Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Qupperneq 20
FRÉTTIR
Fretta- og auglýsingasíminn 481-3310 • Fax 481-1293
FLUTNINGAR • VESTMANNAEYJUM
Daglegar ferðir hverl á land sem er.
Vöruafgreiðsla
Skildingavegi 4 Sími 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavik
TVG Héðinsgafa 1 - 3
Sími 581 3030
Skoðunarferöir
Veisluferðir
, Grillferðir
Iþróttahópferðir.
Ódýr og
,góð
þjonusta.
GÍSLI MAGNÚSSON
Brekastíg 11
sími 481-1909
QM
Friðfinnur Finnbogason
(4811166 & 481 1450
m
MÚRVAL-IÍTSÝN “
m
HRESSIR SKÁTAR: Strákarnir í skátaflokknum Fálkum og Einar Örn Arnarsson, flokksforingi
þeirra, voru í útlegu í Skátastykkinu um helgina. Voru þeir á leið í sund þegar myndin var tekin
og þar tókst þeim að nú úr sér hrollinum eftir kalda nótt.
Lögreglustöðinni loknð á
nóttunni frá næstu áramótum?
Gangi niðurskurðaráform fjárlaga-
frumvarpsins fyrir árið 1987 eftir
má búast við að grípa þurfi til
verulegra breytinga á starfsemi
sýslumannsembættisins í Vest-
mannaeyjum. Gæti svo farið að
hætt yrði sólarhringsvakt á Iög-
reglustöðinni sem myndi skapa
óöryggi fyrir bæjarbúa.
Að sögn Georgs Kr. Lárussonar,
sýslumanns, hefur embættið mátt þola
verulegan niðurskurð á fjárheimildum
á undanfömum árum. Aðallega hefur
niðurskurður þessi bitnað á lög-
reglunni.
„Við höfum reynt að halda uppi
óbreyttri þjónustu með því í raun að
„stela peningum" úr öðrum deildum
embættisins og þannig náð að halda
úti sólarhringsvakt á lögreglustöðinni.
Hefur það reynst erfitt síðustu tvö árin.
Með hliðsjón af væntanlegri skerð-
ingu á árinu 1997, sem er í raun ekki
mikil í krónum talið, sjáum við okkur
ekki fært annað en að gera verulegar
breytingar á rekstri fyrirtækisins.
Þessar breytingar gætu leitt til þess að
ekki reyndist unnt að halda stöðinni
opinni allan sólarhringinn sem hefur
þau áfyif að við getum ekki annast
rekstur sjúkrabifreiðarinnar né útkalls-
kerfis slökkviliðsins og vaktkerfa
fjölda stofnana og fyrirtækja.
Ef af verður þýðir þetta fækkun í
lögregluliðinu úr 12 til 13 í 7 til 8
menn og þá emm við með sama
þjónustustig í löggæslunni og var hér í
Vestmannaeyjum um og eftir stríð.
Við gemm allt sem í okkar valdi
stendur til að koma í veg fyrir að
svona fari vegna öryggis bæjarbúa,“
sagði Georg..
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
segir að bæjarstjóm skori á stjómvöld
að tryggja fjárveitingar til löggæslu i'
Vestmannaeyjum. „Það er unnið á
öllum vígstöðvum til að reyna að
finna lausn á málinu," sagði Guðjón.
Unnið allan sólar-
hringinn í síldinni:
Að-
konw-
fólktil
bjargar
Kífandi gangur hefur verið í
síldveiðum alla vikuna og þar
með vinnslunni. Hjá Vinnslu-
stöðinni landaði Isleifur á
fimmtudag 475 tonnum, Sig-
hvatur Bjarnason á föstudag 450
tonnum, Gullberg á sunnudag
460 tonnum, Isleifur aftur á
mánudag 500 tonnum og
Sighvatur aftur á þriðjudag 700
tonnum.
Eins og þiessar aflatölur bera með
sér hefur verið stanslaus vinna alla
vikuna og var unnið alla helgina í
Vinnslustöðinni. Þór Vilhjálmsson
og Viðar Elíasson sögðu að hjá
þeim væri flakað allan sólar-
hringinn á vöktum og saltað væri
frá kl. átta á morgnana til tíu á
kvöldin. Þá hefði vantað fólk til
starfa um tíma en ræst hefði úr því,
meðal annars með aðkomufólki
auk þess sem atvinnuleysislistamir
hefðu verið nær tæmdir og nú
mætti segja að jafnvægi væri að
komast á hlutina og þeir önnuðu
vel að vinna úr þeim afla sem
bærist.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
voru 32 á atvinnuleysisskrá sem er
með því sem lægsta sem mælst
hefur á uridanfömum ámm.
Magnús Jónsson
veðurstofustjóri:
Magnús Jónsson, veðurstofu-
stjóri, segir það af og frá að færa
eigi veðurmælingar frá Stór-
höfða niður í bæ eins og greint
var frá í síðasta blaði.
„Þetta hefur ekki komið til tals hjá
mér eða öðmm sem hafa með
mælingar að gera á vegum
Veðurstofunnar," sagði Magnús í
samtali við Fréttir. „Það er enginn
fótur fyrir því að við ætlum að
leggja niður veðurmælingar á
Stórhöfða. Vita- og hafna-mála-
stofnun hefur verið að leggja niður
vitavarðastöður á flestum vitum og
þar höfum við komið fyrir sjálf-
virkum veðurathugunarstöðvum.
En við höfum sagt þeim að við
viljum halda í Stórhöfða. Hann
hefur veðurfarslega sérstöðu auk
þess sem Óskar Sigurðsson,
vitavörður vinnur þar ómetanleg
rannsóknastörf. Þannig að menn
ætla ekki að flytja mælingar þaðan.
Spurningin er hvort við fáum
fjórða ættliðinn í vinnu þegar
kemur að því að Óskar hættir,"
sagði Magnús Jónsson, veður-
stofustjóri þegar rætt var við hann
á þriðjudaginn. Eins og kunnugt er
er Óskar þriðji ættliðurinn sem
gegnir starfi vitavarðar í Stórhöfða.
m
m
m
m
"I m
VIKJJTLLBCO
Jóla piparkökuhús
(Þessi vinsælu, sem
seldust upp á 2
dögum í fyrra)
Verð áður kr: 398--
Nú aðeins kr:
318,-
Kymiing í
Clubkexog
Kavli smurostar
BKI kaffi extra 400 gr.
2 pakkar + Oxford kex
Verð áðurkrH&l-
Núaðeinskr:
Annas
Piparkökur
Verð áður
kr: 138.-
Verð nú
aðeins kr:
477,- 117,-