Kópavogur - 15.08.2014, Blaðsíða 14

Kópavogur - 15.08.2014, Blaðsíða 14
14 15. ágúst 2014 Hefurðu búið erlendis? já, í Frakklandi. Ef já, hvernig er Ísland í saman- burðinum? Kaldara... Hver er stærsti sigur þinn? Börnin að sjálfsögðu :) Hver eru þín helstu áhugamál? Bamvera með fjölskyldunni, crossfit. Hver er þinn helsti kostur? ehhhh... En galli? úff!!!! Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Erfitt að gera upp á milli... en Mývatn er í miklu uppáhaldi. En í Kópavogi? Kópavogsdalurinn. Eftirlætis íþróttafélag? Breiðablik auðvitað :) Hvað áttu marga „vini“ á Facebook? 761 Uppáhaldstónlistarmaður eða tónlistarstefna? Er algjör alæta á tónlist... Hvaða bók eða listaverk hefur haft mest áhrif á þig og hvers vegna? Útlendingurinn eftir Camus, man bara hvað ég fann hitann frá sólinni í bók- inni. Hvert sækirðu afþreyingu? Sjónvarp, útvarp, bók eða net? Allt þetta, kannski síst útvarp. Hvað vildirðu verða þegar þú yrðir stór? Hjúkrunarkona eða ljósmyndari. Hvert var fyrsta starfið, og hvað hefurðu tekið þér fyrir hendur fram að þessu? Fyrsta starfið var að sjálfsögðu barna- pössun. Svo sjoppur, bæjarvinnan, veitingastaðir, Vinnuskólinn í Kópavogi (sem ég sakna enn!) svo lá leiðin í inn- anlandsflugið þar sem ég starfaði sem flugfreyja í tæp 5 ár og í dag starfa ég hjá Icelandair. Af hverju flug? Skemmtileg vinna, frábærir vinnufélagar og óreglulegur vinnutími sem ég elska :) Ef þú værir ekki á fullu í fluginu, hvað myndir þú vilja gera? Ljósmyndari. Áttu þér fyrirmynd í leik eða starfi? Get ekki sagt það, en hef unun af því að fylgjast með hinni ungu Annie Mist Þórisdóttur sem tvisvar sinnum hefur orðið heimsmeistari í CrossFit. Hvað er að þínu mati mikilvægast fyrir Kópavog? Að vera alltaf Kópavogur :) engar sam- einingar takk! Hvaða stundir í lífinu eru gleðilegastar? Þegar maðurinn minn er á landinu og við njótum samverustunda með börnunum. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Ferðast og hreyfa mig. Leiðinlegast? Get ekki sagt mér finnist gaman að þrífa :) svo er ægilega þreytandi að vera í kringum neikvætt fólk. Hvað gerir þú þegar þér leiðist eða ferð í fýlu? Hvað er að fara í fýlu?? er það eitthvað fyrir fullorðna??? Hvenær líður þér best? Með fjölskyldunni og svo líður manni alltaf vel eftir góða æfingu í CrossFit Reykjavík! Hvað er svo framundan hjá Arndísi Þorvaldsdóttur? Haustið nálgast sem mér finnst frábær tími, allt að detta í rútínu og kertatíminn framundan! Dvergshöfða 27, 110 Reykjavík Sími 535 5850 - framtak.is Guðmundur Arnfinnsson yrkir Hér geisar hin gamla spilling og gullkálfsins siðlausa hylling ríkir hér enn, því ráðþrota menn ei hemja þann taumlausa trylling. Þá Edvard Taylor Jonsson Skrafa seggir nú á ný um naska Hönnu Birnu. Hægt mun gang’að hnýsast í hennar sálarkirnu. Sigrún Haraldsdóttir yrkir limrur Þórlindur þagði en brosti er þefaði af gulleitum osti, hann tinað vægt og tautaði hægt; hvað ætli kvikindið kosti? Í bólinu Sturlaugur Sterki Stebbu gaf örlítið merki, hún uppá sig vatt og umlaði hratt; ég er með vindgang og verki. Þá Jón Ingvar Jónsson Það vex á mér vömbin og spikið, svo varla mér líst nú á blikið. Vömbin út tútnar til vinstri og þrútnar svo helvíti hratt og svo mikið. Hjálmar Freysteinsson yrkir Það bar til um þessar mundir - þokkalegt að tarna - Hönnu Birnu hitnaði undir en hýrnaði yfir Bjarna. Húrra fyrir stjórnendum sem hækka launin sín, hafa ei lengur smáaura í vösum. Ég tel að þessi “leiðrétting” sé tíma- bær og fín og 2006 á næstu grösum. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir um salernisaðstöðu ferðamanna á Akureyri Ferðamenn fjölmargt hér líta, þeir fræðast um búhag og ýta og skoða og sjá, þá skyggir helst á að í kirkjunni kostar að skíta. vísnastund 5 Pétur Stefánsson pest@visir.is Arndís Björg Þorvaldsdóttir Saknar enn vinnuskólans Arndís Björg Þorvaldsdóttir er uppalin í suðurhlíðum Kópavogs en hefur farið víða á fullorðinsárum. Hún starfar hjá Icelandair og hefur lengi verið á flugi. Hún stundar CrossFit af miklum móð, en finnst yndislegast að eiga góðar stundir með manni sínum, Geir Torfa Fenger flugmanni, og dætr- unum Birnu og Ölmu. Hún nam við MK og hélt svo til náms í frönsku, lauk prófi frá Háskóla Íslands og bjó svo um hríð í Frakklandi. Arndís segist enn sakna vinnuskólans í Kópavogi, þar sem hún vann sem unglingur og finnst mikilvægt að Kópavogur verði áfram Kópavogur. „Engar sameiningar!“ segir hún. Arndís Björg Þorvaldsdóttir er í yfirheyrslunni að þessu sinni. Arndís hefur lengi verið í fluginu. Arndís og geir ásamt dætrunum, en myndin er tekin skammt frá Eyrarbakka.

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.