Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1988, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1988, Blaðsíða 7
FRÉTTIR - Þriðjudaginn 13. desember 1988 Krakkar í jólakorta- hugleiðingum Nú fer hver að verða síðastur að fá sér jólakortaefni fyrir jólin. Efnið í kortin færðu á FRETTUM 7 LESENDABRÉF Frá Bréfberum: Skammdegi$bæn UPPHAF: ÍBUNDNU MÁLl B/£N ER GERÐ, Á BORÐIÐ LEGGJUM SPILIN. SUMIR ERUSEINTÁ FERÐ, OG SJÁ VARTHANDASKILIN DÆMI: PÓSTFREYJURNAR PLÆGÐUSNJÓ, OG PLÆGÐU MYRKRIÐ LÍKA. PÓ HÚSIÐ YFIR BIRTUBJÓ, EN BA UÐ ÞEIM ENGA SLÍKA. ÚRBÓT: ER BERUM YKKUR BLÖÐ OG PÓST, BRÝNUST VIRÐIST ÞÖRFIN. VIÐ ÚTIDYR SÉ LESTRARLJÓS, ÞAÐ LÉTTIR OKKUR STÖRFIN. NIÐURSTAÐA: ÞÚ MUNTSPARA ÞREYTTUM SKREF, ENÞAÐ SEM UPPÚR STENDUR: JÓLAKORT OG KRÖFUBRÉF, KOMASTíRÉTTAR HENDUR. BRÉFBERAR Fleiri og fleiri bátar koma með ruslið í land - Vantar fleiri ruslílát á bryggjurnar. Skipverjar á loðnubátnum Sighvati Bjarnasyni VE, sem landaði fyrir skömmu, vöktu athygli blaðsins á því að rusla- ílát á bryggjunum eru ekki nógu stór. Koma þeir með allt sorp sem til fellur í land. Sögðu þeir að alltaf fjölgaði bátum sem það gera. Er þetta orðið það mikið að kassarnir á bryggjunum eru orðnir of litlir og of fáir. Blaðið snéri sér til Sigurgeirs Ólafssonar hafnarstjóra sem sagði að þetta stæði til bóta. Unnið væri að því að smíða ruslagáma og yrði þeim komið fyrir fljótlega. „Við verðum varir við þetta, að fleiri bátar koma með ruslið að landi, sem er mjög ánægjuleg þróun. Vil ég hvetja sjómenn til að hafa samband við hafnarverði, ef það vantar kassa, við erum með nokkra til vara, ef með þarf,“ sagði hann. Jólapóstur Til að tryggja skil á pósti fyrir jól þarf hann að póstleggjast í síðasta lagi eftirtalda daga: Flugpóstur til landa utan Evrópu . . . mánudag 12. desember Flugpóstur til Evrópulanda .fimmtudag 15. desember Innanlands .........laugardag 17. desember Innanbæjar ........miðvikudag 21. desember. Afgreiðslutími pósthússins er alla virka daga frá kl. 09:00 til kl. 16:30. Auk þess verður opið í desember sem hér segir: Laugardaginn 17. desember . frá kl. 09:00 til 16:00. Frá 19. til 23. desember .. opið til kl. 18:00. Laugardag24. desember (aðfangadag)... frákl. 09:00til 12:00 PÓSTUR OG SÍMI VESTMANNAEYJUM ———————————— Við minnum ykkur á að koma tímanlega með jólafatnaðinn í hreinsun fyrir hátíðarnar!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.