Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.1988, Qupperneq 6
FRET JTR - Miðvikudagmn 27. júlí 1988
FAME
Á framabraut
„From the basket to the bridge
„Úr körfunni í hólinn.“
„Framtak og áræði eru
undraverðir eiginleikar“,
Það er vel við hæfi aö
hefja grein |iessa um félaga
minn Sigurjón Ingvarsson í
Skógum á orðum þessum
sem við fengum að láni í
formála bókarinnar Kon-
Tíki, ritaðan af þýðanda
bókarinnar Jóni Eyþórssyni.
Bók þessi, Kon-Tíki, er um
norska dýrafræðinginn Thor
Heyerdahl. sem sigldi við 6.
mann á rúmum hundrað
dögum yfir 8000 kílómetra
breitt Kyrrahafið.
Þaö eiga þeir Sigurjón
sameiginlegt að vera báðir
dýrafræðingar, en Sigurjón
hefur sérhæft sig í svo-
kölluðum dýralífsmyndum
og síðán að vera formenn á
skipum stnum.
Það er einmitt þetta
seinna sent ég ætla að skrifa
um, þ.e. sjómennsku Sigur-
jóns, eða Sía skvers, eins og
hann et' kallaður um borð í
skipi sínu.
Ekki eru nema 4 mánuðir
síðan ég stakk niður penna í
tilefni af hinum skjóta frama.,
Sía skvers, hjá útgerð Sig-
urðar Einarssonar. Þaö var
þá sem Síi skver tók við
plássi Magnúsar Richards-
sonar, seni 1. stýrimaður á
Suðurey VE 500. Síi skver
stýrir mannskap sínum á
milliþilfari Suðureyjar af
mikilli röggsemi og segja,
kunnugir Síi eigi ekki hvað
minnstan þátt í því að
Suðurey varð aflahæst ver-
tíðarbáta á liðinni vertíð og
það yfir land allt.
Nú er eflaust marga les-
endur greinar þessarar farið
að lengja eftir vitncskju um
hvernig Sigurjóni áskotnað-
ist nafnið Síi skver.
Það er skemmst frá því að
segja að nú í vor var ráðinn
á Suðurey, afleysingamat-
sveinn, einn hinn færasti i
i Skipstjórinn í góðu formi.
fagi þessu. Með þeint Sía
skver tókst vinskapur góður
og um samdist hjá þeim að
þar sem matsveinninn þyrfti
hvort eö er að panta kost,
þá myndi hann sjá um að
panta bætningastykki fyrir
Sía. Sýndist nú mat-
sveininum, að sniðugt yrði
að panta einn skver á kúlum
til að eiga um borð, en,
vegna einhvers misskilnings
var settur upp heill toppur á
netaverkstæði útgerðarinn-
ar. Þeir sem hafa þckkingu
á trollum, vita að toppur er
fast að því að vera heilt troll.
Sendi nú matsveinninn
Sía skver eftir skvernum og
birtist hann síðan á kajanum
akandi á vörubíl með hálf-
fulian pall af veiðafærum og
eftir mikil hlátrasköll skips-
félaga og annarra nær-
Staddta, aö sér hefði þótt
þetta vera frekar stórt af
skver að vera. Það má geta
þess til glöggvunar þeim sem
ekki þekkja mun á skver og
toppi, að það er svipað og
að móðir sendir ungan son
sinn út í búð eftir pela af
Greinarhöfundur á miðjum aldri.
rjóma og hann kæmi heim
með sjö mjaltakýr í eftir-
dragi. Ekki get ég sagt, eftir
að hafa farið þrjá róðra með
Sía skver nú í sumar, að ég
hafi verið með skemmtilegri
manni í aðgerð, en Síi skver
var alveg ódrepandi að t jgja
okkur strákunum sögur af
sjómennsku sinni.
Kemur mér nú í hugann
saga sem Itann sagði okkur
eftir að ég varð fyrir þvt, er
ég var að gera að bolta
þorski og út úr honum stóðu
tvær ýsur og hafði orð á
Sagði þ Síi, að þetta væri
nú ekki merkilegt, hann
hefði einu sinni fengið þorsk
sem var svo stór að þegar
hann hefði opnað á honum
munninn, þá hefði verið svo
mikill fiskur upp í honum,
að það hefði þótt meðaigott
hal það sem út úr þorskinum
kom.
Það hefur ekki komið
fram í gtein þessari að
ástæða skrifa þessarra eru
þau að nú er Síi skver búinn
að fara sinn fyrsta túr sem
skipstjóri á Suðurey VE,
svo með sanni má segja að
frami Sía skvers á þessu ári
se Ótrúlegur.
Vil ég nú ljúka skrifum
mínum um vin minn Sía
skver á þvf að benda lesend-
um þessa hnoðs á að utn
næstu jól mun koma út ljóð-
abók eftir Sía skver, en hann
hefur fengist við að sjóða
saman Ijóð á nóttunni þegar
hann var að toga. Bók þessi
mun heita, „NÓTT ÁN
FESTU“ og læt ég fljóta
með eina stöku með leyfi
höfundar.
Eg að Imla,
Siggi að smala,
Siggi að heyja,
Eg að beygja,
Tíu trossur fyrir mat.
Með kveðju, ,tora st0ppið.
ÞJÓÐHÁTÍÐARGESTIR ATHUGIÐ!
Sýnum nú samstöðu, vegna mikillar umferðar
Þjóðhátíðarhelgina, og stuðlum
að slysalausri hátíð. Góða skemmtun!
- SLYSAVARNADEILDIN EYKYNDILL -
EINS og menn hafa efalaust
frétt, þá datt hliðið á Þjóðhá-
tíðarsvæðinu um koll á
mánudaginn. Sumir vildu
kenna þetta norðan þemb-
ingi sem var á þennan dag,
en nú hafa Sælarnir komist
að sannleikanum í þessu
máli. Hafa þeir það fyrir satt
að Ásmundur Frostver hafi
rennt í Dalinn á vörubíl fyrir-
tækisins meö kranann í
uppréttri stöðu og keyrt hlið-
ið um koll, hafi hann ætlað
að sýna betri helmingnum,
Dalinn áður en haldið var af
landi brott í sumarleyfi. Og
eins og gamalt máltæki
segir: Sjaldan Ijúga Sann-
leikarnir.
Ekki eru þó allir vissir um
sannleikann í máli þessu,
telja heimildir óáreiðanleg-
ar. Vilja þeir halda því fram
að hliðið hafi fengið aðsvif,
vegna hitamollunnar á mán-
udagsmorguninn og dottið,
en hvað satt er í því skal
ósagt látið.
ÞAÐ varð uppi fótur og fit í
bænum s.l. laugardags-
kvöld og simi lögreglunnar
rauðglóandi, þegar það
sáust eldtungur á Fjósakletti
þar sem Þjóðhátíðarbrenn-
an stendur. Voru nú ein-
hverjir spellvirkjar búnir að
kveikja í brennunni?
Lögreglan fór á staöinn til
að kanna málið. í Ijós kom
að þarna voru brennupeyj-
arnir að fagna verklokum
með grillveislu og höfðu
kveikt í nokkuð stórum varð-
eldi sem var á stærð við
heila Týsbrennu eins og
einn brennupeyinn orðaði
það. Þessi íþróttapólitík er
söm við sig.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI
lýsti yfir áhyggjum sínum á
fundi brunavarnarnefndar
fyrir skömmu, yfir þrengsl-
um á slökkvistöðvarlóöinni
og baö hann fundarmenn
að hafa augun hjá sér ef
þeir sæju hentugt húsnæði.
BÆJARRÁÐ hefur sam-
þykkt að laun kjörinna
endurskoðenda á árinu
1988 verði:
Bæjarsjóður ...... 40.200
Hafnarsjóður.....13.800
Fjarhitun...........6.000
Vatnsveita......... 1.200
Rafveita ...........8.400
Sjúkrahús...........8.400
Um er að ræða framreikn-
aðar tölur frá fyrra ári.
AÐ gefnu tilefni hefur
bæjarráö samþykkt að þátt-
taka bæjarsjóös í veggja-
framkvæmdum einskorðist
við framkvæmdir þar sem
skerðing lóða á sér stað og
eða þar sem framkvæmdir
bæjarsjóðs leiöa til óhjá-
kvæmilegrar röskunar á
garðveggjum.