Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Qupperneq 8
8 Kemur mjög vel út Svanfríður Jóhannsdóttir er tveggja barna móðir og það þriðja er á leiðinni. Eldra barnið er 10 ára og það yngra 2ja ára. Eiginmaður hennar, Sigurbjörn Egilsson, er sjómaður um borð í Gjafari. Svanfríður hefur verið heimavinnandi síðan 1991. „Mér tinnst þetta koma mjög vel út að vera heimavinnandi með tvö böm. Mér finnst þægileg tilfinning að vera heima með bömunum sérstaklega þegar eigin- maðurinn er mikið á sjó. Og þeint finnst gott að vita af mömmu heima, sérstaklega eldri stelpan þegar hún kemur úr skólanum. Það er sólarhringsvinna að sjá um heimilið og bömin þó komi auðvitað pásur inn á milli. Peningalega tekur því varla fyrir okkur. Maðurinn minn getur notað skattkortið, við borgunt ekki barnaheimilispláss og svo er bakað og sparað á ýmsan hátt sem ekki væri eins auðvelt að gera og ef ég væri útivinnandi,“ segir Svanfríður. Þrátt fyrir að vera heimavinnandi gætir Svanfríður þess að loka sig ekki af innan veggja heimilisins. Hún reynir að komast innan um annað fólk, hittir vini og kunningja og sækir mömmumorgna. Hins vegar finnst henni viðhorfið í þjóðfélaginu enn frekar neikvætt gagnvart heintavinnandi húsmæðmm þótt það sé að breytast og sé jákvæðara en áður. „Stundum er sagt við mig: Ertu BARA heimavinnandi húsntóðir. Mértinnst það hálf ntóðgandi. Auðvitað er jafnréttisgrundvöllur að konan vinni úti en aðstæður eru þannig að maðurinn hefur meiri tekjumöguleika. Ég álít það hins vegar forréttindi að vera heima með bömin á meðan þau em svona lítil. Og þetta kemur öðruvísi út hjá sjómannsfjölskyldum þar sem konan ber ábyrgð á öllu í landi," segir Svanfríður. Svarar varla kostnaði að vinna úti Sigríður Gunnarsdóttir er þriggja barna móðir og er heimavinnandi. Börnin eru frá 2ja ára og upp í 7 ára. Eiginmaður hennar, Stefán Laufdal Gíslason, er sjómaður. Hann rær á Sigurði VE sem landar mikið fyrir norðan og því eru útilegurnar oft langar. „Ég ætla að njóta þess að vera heima með bömunum mínum á meðan þau eru lítil. Sá tími kemur ekki aftur. Þau eru voðalega ánægð með þetta og finnst þægi- legt að hafa mömniu heima. Elsti strákurinn er á skólaaldri og þau yngri á leikskóla. Stráknum finnst gott að koma heima úr skólanum og hafa mömrnu heima," segir Sigríður. Hún segir að vissulega hafi það kosti og galla í för með sér að vera heima- vinnandi húsmóðir. Stundum sakni hún þess að vera ekki úti á vinnumarkað- inum en á móti kentur öryggið að vera heima með bömin og ávallt til taks. En hvernig finnst henni viðhorfið í samfélagi vera gagnvart heimavinnandi húsmæðrum? „Það er misjafnt. Sumir eru hissa og segja: Ertu bara heima. En rnargir eru á þeirri skoðun að við eigum að njóta þess að vera heima meðan bömin em lítil." Sigríður bendir jafnframt á að það svari varla kostnaði fyrir sig að fara út á vinnumarkaðinn. Verkakonur hafi ekki meira en 500 kr. á tímann. Vinni þær hálfan daginn hafi hafi þær ekki mikið upp úr krafsinu því eiginntaðurinn getur notað skattkort konunnar þegar hún er heimavinnandi sem eru 22 þúsund kr. á mánuði. Á móti sé hægt að spara ýmislegt sem heimavinnandi, t.d. með því að sauma á bömin, baka o.s.frv. Sigríður umgengst töluvert aðrar heimavinnandi húsmæður. Hún fer einnig á mömmumorgna í Landakirkju á miðvikudagsmorgnum. Hún reynir að gera eitt- Itvað fyrir sjálfa sig og er t.d. í Hressó. í haust lauk hún leiðbeininganámskeiði í þolfimi og gæti hugsað sér að kenna þolfimi í framtíðinni. Fréttir Fimmtudagur 14. nóvember 1996 Heimavinnandi og líkar það vel Mitt í allri jafnréttisumræðunni í dag eru til ungar mæður sem kjósa að vera heimavinnandi, sjá um börn og bú og reka heimilið. Þær eru hluti af kynslóð sem er alin upp við þau viðhorf að konur fari út á vinnumarkaðinn. Fyrr á öldinni var tíðarandinn, viðhorfið og félagslegar aðstæður þannig að konur voru heimavinnandi. Á áttunda áratugnum komst jafnréttisumræðan á koppinn fyriralvöru, konur fóru unnvörpum út á vinnumarkaðinn og karlar hafa tekið meiri þátt í heimilisstörfum og uppeldi þótt enn virðist töluvert í land í þeim efnum enn sem komið er. En nú virðist sem að hringurinn sé að lokast. Eftirsóknarvert virðist hja ungum konum að vera heimavinnandi þegar börnin eru ung. En í samfélagi nútímans þarf orðið tvær fyrirvinnur til þess að ná endum saman og þess vegna er ekki öilum mæðrum kleift að vera heimavinnandi. Blaðamaður ræddi við nokkrar ungar heimavinnandi húsmæður um viðhorf þeirra og samfélagsins til þess að konan skuli vilja vinna inni á heimilinu, a.m.k. tímabundið á meðan börnin eru lítil. Einnig var komið við á mömmu- morgni í Landakirkju. Samantekt: Þorsteinn Gunnarsson Samfélag heimavinnandi hús- mæðra endurspeglast að mörgu leyti í Möniniumorgnum í Landa- kirkju. A hverjum miðvikudags- morgni hittast mæður til að bera saman bækur sínar. Flestar eiga það sameiginlegt að vera heima- vinnandi. Að sögn séra Jónu Hrannar Bolladóttur, er fyrirmyndin að mömmumorgnum bresk. Þegar ný fjölskylda flutti irtn í hverfið opnaðist leið kvenna í kvennasamfélagið í gegnum mömmumorgna. „Þetta er lfka hugsunin með mömmumorgna í íslensku kirkjunni. Algengt er að konur, sem eru nýfluttar hingað, hafa nýtt sér mömmumorgna sem aðgengi í samfélagið. Ég ákvað að hrinda mömmumorgnum af stað þegar við komum til Eyja. Ég var ný hér og græddi á því sjálf að hitta konur á mömmumorgnum," segir séra Jóna Hrönn. Mæður og böm hittast í safnað- arheimiii Landakirkju á miðviku- dögum kl. 10. Á meðan bömin leika sér fá mæðumar sér kaffi. margar taka með sér handavinnu, og svo eru ýmis mál rædd og konur miðla af reynslu sinni. Upp úr kl. 11 er farið í Landakirkju og þar fer fram 10 til 15 mín. helgistund. „Ég lít einnig á mömmumorgna þannig að konur séu að styðja við trúarlegt uppeldi bama sinna. Tilgangurinn er m.a. að mæður og böm upplifi kirkjuna sem sitt annað heimili. Oft em skemmtilegar umræð- ur á mömmumorgnuin. Mæðurnar skiptast á skoðunum um uppeldismál og svo eru þjóðfélagslegar og heim- spekilegar vangaveltur um ýmsa hluti. Ég hvet konur sem em uýfluttar hingað til að sækja mömmumorgna því þær kynnast öðrum konum og taka þátt í uppbyggilegu samfélagi," segir séra Jóna Hrönn. Upphaflega átti að lialda fyrirlestra fyrir konurnar af og til. En þar sem bergmálar svo mikið í safnaðarheimil- inu og bömin geta látið vel í sér heyra, reyndist ekki grundvöilur fyrir því. Þess í stað hittast konumar tvisvar á ári án bama að kvöldi til og hafa það huggulegt. Forréttindi að vera heima með börnin Matthildur Úlfarsdóttir er þriggja barna móðir og er heimavinnandi. Frumburðurinn er í skóla en tví- burarnir eru tveggja ára og á leikskóla hálfan daginn. Heiinilis- faðirinn, Jóhann Helgi Þráinsson, er á sjó, á Gígjunni, en Matthildur hefur að mestu leyti verið heima- vinnandi síðan fruntburðurinn fæddist. „Mér finnst þetta koma Ijómandi vel út. Elsta stráknum, Axel Frans, finnst gott að vita af mömmu heima og að koma heim. Hann talar um það sjálfur. Sumir skólafélagar hans fara á skóladagheimili og ég er viss um að það er ágætt. En það hlýtur að vera gott að koma beint heim úr skól- anum,“ segir Matthildur. Um viðhorfið í samfélaginu segir Matthildur það vera upp og ofan. Hún segist t.d. eiga vinkonu sem er að vinna úti með lítil böm vegna þess að peningalega þurft hún á því að halda. Ef hún gæti myndi hún vera heimavinnandi. Vinkona Matthildar kallar heimavinnandi ltúsmæður heimaliggjandi húsmæður en Matthildur er alls ekki sammála því. Áður fyrr hafi verið sjálfsagt mál að konan væri heima og sæi um böm og bú, sérstaklega í sjómannssamfélag- inu. Svo haft konan farið út á vinnu- markaðinn og viðhorfið hefði breyst. En núna er hringurinn að lokasl því konur sækist meira eftir því að vera heima með bömunum og hugsa um heimilið, sérstaklega í sjómannsfjöl- skyldum. Forsendur séu allt aðrar þar sem heimilisfaðirinn er í landi. „Að vera heimavinnandi er erfltt og ntjög kretjandi starf, það þýðir að vera á sólarhringsvakt, 24 tíma. Ekki gengur að taka sér veikindafrí þrátt fyrir háan hita eða veikindi. Þar sem eiginmaðurinn er mikið fjarverandi er í mínum verkahring að sjá um flest mál í landi, um heimilið, bömin og ýmislegt fleira. Sem sjómannskona liggur við að ég þurfi að gera við bílinn og rafmagnið. Mér finnst for- réttindi að geta verið heima með bömunum mínum og búið þeim hlýlegt og gott heimili. Ég trúi ekki öðru en að fleiri konur myndu vera heirna ef þær hefðu tækifæri tii þess,“ segir Matthildur sem t'er reglulega á mömmumorgna í Landakirkju.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.