ári. Áður áttu
Hafnfirðingar kirkjusókn að Görðum
á Álftanesi. Þegar Hafnarfjörður fékk
kaupstaðarréttindi árið 1908 komst
skriður á kirkjubyggingarmálið, þótt
sú hugmynd hefði reyndar komið fram
áður, t.d. um miðja 19. öld að byggð
yrði kirkja í Firðinum. Hafnfirðingar
leituðu til Rögnvalds Ólafssonar um
teikningu að kirkju og skilaði hann
teikningu í febrúar 1909. Samkvæmt
henni var kirkjan úr steinsteypu og átti
að taka 500 manns í sæti eða þriðj-
ung íbúa kaupstaðarins. Var kirkjunni
valinn staður í landi sem bæjarfógeti
hafði til umsjónar við Strandgötu.
Framkvæmdir við kirkjugrunninn
hófust haustið 1913 og lauk smíð-
inni á aðventu 1914. Yfirsmiður var
Guðni Þorláksson, en hann andaðist
úr lungnabólgu um það leyti sem smíði
kirkjunnar lauk og var lík hans borið
í kirkjuna á Þorláksmessu. Biskupinn,
hr. Þórhallur Bjarnason, vígði kirkjuna
20. desember 1914.
Síðasta sunnudag messaði sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson, drengur var
skírður og sunnudagsskóil var að venju
í safnaðarheimili kirkjunnar.
Margir vilja embætti
sóknarprests
10 umsóknir bárust um embætti
sóknarprests í Hafnarfjarðarprestakalli
þegar starfið var auglýst nýverið en
sóknarpresturinn, sr. Þórhallur Heim-
isson, er fluttur til Svíþjóðar. Meðal
umsækjenda eru nokkrir prestar sem
hafa langan starfsferil í þjóðkirkjunni.
Umsækjendur eru:
• Cand. theol. Davíð Þór Jónsson
• Séra Gunnar Jóhannesson
• Séra Hannes Björnsson
• Séra Ingólfur Hartvigsson
• Séra Jón Helgi Þórarinsson
• Séra Skúli Sigurður Ólafsson
• Séra Stefán Már Gunnlaugsson
• Mag. theol. Sveinn Alfreðsson
• Séra Sveinn Valgeirsson
• Séra Þórhildur Ólafs
Embættið veitist frá 1. septem-
ber. Biskup Íslands, sr. Agnes Sig-
urðardóttir, skal skipa í embættið að
fenginni umsögn valnefndar. Val-
nefnd skipa níu manns úr prestakall-
inu auk prófasts í Kjalarnessprófasts-
dæmi. Valnefnd kom sér hins vegar
ekki saman, málinu vísað til biskups
sem fól sr. Kristjáni Vali Ingólfssyni
vígslubiskup í Skálholti að útkljá
málið. Búast má við úrskurði hans í
þessari viku.
sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson skírir Valdimar max Haraldsson. Viðstaddir
eru Þóra Guðrún Ingimarsdóttir (móðuramma og skírnarvottur), Haraldur
Arnórsson (faðir), ríkharður Daði Haraldsson (eldri stóri bróðir), Alexander
Leó Haraldsson (yngri stóri bróðir), elísabet bjarnadóttir (móðir), Valdimar
max Haraldsson (skírnabarn), birta maría Haraldsdóttir (stóra systir), Helga
Jónsdóttir (föðuramma og skírnarvottur), Herdís Flink (föðurömmu systir,
danska amman og skírnarvottur).
stolt systkini með litla bróðir, Valdimar max, sem lék á alls oddi.
sunnudagaskóli var að venju en umsjónarmaður hans er Nína björg Vilhelms-
dóttir djákni. Ungir sem aldnir tóku virkan þátt í því sem þar fór fram.
Félagar úr barbörukórnum sungu en við orgelið var Guðmundur sigurðsson.
eyjólfur magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna Advania og Janusz Hajdul, forstöðumaður Þjónustu-
lausna Dell í mið- og Austur-evrópu handsala samkomulag um prosupport þjónustuna. Á myndinni f.v.: Hafsteinn
Guðmundsson, forstöðumaður Lausnahóps Advania, David spruyt, svæðissölustjóri Dell á Íslandi, þá Janusz og
eyjólfur, Christian Yob, forstöðumaður stoðdeildar Dell, Nicholas Lowe, sölustjóri, Vagelis Kouretzes, deildarstjóri
vettvangsþjónustu Dell og Andrés Arnarson, sölustjóri Lausnasölu Advania.