Kópavogur - 15.08.2014, Blaðsíða 2
2 15. ágúst 2014
Nýr hjólastígur
Nýr reiðhjólastígur við Ás-braut í Vesturbæ Kópavogs var tekinn í notkun í vor.
Stígurinn er liður í því að framfylgja
hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar frá
árinu 2012.
Frekari framkvæmdir hafa verið
við stíga í Kópavogi í sumar. Breikkun
stígsins sem liggur meðfram Hafnar-
fjarðarvegi á leiðinni frá Garðabæ
til Reykjavíkur er meðal þess sem
gert hefur verið til þess að greiða
leið hjólreiðafólks, segir á vef bæj-
arins. Þá lagður í fyrra stígur með-
fram Reykjanesbraut frá Mjódd yfir
í Lindahverfi. Sá stígur var lagður í
samvinnu við Reykjavíkurborg.
Kópavogsbær lét árið 2012 vinna
hjólreiðaáætlunin til fimm ára. Í
henni er áhersla lögð á að tengja
saman helstu leiðir stígakerfisins
um Kópavog og tengja leiðirnar við
nærliggjandi sveitarfélög. Þá er mark-
mið hjólreiðaáætluninnar að stuðla að
auknum hjólreiðum í bænum, segir á
vefsíðu Kópavogsbæjar.
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Aðalmeðferð í Gálgahraunsmáli framundan
Réttarhöld í svonefndu Gálga-hraunsmáli verða haldin í hér-aðsdómi Reykjaness um miðjan
september. Hópur fólks, níu manns, eru
ákærðir vegna mótmæla við vegagerð í
Gálgahrauni 21. október í fyrra.
Þá verður haldin aðalmeðferð í mál-
inu og vitni kölluð til. Fólkinu voru
birtar ákærur í janúar síðast liðnum.
Tugir mótmæltu
Tugir manna sem mótmæltu fram-
kvæmdum Vegagerðarinnar í hraun-
inu voru handteknir. Fólk var borið
út af svæðinu og sumt sett í járn og
í fangaklefa. Ómar Ragnarsson var í
hópi hinna handteknu. Hann var ekki
ákærður og heldur ekki fjölmargir
aðrir sem handteknir voru þennan dag,
heldur aðeins hluti hópsins.
Jón H B Snorrason, saksóknari lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins, sagði við
Reykjavík vikublað í janúar að fólkið
væri ekki ákært fyrir að mótmæla,
heldur að hlýða ekki fyrirmælum lög-
reglu.
„Það getur vel verið að það hafi þurft
að hafa afskipti af einhverjum, leiða
hann í burtu, og hann hafi eftir það látið
sér segjast,“ segir Jón. Þá sé kannski
ekki gert meira í málinu. Öðru máli
kunni að gegna þegar fólk hafi komið
aftur, sagði Jón H. B. Snorrason.
Gagnrýni á lögreglu
„Við stóðum vörð um náttúru-
verndarlögin, auk þess sem stjórn-
arskráin tryggir fólki þann rétt að
mótmæla friðsamlega. Við teljum að
stjórnarskráin sé okkar megin í þessu
máli. En að taka okkur höndum og setja
í fangelsi er algjörlega utan við allt sem
heitir meðalhóf,“ sagði Gunnsteinn
Ólafsson við blaðið í vetur, en hann er
í hópi hinna ákærðu.
Arion banki, Stefnir og lífeyrissjóðir
umsvifamiklir á neytendamarkaði:
Veruleg ítök í
80 prósentum af
smásöluverslun
Sjóðir í eigu og umsjón Arion banka, bankinn sjálfur og ýmsir lífeyrisjóðir eru stórir hluthafar
í tveimur verslunarfyrirtækjum sem
eru samanlagt með um eða yfir 80
prósenta markaðshlutdeild í smásölu-
verslun á höfuðborgarsvæðinu.
Í tilviki Arion banka er um að ræða
sjóðstýringarfyrirtækið Stefni sem
er dótturfélag bankans. Stefnir stýrir
sjóðunum SÍA II sem á 27 prósenta
hlut í Kaupási, og sjóðunum ÍS 15
og ÍS 5 sem eiga samanlagt um 11
prósenta hlut í Högum. Þess utan á
Arion banki sjálfur ríflega 4,4 pró-
senta hluti í Högum og óbeinan hlut
í Kaupási einnig.
Lífeyrissjóðirnir Gildi, LSR og
fleiri eiga einnig gilda hluti í báðum
verslunarfyrirtækjunum; beint og
óbeint.
Hagar reka meðal annars versl-
anir Bónus og Hagkaupa. Kaupás á
meðal annars verslanir Krónunnar
og Nóatúns. Fyrirtækin reka hátt í 60
verslanir á höfuðborgarsvæðinu, þar
á meðal ýmsar verslanir í Kópavogi.
Sjá bls. 8.
Skapandi sumarstörf
Listamenn Skapandi sumarstarfa kynntu verkefni sín í lok júlí, en 25 listamenn hafa starfað við
þetta í sumar. Verkefnin hafa verið
af ýmsum toga. Meðal annars hefur
verið haldin stuttmyndahátið, tón-
leikar, hljóðinnsetningar og glerlist
svo nokkuð sé nefnt.
Vilja fjölga starfsfólki
Í áætlun er að fjölga starfsfólki á starfsstöðvum fyrir fatlaða í Kópa-vogsbæ. Fjallað var um málið á
fundi félagsmálaráðs í vikunni, sem
samþykkti fyrir sitt leyti að fjölgað
yrði um fimm þroskaþjálfa, en ekki sé
gert ráð fyrir þessum starfsmönnum í
fjárhagsáætlun.
Þetta á við Dalveg þar sem eru nú
rúm 15 stöðugildi. Á Marbakkabraut
þar sem fyrir eru 7,5 stöðugildi. Kópa-
vogsbraut þar sem nú eru 8 stöðugildi
og á Skjólbraut og í Vallargerði þar
sem um 6 stöðugildi eru nú á hvorum
stað.
Þetta tríó lék á lokahátíð skapandi sumarstarfsins. Eins og sjá má á mynd-
ununum sem eru af Facebook síðu starfsins, var lokahátíðin vel sótt.
Þessar stúlkur tóku þátt í símamótinu sem haldið var í Fífunni í lok júlí. Mikil þátttaka var á mótinu sem þótti takast
vel þrátt fyrir vætutíð og stóðu Kópavogsliðin sig með ágætum.
Skólasetning framundan
Grunnskólar Kópavogs verða settir 22. ágúst. Bærinn rekur níu grunnskóla í 1.-10. bekk,
auk þess sem Waldorfstefnan rekur
einnig grunnskóla. Nemendur fara eftir
skólasetningu með kennurum sínum til
stofu. Í sumum skólum hefst kennsla
samkvæmt stundarskrá strax, en í
öðrum verður spjallað um veturinn og
kennsla samkvæmt stundarskrá hefst
mánudaginn 25. ágúst. Á vef bæjarins
er foreldrum og nemendum bent á að
kynna sér upplýsingar um stöðu mála
á vefsíðum skólanna.
Kennsla í MK hefst 22. Ágúst, sam-
kvæmt heimasíðu skólans, en mótt-
taka fyrir nýnema í bóknámi og nema
á almennri braut matvælagreina og á
skrifstofubraut verður þriðjudaginn
19. ágúst og fimmtudaginn 21. ágúst
verðu móttaka eldri nema í bóknámi
og annarra iðnnema.
Færri á hjólastígum
Talningar á hjólastígum í Kópa-vogsbæ í sumar sýna að dregið hefur úr umferð fótgangandi og
hjólandi um stígana, miðað við síðasta
sumar. Fram kemur í samtantekt sem
gerð var fyrir bæjaryfirvöld að mögu-
legt sé að veðurfar og framkvæmdir
við stíga hafi haft áhrif.
Mest umferð við hjólastíga er við
bensínstöð N1 í Fossvogi. Þarna fóru
um 350 manns um daginn sem talið
var, um mitt sumar. Það eru heldur
færri en á sama tíma í fyrra, þegar um
fimm hundruð fóru um stíginn á taln-
ingardegi; lang flestir bæði árin voru
hjólandi, eða næstum níu af hverjum
tíu.
Nokkur fjölgun varð hins vegar á
stígnum við Fossvogsbrún, þar sem brú
er yfir Reykjanesbrautina. Þar fóru 200
um núna, en um 130 í fyrra.
Í allt voru taldir um 1370 vegfar-
endur á stígunum á talningardegi í ár,
en í fyrra voru þeir um 2150.