Fréttir - Eyjafréttir - 26.03.1986, Blaðsíða 1
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
13. árgangur
Vestmannaeyjum 26. mars 1986
Guðni Hermansen verður með um páskana, sýningu á verkum sínum í Akóges. Sýnir Guðni
45 olíuinyndir. A myndinni sést eitt málverka Guðna sem finna má á sýningunni, en það
nefmst Haustkvöld.
Guðni Hermansen mun nú
um páskana verða með sýningu
á verkum sínum í Akóges.
Einkasýningar Guðna eru nú
farnar að nálgast 30, en síðast
sýndi Guðni hér á páskunum
fyrir tveim árum.
Á þessari sýningu Guðna
verða 45 olíumyndir, allt Eyja-
stemmur, sem málaðar eru á
síðustu tveim árum.
Sýningin hefst kl. 20.00 á
skírdag og verður síðan opin
alla daga kl. 14.00 - 22.00 til
annars í páskum en þá lýkur
sýningunni.
Allir eru boðnir velkomnir á
sýningu Guðna og vonast lista-
maðurinn til þess að sem flestir
komi og líti á verk hans.
S j álfstæðisflokkurinn:
Framboðslistinn við næstu
bæjarstjórnarkosningar
- samþykktur einróma á fulltrúaráðsfundi flokksins.
Á fulltrúaráðfundi Sjálf-
stæðisfélaganna s.l. sunnudag,
23 mars, var framboðslisti Sjálf-
stæðisflokksins við bæjarstjórn-
arkosningarnar endanlega ák-
veðinn og tillaga kjörnefndar
um skipan listans var samþykkt
einróma.
Prófkjör fór fram dagana 22.
og 23. febrúar og tóku 1600
manns þátt í því. Voru niðustöð-
ur prófkjörsins lagðar til grund-
vallar í meginatriðum við skipan
listans.
1. Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri.
2. Sigurður Jónsson, skrifstofu-
stjóri.
3. Bragi I. Ólafsson, umdæmis-
stjóri.
4. Helga Jónsdóttir, húsmóðir.
5. Arnar Sigurmundsson, skrif-
stofustjóri.
6. Ólafur Lárusson, kennari.
7. Ómar Garðarsson, sjómaður.
8. Unnur Tómasdóttir, kennari.
9. Stefán Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri.
10. Grímur Gíslason, blaðamað-
ur.
11. Friðþór Guðlaugsson, vél-
virki.
12. Þórunn Gísladóttir, skrif-
stofumaður.
13. Gísli Ásmundsson, verkstjóri.
14. Oktavía Andersen, húsmóðir.
15. Hafliði Albertsson, verkstjóri.
16. Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son, yfirmatreiðslumaður.
17. Sigurbjörg Axelsdóttir, kaup-
maður.
18. Sigurgeir Ólafsson, hafnar-
stjóri.
Heiðurssæti listans skipa tveir
fyrrverandi bæjarfulltrúar, Sig-
urbjörg Axelsdóttir' 17. og Sig-
urgeir Ólafsson 18. sætið, en
hann skipaði 1. sæti listans við
síðustu bæjarstjórnarkosningar.
„Mér finnst þetta sterkur
listi“, sagði Sigurður Einarsson,
sem sl 'par efsta sætið „Listinn
er sterkur vegna þess að hann er
niðurstaða í prófkjöri, þar tóku
þátt 1600 manns.“
„Gullgámur“
-Smáey fékk frábært verð fyrir gámafisk á Bretlandsmarkaði
Það er óhætt að segja að
gámur sem afli Smáeyjar VE var
Dansleikur
Á fundi bæjarráðs s.l. mánu-
dag var óskað eftir umsögn
vegna dansleiks á vegum knatt-
spyrnuráðs ÍBV aðfararnótt II. í
páskum.
Bæjarráð gat fyrir sitt leiti
fallist á að leyfa dansleikinn.
seldur úr í gærmorgun hafi verið
sannkallaður gullgámur. Aflinn
úr gámnum sem aðallega var
ýsa, vigtaði 15.587 kg. og seldist
hann á 1.303.937 kr. sem gerir
83,65 kr./kg. í meðalverð.
Sala þessi er algjör metsala og
hefði heildarverðið sem fékkst
fyrir þennan eina gám þótt
þokkalegt fyrir tvo gáma.
Fréttir óska þeim Smáeying-
um til hamingju með þessa glæsi-
legu sölu.
CARRINGTON lávarður
aðalframkvæmdarstjóri At-
lantshafsbandalagsins á ferð
í Vestmannaeyjum. „Þetta er
einstæður staður, ég hef
aldrei séð nokkuð honum
líkt.“ Sjá einkaviðtal Frétta
við lávarðinn bls. 10.
Bæjarráð:
Tölvur í
Grunnskólana
Á fundi bæjarráðs s.l. mánu-
dag lá fyrir bref frá Kennara-
félagi Vestmannaeyja, þar sem
spurt var, hvenær von væri á
tölvum í grunnskólana hér í
Eyjum.
I svari bæjarráðs kom fram að
von væri á tölvunum á tímabilinu
10. -15. apríl n.k.
Er það ánægjulegt að loksins
sé farið að huga að tölvumálum
grunnskólana hér í Eyjum, þótt
fyrr hefði verið.
13. töliablað
Fermingargjöfina
færðuhjáokkur
T.d. útvaipsklukkur,
útvaip með segul-
bandi og útvarps-
klukkur með segul-
bandi.
Myndavélar, sjón-
aukar, rakvélar,
hleðslutæki og
headfónar, og ódýru
Ziemans útvarps-
tækin frá aðeins
1190 kr.
Krulluburstar og krull-
ujárn. Hárblásarar og
krullubursti með
blæstri.
Vorum að taka upp
fallegar og ódýrar
styttur svartar og
hvítar.
Litlir lampar -
stórir lampar