Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Page 14
8-10 ára (3-5 bekkur) 24 september - 26 nóvember
11-13 ára (6-8 bekkur) 24 september - 26 nóvember
Örfá pláss eftir
Skráning og nánari upplýsingar
sími 565 5900
namskeid@gaaraleikhusid.is
www.gaaraleikhusid.is
Kennari er Ágústa Skúladóttir
leikstjóri Ævintýra Múnkhásens, Ballsins á Bessastöðum og Dýranna í Hálsaskógi
Leiklistarnámskeið
Gaaraleikhúsinu í Hafnarrði
Kænan veitingastofa - Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði - Sími 565-1550
Heimilismatur
í hádeginu
14 20. september 2013
PEPSI-deild karla:
Atli Viðar bjargaði
stigi í leiknum gegn Val
Atli Viðar Björnsson kom inn á sem varamaður, skoraði tvö mörk og tryggði FH
3-3 jafntefli á móti Val í Kaplakrika
á mánudag. FH var 1-3 undir þegar
Heimir Guðjónsson sendi Atli Viðar
inn á völlinn og hann bjargaði stigi
um leið og hann bætti við markamet
félagsins. FH-ingar komust í 1-0 í
upphafi leiks en Valsmenn svöruðu
með þremur mörkum á fjórtán mín-
útna kafla í fyrri hálfleiknum. Þetta
var annar leikurinn í röð þar sem Atli
Viðar kemur inn á sem varamaður
og tryggir FH stig en hann skoraði
sigurmarkið á móti Fylki í síðustu
umferð. Davíð Þór Viðarsson fékk
rautt spjald eftir að flautað hafði verið
til leiksloka fyrir mótmæli við dóm-
ara leiksins. Jón Rúnar Halldórsson,
formaður knattspyrnudeildar FH, og
Lúðvík Arnarson, varaformaður sömu
knattspyrnudeildar, sökuðu kollega
sinn hjá Val, Börk Edvardsson, um
að taka hlut af sölu leikmanna Hlíðar-
endaliðsins eftir leik FH og Vals í
Pepsi-deild karla í knattspyrnu og
var nokkur hiti í mönnum eftir leik-
inn. Slík framkoma er ekki sæmandi,
hvorki FH-ingum eða Völsurum.
Ingimundur Níels Óskarsson skor-
aði fyrir FH á 8. mínútu, Atli Viðar
Björnsson skoraði með skalla á 69.
mínútu eftir hornspyrnu sem Vals-
menn töldu vera kolrangan dóm og
svo jafnaði Atli Viðar leikinn á 90.
mínútu. FH er í 3.sæti PEPSI-deildar
karla með 41 stig, þegar tvær umferðir
eru eftir, 5 stigum á eftir KR sem á auk
þess tvo leiki til góða. Líkur á að halda
Íslandsmeistaratitlinum í Hafnarfirði
eru því harla litlar. FH leikur næst
gegn Fram næsta sunnudag á Laugar-
dalsvellinum og í lokaumferðinni
gegn Stjörnunni á Kaplakrikavelli
en sá leikur gæti orðið barátta um 2.
sætið í deildinni en Stjarnan er aðeins
einu stigi á eftir FH með 40 stig.
Frá leik FH gegn Val í kulda og trekki. boltinn í netinu og staðan 2:3 fyrir Val
og vonir FH um stig tóku stökk.
Evrópukeppnin í handknattleik:
Haukar mæta
Benfica í október
Haukar unnu öruggan sigur á hollenska liðinu OCI Lions í Evrópukeppninni
í handknattleik en báðir leikirnir
voru leiknir á Ásvöllum samkvæmt
sérstöku samkomulagi. Fyrri leikinn
unnu Haukastrákarnir með tveggja
marka mun en seinni leikinn 30:18,
en þá höfðu þeir greinilega stúderað
vel leik Hollendinganna og fyllt í þær
brotalamir sem voru greinilegar í
fyrri leiknum. Nú bíður Hauka annað
og miklu stærra verkefni, en í október
leika þeir gegn portúgalska félaginu
Benfica. Rætt hefur verið um að efna
til hópferðar á leikinn í Porúgal og
fara þangað með liðinu í leiguflug-
vél. En til þess þarf að fylla ákveðinn
fjölda sæta.
Haukar hafa leikið 97 Evrópuleiki
síðustu 33 ár, unnið 46 leiki, tapað
44 leikjum en gert 6 jafntefli. Adam
Haukur Baumruk og Sigurbergur
Sveinsson skoruðu báðir fimm mörk
fyrir Hauka í seinni leiknum og voru
markahæstir.
Í seinni leiknum gegn OCI Lions varði Giedrius 24 skot og átti ekki minnstan
þátt í góðum sigri Hauka.
Möguleikar Hauka á sæti í
PEPSI-deild karla harla fjarlægir
Haukar unni Tindastól 3-1 á heimavelli sínum, Schen-ken-vellinum sl. laugardag
en mörk Haujka skoruðu Hafsteinn
Briem, Hilmar Eiðsson og Antonio
Savanti De Souza. Möguleikar Hauka
í 1. deildinni í knattspyrnu að tryggja
sér sæti í úrvalsdeild karla, PEPSI-
deildinni, virðist vera fjarlægir þegar
ein umferð er eftir í deildinni. Tvö efstu
liðin fara upp, en í efsta sæti er Fjölnir
með 40 stig og 12 marka mismun,
Síðan koma þrjú lið með 39 stig, Vík-
ingur með 27 mörk í plús, Grindavík
með 18 mörk í plús og Haukar með
13 mörk í plús. Haukar leika í síðustu
umferðinni næsta laugardag við Völs-
ung á Húsavíkurvelli og verða treysta á
Víkingur tapi fyrir Þrótti og Grindavík
fyrir KA á sama tíma. BÍ/Bolungarvík
lúrir þarna á eftir með 37 stig og gætu
Vestfirðingarnir farið upp ef öll liðin
fyrir ofan þá á stigatöflunni töpuðu
sínum leikjum, en slík er afar ósenni-
legt. Úr 1. deild falla Norðurlandsliðin
KF og Völsungur en upp úr 2. deild
koma HK í Kópavogi og annað hvort
KV (Knattspyrnufélag Vesturbæjar)
eða Grótta á Seltjarnarnesi, en þau leika
gegn hvort öðru í lokaumferðinni.
Frá leik Hauka í síðustu umferð gegn
tindastóli frá sauðárkróki.