Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Blaðsíða 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 22. janúar 1998 • 3. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
Gullborg VE 38 til sölu:
Byrjunin á enn frekari
fækkun í Eyjaflotanum
-Lítill kvóti og neikvæð afstaða í garð útgerðarmanna aðalástæðan, segir annar eigandinn
Gullborg VE 38, einn frægasti
bátur Vestmannaeyja frá upphafi,
er til sölu ásamt 338 þorskígilda
kvóta. Er hún ein þriggja Eyjabáta
af minni gerð sem auglýstir hafa
verið til sölu að undanförnu. Annar
eigandi Gullborgar segir að kvótinn
sé ekki nægur til að standa undir
rekstrinum og neikvæð umræða í
þjóðfélaginu í garð útgerðarmanna
geri það ekki fýsilegt að reyna að
halda áfram baráttunni á þessum
vettvangi.
„Ég held að þetta sé bara byrjunin á
því að bátum í Eyjum af þessari stærð
fari að fækka meira en orðið er,“ segir
Friðrik Benónýsson, annar eigandi
Gullborgar, sem auglýsti hana til sölu
í Morgunblaðinu sl. sunndag. „Áður
var búið að auglýsa Skúla fógeta VE
og Hrauney VE og ég hef grun um að
þeim eigi eftir að fjölga. Það er heldur
ekki hvetjandi fyrir okkur. sem
stöndum í að gera út, hvað umræðan í
þjóðfélaginu er neikvæð í okkar garð.
Eftir að farið var að tala um
auðlindaskatt á útgerðina er litið á
okkur sem þjófa. Það er hreint með
ólíkindum að ein stétt skuli þurfa að
sitja undir slíku."
Gullborg VE 38 er um 100 brúttó-
lesta eikarbátur, smíðaður í Nyborg í
Danmörku árið 1946 fyrir Færeyinga
sem ætluðu að stunda á henni veiðar
við Grænland. Hún keypt til Islands í
kringum 1950 og endurbyggð frá
grunni á árunum 1967 og 1968 og þá
var sett í hana ný aðalvél sem reyndar
var þá tíu ára gömul. Kvótinn er 338
þorskígildi, 218 tonn þorskur, 62 tonn
ýsa, 68 tonn ufsi, 9,4 tonn karfi og 0,5
tonn af steinbít.
„Ef ég fæ gott tilboð hika ég ekki
við að selja bátinn. Það var ekki
meiningin að gera Gullborgu út í
vetur en við eigum megnið af
kvótanum eftir. Hann er reyndar það
lítill að hann dugar ekki nema í
ljögurra til ftmm mánaða úthald. Við
erum ekki einir um að vera í þessari
stöðu, því fæstir bátar í Eyjum hafa
rekstrarkvóta og þá er ekki um annað
að ræða en leigja kvóta en sá
markaður er alltaf að þrengjast."
Gullborg er sennilega frægasta
aflaskip Vestmannaeyja frá upphafi.
Benóný Friðriksson, betur þekktur
sem Binni í Gröf eða Binni á
Gullborginni, var skipstjóri frá því
báturinn kom til landsins þangað til
hann hætti sjómennsku árið 1972. Þá
tóku synir hans þeir Friðrik og
Benóný við útgerðinni. Binni var
þekkt aflakló og margfaldur afla-
kóngur í Eyjum á meðan hann var
upp á sitt besta. í frægu kvæði Ása í
Bæ, segir hann um Binna í Gröf að
hann hafí dregið um 60.000 tonn
djúpum sjávarins. Það verður að
teljast góður árangur á ekki stærra
skip._____________________________
í frostinu í síðustu viku lagði
Daltjörnina í fyrsta skipti á
þessum vetri. Þeir voru færri en
ætla mætti sem gripu tækifærið
til að bregða undir sig
skautunum. Rósa Sigurjónsdóttir
lát þó ekki segja sér það tvisvar
og sveif um ísinn í góða veðrinu
á sunnudaginn. Það segist hún
gera flesta vetur. ísinn var
óvenju sléttur og sagði Rósa
þetta hina bestu hressingu.
Ráða ólíkir hagsmunir siðferði í sjávarútvegiP
Síðastliðinn þriðjudag var haldið fyrsta
umræðukvöldið um siðfræði sjávarútvegs.
Góð mæting var á fundinuni, þótt heldur
hafi hann verið dauflegur og menn ekki
alveg verið með það á hreinu hvaða llötur
væri heppilegastur til þess að taka á
málefninu.
Hafsteinn Guðfinnsson sjávarlíffræðingur flutti
framsöguerindi en í panel sátu Amar Hjaltalín,
fulltrúi fiskvinnslufólks. Amar Sigurmundsson,
fulltnii landvinnslunnar, HilmarRósmundsson
fulltrúi útgerðarmanna, Pétur Árnmarsson full-
trúi smábátasjómanna og Valmundur Val-
mundsson fulltri Sjómannafélagsins Jötuns.
Almennt voru menn bundnir af efnahags- og
byggðarsjónarmiðum í málfluttningi sínurn.
Kannski spurðu menn ekki réttra spuminga á
þessu umræðukvöldi. kannski vegna þess að
menn áttu erfitt með að finna sjónarhól
líffríkisins og staðsetja sig þar, enda ekki að
furða því nokkuð langt er síðan maðurinn
yfirgaf heimkynni hafsins. Þannig tjarlægist
maðurinn alltaf uppruna sinn á mörgum
sviðum.
Hafsteini Guðfinnssyni sjávarlíffræðingi
talaðist ágætlega, en heldur var erindi hans
nteira grundað á sagnfræði en siðfræði þrált
fyrir að hafa í upphafi máls síns skilgreint
hugtakið siðfræði út frá orðabókinni, ergo; það
að breyta rétt, það að hegða sér rétt. Sjónarhóli
lífnkisins vai' því lftill gaumur gefinn, hins vegar
var mun meira fjallað um þær rannsóknir sem
Hafrannsóknastofnun stendur að og hefur staðið
að. en hvort þær rannsóknir ættu að vera í þágu
heildarinnar eða hagsmunahópa var ekki
skilgreint. Hvemig á maðurinn að hegða sér í
umgengni við lífríkið þannig að hagsmunir
heildarinnar séu hafðir að leiðarljósi? Menn
vissu jafnvel hvað væri rétt og hvað væri rangt.
en hagsmunahópamir höfðu allir misjafnar
skoðanir á því með hvaða hætti ætti að nálgast
þetta „rétta". Hin vísindalega hlutlæga aðferð
verður að vera óháð hagsmunum einstaklinga
og stofnanna, annars er hætta á fyrirfram
pöntuðum niðurstöðum, sent koma heildinni lítt
til góða. Virtist sem hagsmunir réðu meira og
minna siðferðisgrundvelli sjávarútvegsins.
Menn hafa yfirleitt fögur orð um það að hverju
beri að stefna, en það er oft stutt í það sem
sumum finnst einkenna siðferðisgmnn þjóðar-
innar; nefnilega „jretta reddast allt saman“. Það
vantaði sárlega að menn veltu fyrir sér
hugtökum eins og ábyrgð, dómgreind, vali, sekt,
sakleysi og svo mætti lengi telja. Menn búa yfir
mörgum hugtökum sem þeir geta beilt fyrir sig
til að spyrja spuminga sem náttúran stillir
mönnum frammi fyrir, en svörin geta að sama
skapi verið jafn rnörg.
Að loknum framsögum var svarað fyrir-
spumum úr sal. Páll Marvin Jónsson lýsti til
dæmis eftir sjónanniði lífríkisins, en sagðist
sjálfur ekki vera nógu heitur umhverfissinni til
þess að geta talað lyrir það. Kannski gæta
umhverfissinnar þessa íjöreggs sem menn náðu
ekki að höndla á fundinum og í framhaldi af því
er rétt að spyrja hvort ástæða sé til að fá einn
slíkan í panelinn.
YGGI
IR
LDUNA
gingamálain
' ægilegan I
Bílaverkstæðið BRAGGINN síf.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 48132
Vetraráœtlun
Alla daga nema sun.
sunnudaga
Frá Eyjum:
Kl, 08:15
Kl: 14.00
Frá Þorl.höfn:
Kl. 12:00
Kl: 18.00
Heriólfur
BRUAR BILIÐ
Sími 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúðin
Heiöarvegi 9 - Sími 481 1434