Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Blaðsíða 12
Fréttir Fimintudagur 14. nóvember 1996 Bylting í starfsemi íþróttahreyfingarinnar í Vestmannaeyjum: Þór og Týr sameinast í Knatt- r spyrnu- og Handknattleiksfélagi ÍBV Sameiginleg tillaga lá fyrir aðal- fundum Týs og Þórs á sunnudaginn og var hún samþykkt í báðum félögum. Hjá Tý var tillagan sam- þykkt samhljóða af 38 fundar- mönnum en hjá Þór munaði litlu. Tvo þriðju þurfti til að samþykkja tillöguna og var hún samþykkt með 20 atkvæðum gegn tíu en fjórir seðlar voru ógildir. Næsta skref er að stofna nýtt félag sem hefur vinnuheitið Knattspyrnu- og handknattleiksfélag IBV. Sú vinna verður í höndum nefndarinnar sem leitt hefur viðræður við bæinn undanfarna mánuði. Tillagan sem samþykkt var á fundunum er svohljóðandi: Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Týs/íþróttafélagsins Þórs haldinn sunnudaginn 10. nóvember 1996 samþykkir samkomulag sem fulltrúar félaganna og bæjarstjómar Vest- mannaeyja undirrituðu þann 22. október 1996 með fyrirvara um sam- þykki félagsfunda. Efnisatriði samkontulagsins eru eftirfarandi: Tillaga bæjarstjómar Vestmannaeyja um aðkomu bæjarins og kaup á íþróttamannvirkjum, þ.e. fasteignum og íþróttavöllum í eigu félaganna. Að sameina félögin í nýju félagi undir merkjum héraðssambandsins ÍBV. Aðrar eignir er tilgreindar em í tillögu bæjarstjómar og skuldir sem kunna að standa eftir, verði yfirtekið af hinu nýja félagi. Týr og Þór eru því lögð niður en sameinast við stofnun nýs félags. Niðurfelling á rammasamningi bæjarins við íþróttahreyfmguna í Vestmannaeyjum. Samkomulag um rekstur og afnotarétt íþróttamannvirkja við Hamarsveg fyrir hið nýja félag. Samkomulag um rekstur íþrótta- valla bæjarins auk þeirra valla sem nú em í eigu félaganna. Samstarfssamningur milli Vest- mannaeyjabæjar og íþróttabandalags Vestmannaeyja og aðildarfélaga þess. Samþykkt ofangreindrar tillögu er bundin því að félagsfundir beggja félaganna samþykki öll ofangreind efnisatriði, þ.m.t. sameiningu félaganna. Fundirnir fela viðræðunefndum félaganna sem unnið hafa að ofangreindum málum að starfa áfram og samþykkir fullt og ótakmarkað umboð til þeirra að undirrita öll nauðsynleg skjöl til að fylgja eftir samþykkt þessari, þ.m.t. að undirrita afsöl fyrir fasteignum og öðmm íþróttamannvirkjum í eigu félagsins. Undir þetta rituðu stjómir félaganna. l"\ Í8m?:\X J |l o* mvqfi H II mmmrnJrr.mmm i Jy/Hfi! SAMNINGANEFND ÍÞRÓTTAFÉLAGANNA: Guðjón Rögnvaldsson og Viktor Helgason frá Tý og Björn Þorgrímsson og Þór Vilhjálmsson frá Þór skipuðu nefnd sem fór með ferðina í samningaviðræðum við bæinn. Nú hefur þeim verið falið að fylgja KH ÍBV úr hlaði. SamstaHssamningurínn -milli 1/estmannaeyjabæjarogíþróttabandalags VestmannaeyjaogaðildarfélagajpesssemaóalfundirPórsog Týssamþykktu. Hér með gera Vestmannaeyjabær annar svegar og Iþróttabandalag Vestmannaeyja (ÍBV) og aðildar- félög þess hins vegar, með sér eftirfarandi samstarfssamning: 1. grein. Með samningi þessum er leitast við að efla samstarf á milli bæjaryfirvalda og íþróttahreyfingarinnar í Vestmanna- eyjum enn frekar, þannig að boðleiðir og samskipti verði einfaldar og árangursríkar. Samningur þessi gildir frá undir- skriftardegi og þar til að annar hvor aðili samningsins segir honum upp og skal það þá gert skriflega með 6 mánaða fyrirvara. 2. grein. Vestmannaeyjabær greiðir árlega rekstrarstyrk til aðildarfélaga ÍBV að tillögu íþrótta - og æskulýðsráðs Vest- mannaeyja og skal upphæð styrksins ákvarðast af bæjaryftrvöldum við gerð tjárhagsáætlunar ár hvert. Á árinu 1997 verður gert ráð fyrir (þessi tala er ekki verið ákveðin) ??? krónum. 3. grein. Við úthlutun á rekstrarstyrk ár hvert skal íþrótta- og æskulýðsráð skal leggja til grundvallar tillögur frá Héraðsambandinu ÍBV, um úthlutun og skal meta sérstaklega bama - unglinga- og æskulýðstarf sem fram fer hjá aðildarfélögum ÍBV. Úthlutanir skulu taka mið af því starfi svo og ber einnig að meta möguleika félaganna á tekjuöflun í reglubundinni starfsemi félaganna og umfang starfseminnar. 4. grein. Aðildarfélög ÍBV skuldbinda sig til að skila rekstraruppgjöri til íþrótta- og æskulýðsráðs á 6 mánaða fresti, auk ársskýrslu, reikningum og fjárhags- áætlun næsta rekstrarárs, strax að afloknum aðalfundum félaganna. Þar skulu m.a. koma fram launa- og vertakagreiðslur viðkomandi félags. Þetta ákvæði er skilyrði fyrir því að viðkomandi félag eigi möguleika á úthlutun sbr. 3. grein samningsins. 5. grein. Þau aðildarfélög sem hafa með höndum rekstur á íþróttamannvirkjum bæjarins, skulu einnig uppfylla ákvæði 4. greinar, burtséð frá því hvort þau hljóti árlegan rekstrarstyrk eða ekki. Ef rekstur íþróttamannvirkja er ekki tengdur venjubundnum rekstri fé- lagsins skal ákvæði 4. greinar einnig eiga við um þann hluta starfseminnar. 6. grein. Aðilar samnings þessa eru sammála um að móta skuli heildar fram- tíðarstefnu í íþróttamálum í Vest- mannaeyjum, sem taki m.a. mið af því mikla æskulýðs- og forvamarstarfi sem íþróttahreyfingunni er ætlað að standa fyrir í framtíðinni. Vinna þarf markvisst að verkefninu, m.a. með þátttöku sérfróðra aðila. 7. grein. íþróttahreyfingin í Vestmannaeyjum mun við ráðningar á leiðbeinendum og þjálfurum gera kröfur um góða hæfileika viðkomandi til starfsins, sem og að viðkomandi sé góð fyrirmynd. Samkvæmt mörgum könnunum sem gerðar hafa verið, þá líta bömin og unglingarnir mikið upp til þjálfara sinna og leita gjaman til þeirra með persónuleg mál. Af þeirri ástæðu er rík áhersla lögð á að umræddar kröfur verði hafðar að meginreglu við ráðningu þjálfara. 8. grein. Aðildarfélög ÍBV skuldbinda sig til við ráðningu þjálfara (þar sem það á við) að hafa ákvæði í þjálfara- samningum sínum að þjálfari eða staðgengill hans skuli vera mættur 10 mínútum áður en æfing hefst, fylgja flokknum til búningsklefa og vera viðstaddur á meðan iðkendur hafa fataskipti. Að æfingastund lokinni skal þjálfari ekki yfirgefa búningsklefa fyrr en allir iðkendur eru famir úr bún- ingsklefanum. Þetta er gert til að bæta umgengni, hafa betri aga og koma í veg fýrir einelti. Þjálfari skal sjá um að umgengnisreglum mannvirkjanna sé Tveir samningar voru gerðir um rekstur íþróttamannavirkja milli KHIBV og bæjarins. Annars vegar um íþróttavellina og hins vegar um Týs og Þórsheimilið. Eru þeir að mörgu leyti samhljóða saniningi milli Knattspyrnuráðs IBV og bæjarins um rekstur á íþrótta- völlunum undanfarin ár. Hefur bærinn borgað knattspyrnuráði ákveðna um 3 milljónir á ári fyrir að sjá um allan rekstur og viðhald vallanna. Nú verða Týs- og Þórsheimilið í eigu bæjarins og verður gerður sams konar samningur við íþróttahreyfinguna um rekstur þeirra. Hér verða talin upp helstu atriðin í samningi um félagsheimilin. framfylgt í hvívetna á meðan flokkur hans er í íþróttamannvirkjunum. Mæti þjálfari eða staðgengill hans ekki, fellur æfingin niður. 9. grein. Samningur þessi hefur engin áhrif á starfsvið og úthlutanir úr Afreks - og viðurkenningarsjóði Vestmannaeyja. Gert er ráð fyrir að sérstakar fjárveitingar verði áfram í fjárhags- áætlun bæjarins vegna samninga um Pæjumót, Shellmót og Golfævintýri. Ákvörðun um framlag til reksturs golfvallar, móttöku íþróttahópa, af- nota íþróttafélaga af íþróttamann- virkjum bæjarins, áramóta- og þrettándagleði, verður tekin af bæjaryfirvöldum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ár hvert. „KH ÍBV tekur að sér rekstur á íþróttamannvirkjum Vestmannaeyja- bæjar, við Hamarsveg, það er húsnæði sem áður var í eigu Týs og Þórs. Samningur þessi tekur einungis til umræddra fasteigna, en gerður verður sérstakur samningur á milli þessara aðila, um rekstur allra íþróttavalla Vestmannaeyjabæjar, það er Löngulágar- Hásteins- Helgafells- sem og fyrrum Þórs- og Týsvelli,“ segir í samningnum en enn hefur ekki verið ákveðin upphæð sem hreyftngin fær fýrir að reka mannvirkin. Önnur helstu atriði samningsins eru m.a: „Taka má greiðslur til uppgjörs á sorphirðu - sorpeyðingar- og orku- reikningum frá Bæjarveitum, sem til falla vegna mannvirkjanna sem og Að öðru leyti \ erður ekki um frekari fjárveitingar til aðildarfélaga ÍBV að ræða á samningstímanum, nema þess sé sérstaklega getið í fjárhagsáætlun bæjarins. 10. grein. Samning þennan má endurskoða af beggja hálfu árlega, án þess að honum sé sagt upp. Þessi samningur ásamt samningum um rekstur og notkun íþróttavalla og húsa í eigu félaganna var samþykktur á fundunum á sunnudaginn. skuldajöfnunar vegna viðskipta- reiknings félagsins við Vestmanna- eyjabæ, ef til skuldar hefur verið stofnað, áður en greiðsla til félagsins fer fram og dregst umrædd upphæð frá greiðslum, sem um getur í þessari grein, til félagsins. KH ÍBV annast allar skuldbind- ingar sem félagið gerir vegna mann- virkjanna og skal greiðsla frá Vestmannaeyjabæ til KH ÍBV, sem samningur þessi getur um, vera endanleg og fela í sér alla rekstrarliði umræddra mannvirkja, þar með talin starfsmannalaun, launatengd gjöld svo og öll opinber gjöld, sem af starfseminni hljótast, nema þess sé sérstaklega getið í samningi þessum, sbr. 6. grein samningsins. Nýja félagið rekur íþróttamannvirkin

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.