Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1988, Blaðsíða 4
FRÉTTIR - Þriðjudaginn 13. desember 1988
Jólahátíð
án eldsvoða
Eru
bruna-
varnir
í lagi
hjá þér?
Þar sem óöum styttist til
jóla vill Brunavaröafélag
Vestmannaeyja benda
fólki á aö athuga hvort
reykskynjarar og
slökkvitæki séu í lagi.
Ef þú átt ekki slökkvitæki
eöa reyksynjara þá fyrir
alla muni vertu þér úti um
eintak af hvoru tveggja,
þar sem þessi tæki geta
bjargað þér og þínum.
Þú sem átt skápaskynjara
(þ.e.a.s. óuppsettan
reykskynjara sem þú
geymir inn í skáp),
settu hann upp eins og
skot því hann gæti bjargað
jólahátíðinni þinni.
Brunavarðafélag
Vestmannaeyja
Reykskynjari getur bjargað
lífi þínu
LESENDA
BRÉF
Hugleiðing I
Pegar jólin fara í hönd
pá hugsaflestir um gjafir
en hafiöi reynt að hugsa
hve indælt er ástvin að eiga
og elska hann og dá.
Nú ástvinur minn er látinn
og hugur minn reikar til baka
ég stend mig þá sjálfan að því
að gleyma öðrum en mér.
Pegar ástvinur hverfur á braut
þá söknuður verður mikill,
en meiri verður sorgin
er þú veist þú gerðir ei allt
til að elska og dá þinn ástvin.
Ási
Arsþing I.B.V.
Rekstur deilda ÍB V
til fyrirmyndar
- T æplega 3 j a millj ón króna hagnaður á rekstri í. B. V.
Á fyrri degi ársþings íþrótta-
bandalags Vestmannaeyja lágu
fyrir rekstarreikningar ein-
stakra deilda innan bandalags-
ins fyrir starfsárið 1987-1988.
Óhætt er að segja að reksturinn
sé til fyrirmyndar þvi tæplega
3ja milljón króna hagnaður
varð á rekstri deildanna. Velta
þeirra var rúmlega 16.7 millj.
kr. Þess ber þó að geta að Þór,
Týr og Golfklúbburinn eru ekki
inn í þessum tölum, þannig að
búast má við að velta íþrótta-
hreyfingarinnar í heild á síðasta
ári nemi um 50 milljónir króna.
Ef einstakar deildir eru
skoðaðar kemur í ljós að aðal-
stjórn ÍBV var rekin með 123
þús. kr. tapi., en alls velti hún
um 450 þús. kr.
Knattspyrnuráð ÍBV velti
mest, eða rúrnlega 6.8 millj. kr.
og hagnaður af deildinni varð
rúmlega 1.5 millj. ki. Þess ber
þó að geta að milljón af þessum
peningum fór í að borga tap frá
árinu áðúr.
Handknattleiksdeild karla
velti rúmlega 3 millj. króna og
skilaði hagnaði upp á hálfa
milljón. Hinsvegar eru þjálf-
aralaun ekki í þessum tölum
því þau voru borguð af Þór og
Tý.
Handknattleiksdeild kvenna
velti rúmlega 2.8 millj. kr. og
skilaði hagnaði upp á rúmlega
820 þús. kr.
Velta sunddeildarinnar var
tæplega 1.6 millj. kr. og hagn-
aður deildarinnar var aðeins 4
þúsund krónur.
Fimleikadeildin velti tæplega
1.2 millj kr. og skilaði hagnaði
upp á 15 þúsund krónur.
Loks velti frjálsíþróttadeild-
in 853 þús. kr. og skilaði hagn-
aði upp á 117 þúsund krónur.
Sem fyrr segir voru Týr, Þór
og Golfklúbburinn ekki inn í
þessum tölum, en Bergur M.
Sigmundsson formaður Golf-
klúbbsins upplýsti það á þing-
inu að tap á rekstri G.V. á
síðasta starfsári var um 800
þúsund kr.
Þrátt fyrir að þessar tölur
gefi það í skyn að rekstur deild-
anna gangi ljómandi vel, er
greinilega mikið fyrir því haft
að endar nái saman og stjórnar-
menn eiga heiður skilinn fyrir
vel unnin störf í þágu íþrótta-
hreyfingarinnar í Vestmanna-
eyjum. Ekki þarf annað en að
skoða tekjuliði deildanna, þá
kemur í ljós að helstu tekjur
eru á Þjóðhátíð (alls 2.3 millj.
kr.), í auglýsingaformi, og ýms-
ir styrkir og sníkjur.
Seinni þingdagurinn fer fram
n.k. laugardag kl. 10 að Heið-
arvegi 7 (uppi).
Bærinn vill
selja íbúðir
í Reykavík
Vestmannaeyjabær hefur
farið fram á við Reykjavíkur-
borg að kaupa átta íbúðir að
Kleppsvegi 32 í Reykjavík, sem
eru í eigu Vestmannaeyjabæj-
ar, en þær voru keyptar fyrir
gamalt Eyjafólk í gosinu.
Reykjavíkurborg þykir ekki
henta að kaupa íbúðirnar að
svo stöddu, en hins vegar var
gefið fyrirheit um kaup borgar-
innar á umræddum átta íbúðum
eftir því sem þær kunna að
losna úr búsetu þeirra sem þar
nú búa, enda semjist um kaup-
verð og skilmála.
Þakkir
Um síðustu helgi gengu
Kiwanismenn í hús og seldu
sitt árlega jólasælgæti þar
sem ágóði rennur óskiptur
til líknarmála, og viljunt við
þakka frábærar móttökur.
Þeir sent misstu af því að
kaupa jólasælgætið, geta
nálgast það í Brimnes. Pok-
inn kostar 250 kr.
Með bestu kveðjum um
gleðileg jól.
Kiwanisklúbburinn
Helgafell
Vestmannaeyjum
SMA
auglýsingar
TIL SÖLU
T0 sölu Olympus OMIO í
tösku með 50 og 28 mm.
linsum og flassi.
Á sama stað er til sölu Silver
Cross barnavagn með
stálbotn, blár.
Upplýsingar í S 11567 eftir
kl. 20.
TIL SÖLU
Rörarúm fyrir fullorðna til
sölu (nánast ónotað). 1 og
1/2 breydd.
Upplýsingar í S 11747 eða
118611 (Þura).
TIL SÖLU
Til sölu er barnakerra og
hoppuróla, hvoru tveggja lít-
ið notað.
Upplýsingar í S 12382.
TIL SÖLU
Fishing Rod en Reel for sale,
as new. Price: 7000 kr. (eða
tilboð).
Sími 12864 (Frank).
Bí/ar
BÍLL TIL SÖLU
Mazda-626 2.0i árg. ‘88 (V-
2211) til sölu.
Upplýsingar í S 11049 og
11498 (Jóhann).
BÍLL TIL SÖLU
Toyota Corolla árgerð '85 til
sölu (V-216).
Upplýsingar í S 11231.
Dregið í
ferðahapp-
drætti Týs
Dregið hefur verið í
Ferðahappdrætti Knatt-
spyrnufélagsins Týs.
Eftirtali númer komu
upp;
1 .....................1483
2 .....................1794
3 .....................1675
4 .....................1711
5 .....................1033
6 .....................1921
7 ......................120
8 ......................692
9 ......................102
10 ..................... 17
11 ....................1287
12 .....................373
13 ....................1074
14 .....................396
15 ....................1360
16 .....................379
17 ....................1891
Upplýsingar gefnar í síma
12861. '
Týr
ÓDÝRT
KONFEKT
Þú ættir að líta á
okkar verð á konfekti
SMÁRABAR
v/ Hilmisgötu
Slökkvitækjaþjónustan
Höfum til sölu á mjög hagstæðu verði
★ SLÖKKVITÆKI
★ REYKSKYNJARA
★ ELDVARNARTEPPI
★ BRUNASLÖNGUHJÓL
Önnumst uppsetningu á reykskynjurum.
Látið yfirfara slökkvitækið fyrir jólahátíðina.
Opið alla virka daga frá 14-18
að Skildingavegi 10-12
(við hliðina á útsölumarkaði bæjarfógeta).
SIMI SLÖKKVITÆKJAÞJÓNUST-
UNNAR ER 12940 OG HEIMA 11190