Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Page 15

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Page 15
Fimmtudagur 22. janúar 1998 Fréttir 15 Bíkardraumurinn útí Grátlegt hjá strákunum Það var rafmagnað andrúmsloft í höllinni. þegar Eyjamenn mættu Val í undanúrslitum bikarkeppn- innar, hér í Eyjum í gærkvöldi. Stemmningin var frábær, með hljómsveitina Stallahú í broddi fylkingar. Eftirlitsdómari leiksins hafði einhverjar athugasemdir við spilamennsku hljómsveitarinnar og stoppaði leikinn tvisvar í byrjun leiks. Það virkaði sem yítamín- sprauta á stuðningsmenn IBV sem studdu lið sitt dyggilega. Það dugði ekki til, því Valur vann 22 - 23. Valsmenn byrjuðu leikinn af aðeins meiri krafti en Eyjamenn misstu þá aldrei langt framúr sér. Fyrri hálfleik- ur einkenndist af mikilli spennu og baráttu. Vamir beggja liða voru mjög þéttar og því áttu bæði lið í talsverðu basli með sóknarleik sinn. Staðan í hálfleik var jöfn, 12- 12. Seinnihálf- leikur var jafn fjörugur og sá fyrri og voru bæði lið að spila bráðskemmti- legan handbolta. Spennan hélst allt til loka og skildu aðeins I - 2 mörk liðin að. Því miður voru Valsmenn sterkari í lokin og rétt mörðu sigur, 22-23. Eyjamenn eiga heiður skihnn fyrir góða frammistöðu í gærkvöldi. Greinilegt var að strákamir ætluðu að selja sig dýrt, sem þeir og gerðu en það dugði ekki til í þetta skiptið. Homamenn IBV höfðu ekki úr miklu að moða en skyttumar stóðu sig vel, með Robertas fremstan í flokki. Sigmar Þröstur varði vel að vanda og hreiniega lokaði markinu á síðustu tíu mínútunum. „Þetta var alveg grátlegt. Við vomm að spila mjög vel, stuðningurinn var frábær og sigurinn gat alveg eins lent hjá okkur í lokin. Nú er bara að taka sig saman í andlitinu og koma okkur í úrslita- keppnina í deildinni,” sagði Svavar Vignisson, sem stóð sig mjög vel í gærkvöldi ásamt þeim Robertas, Sigmari Þresti og Guðfinni. Dómarar leiksins þoldu illa spenn- una í leiknum og vom engan veginn starfi sínu vaxnir, sem bitnaði reyndar á báðum liðum. Mörk ÍBV: Robertas Pauzuolis 6, Zoltán Belánýi 6/5, Guðfinnur Kristmannsson 4, Svavar Vignisson 3, Hjörtur Hinriksson 1, Erlingur Richardsson 1, Sigurður Bragason 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 14. Áttu aldrei von gegn Stjörnunni Án Andreu Atladóttur áttu ÍBV- stelpurnar aldrei möguleika á móti Stjörnunni í undanúrslitum bikar- keppni HSI í gærkvöldi. Leikur- inn fór fram í Garðabæ og lauk með 25 mörkum Stjörnunnar gegn 17 mörkum IBV. I hálfleik var staðan 12 - 8 Garðbæingum í vil. Stjaman gaf strax tóninn og skoraði fyrstu tvö mörkin. Um miðjan hálfleikinn var eins og IB V missti alla trú á að geta unnið og komst Stjaman í 12-6. ÍBV náði þó að skora tvö sfðustu mörkin fyrir hálfleik. Það dugði þó ekki til því Stjarnan hélt uppteknum hætti. Það var ekki fyrr en að IBV hætti að sjá von um sigur að þær fóru að leika af meiri yfirvegun og tókst þeim aðeins að klóra í bakk- ann á síðustu tíu mínútum leiksins. Jón Bragi Amarsson, þjálfari, segir að leikurinn hafi verið lélegur af hálfu IBV og stúlkumar hafi vantað alla trú á að geta unnið leikinn. „Við getum ekki ætlast til að vinna leiki þegar við erum að brenna af í hraðaupphlaupum og klikka á dauðafærum. Stjörnu- stúlkur höfðu heppnina, hefðina og reynsluna með sér og mikil stemmn- ing var á leiknum sem hjálpaði þeim líka. Á meðan gekk ekkert upp hjá okkur,“ segir Jón Bragi. Hann segir að mikill missir hafi verið að Andreu Atladóttur sem meiddist þegar fimm mínútur voru eftir af síðustu æfingu fyrir leikinn. „Það var búið að undirbúa leikinn með hana inni f myndinni og það hafði sín áhrif að hana vantaði í liðið.“ Mörk ÍBV: Ingibjörg 6, Sandra 5, Guðbjörg 4 og Stefanía 2. Eglé varði um 20 skot og var langbest í liði IBV. I síðustu viku áttust við í Nissan- deildinni IBV og Víkingur hér í Eyjum og náði leikurinn aldrei að verða spennandi þar sem yfirburðir ÍBV voru miklir í leiknum. Fyrir- fram var búist við jöfnum baráttu- leik þar sem Víkingar eru næstneðstir með þrjú stig og eru að berjast fyrir tilveru sinni í deildinni. Leikurinn fór rólega af stað og var jafnræði með liðunum fyrstu 15 mínútur leiksins. Um miðjan fyrri hálfleik skildi svo á milli liðanna þar sem ÍB V komst í 6 marka forystu, 12- 6. Vömin og markvarslan small saman og sóknarleikurinn varð liprari. Víkingar stóðu hinsvegar í stað og voru oft á tíðum sem áhorfendur að leiknum. Eyjamenn héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og var munurinn mestur II mörk, 28-17. ÍBV mætti ekki mikilli mótspyrnu í leiknum en spiluðu engu að síður skynsamlega og héldu haus. Robertas virðist fara vax- andi með hverjum leik, Belló og Hjörtur eru fljótir upp og skora mikil- væg mörk, einnig raðaði Erlingur inn góðum mörkum. Sigmar Þröstur var sem klettur í markinu og er ekki að sjá að drengurinn sé kominn hátt á fertugsaldur. Til marks um yfirburði ÍBV í leiknum fengu allir varamenn liðsins að spila síðustu mínútur leiksins. „ Við byrjuðum leikinn illa en eftir að vömin small saman og Simmi fór að verja náðum við hraðaupphlaupum og lögðum þar með gmnninn að sigri okkar. Ég er ánægður með okkar leik en h'til mótspyma Víkinga kom mér á óvart,“ sagðj hinn smái en knái homamaður ÍBV, Zoltan Belanyi að leikslokum. Mörk ÍBV: Belló 7/3, Erlingur 7, Robertas 7, Hjörtur 4, Svavar 2, Sigurður 2, Guðfinnur 2 og Haraldur 2 (stal boltanum 3 sinnum glæsilega). Varin skot: Sigmar Þröstur 14, Reynir 1. Sverrir til Malmö FF? Sverrir Sverrisson, miðjumaður- inn sterki hjá IBV, er á leið til Svíþjóðar til reynslu hjá úrvals- deildarliðinu Malmö FF. Hann verður í um eina viku og spilar a.m.k. einn æfingaleik með þeim. Jóhannes Ólafsson, formaður knattspymudeildar IBV, sagði í samtali við FRÉTTIR að einhver alvara væri í þessu en hinsvegar væri Sverrir samningsbundin ÍBV. ,Þetta mál kom nú bara upp á borðið í fyrradag en þá óskaði sænska félagið eftir að fá Sverri til reynslu. Hlutimir em fljótir að gerast þannig ef við erum að missa leikmenn, þá verðum við bara að bregðast við samkvæmt því, “ sagði Jóhannes. Aðalfundur Aðalfundur Fiskmarkaðs Vestmannaeyja verður haldinn föstudaginn 6. febrúar kl. 17.00 í Akóges við Hilmisgötu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar aðalfundastörf. Stjórnin. ~/mo> FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA HF. Hið vaska lið Framherja. I | C3&03 h n - • y /. Góður árangur Framherja -Sameining litlu félaganna ákveðin Framherjar náðu sínum besta árangri til þessa, þegar þeir urðu í öðru sæti í sínum riðli í 4. deildinni í Islandsmótinu í innanhússknatt- spyrnu. Framherjar léku til úrslita á móti Leikni frá Fáskrúðsfirði og töpuðu með einu marld, 2-3. Sigur vannst á Víkingi frá Ólalfsvík 4 - 1 og á Eyfell-ingi 8-2. Framherjar gerðu jafntefli gegn Neista Hofsósi 8-2. Framherjar áttu því bestu vömina að mati Hjalta Kristjánssonar, stjóra Framherja og þeir voru einnig með besta markahlutfallið. Mörk Framherja: Amsteinn I. Jó- hannesson gerði 6 mörk, Einar Gíslason 3, Sigmar Helgason 3, Ómar Smárason 2 og Jónatan Guðbrandsson 2. Ingólfur Jóhannesar var bestur Framherja ásamt Einari sem lék einnig í markinu. Aðaifundur Félag kaupsýslumanna heldur aðalfund laugardaginn 7. febrúar á Hertoganum, Vestmannabraut 28. Fundurinn hefst með borðhaldi kl. 20.00 (8). 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. 3. Skemmtiatriði. Vinsamlegast hafið samband hjá Axel Ó., sími 481-1826 eða Mozart sími 481-1820. Mætið vel Nýir félagar velkomnir. Félag kaupsýslumanna. Samdning Nýlega var ákveðið að Framherjar og Smástund sendi sameiginlegt lið í 3. deild íslandsmótsins í knattspymu undir nafninu KFS, (Knattspymufé- lagið Framheijar/Smástund). Nýr formaður er Magnús Stein- dórsson. Þjálfari verður Hjalti Krist- jánsson. KFS hefur boðið ÍBV allt það samstarf sem þeir kæra sig um. Bærinn felldi niður styrk til Framherja og Smástundar á síðasta ári. Félögin em því skuldum vafin. Þeir sem vilja styrkja hið nýja félag geta tippað á félagsnúmer félagsins sem er 904. Tippað er á föstudögum á Helga- fellsbraut 20, kl. 20.00. Félögin hafa ekki heldur fengið Lottópeninga frá ÍBV og njóta því engra styrkja starfsemin kostar 1 milljón á ári. Tap gegn Val Annar flokkur karla í handknattleik spilaði einn leik í íslandsmmójinu hér heima um síðustu helgi. ÍBV liðið fékk þá lið Vals í heimsókn og átú á brattann að sækja allan tímann og tapaði með 8 marka mun, 14 - 22. Eyjastrákar máttu sín lítils gegn sterkri vöm og góðum markmanni í byrjun leiks og náðu ekki að skora fyrsta mark sitt fyrr en rúmlega 13 mínútur vom liðnaraf leiknum. En í vöminni stóðu þeir sig vel ásamt góðri markvörslu Reynis og var staðan, 7-9 í hálfleik. í seinni hálfleik tóku Valsmenn leikinn í sínar hendur og juku forsTot sitt jafnt og þétt. Sóknarleikur ÍBV var ekki nógu góður, boltinn gekk illa manna á milli og vom strákamir að reyna að gera allt upp á eigin spýtur. Þó sáust einstaka góð tilþrif gegn góðu liði Valsmanna, sem hafa á að skipa einu besta liði landsins í þessum aldursflokki. En lokatölur, 14-22. Reynir Pálsson, markmaður stóð sig einna best Eyjastráka. Ljóst er að í 2.flokki ÍBV er margir efnilegir leikmenn, sem eiga ömgglega eftir að skila sér upp í meistaraflokk ef rétt er haldið á málum. Mörk ÍBV: Richard 4, Jón Helgi 3/2, Elías Ingi 2, Sigurður S. 1, Unnar 1, Þorsteinn I, Sigurður E. 1 og Gunnar Bergur 1. Varin skot: Reynir 11/1, Davíð 2/1. Óheppnir Helgina 9.-11 .janúar fór fram ís- landsmótið í innanhússknattspymu 4.flokks karla. Strákamir voru mjög óheppnir og misstu leiki niður í jafntefii eða tap á síðustu sekúnd- unum. Úrslit leikja urðu þannig: ÍBV - Þróttur Vogum 1 - 0 ÍBV - ÍA 3-3 ÍBV - Þróttur Rvk. 2-3 ÍBV - Víðir Garði 1-1 ÍBV - KFR 2 - 1 Því miður komust Eyjastrákar ekki í úrslit en marga ljósa punkta var að sjá í leik þeirra. Sigurlás Þorleifs- son stjómaði flokknum og Kristinn R. Jónsson, sem mun þjálfa flokkinn í sumar, var honum innan handar. Sott á brattann Fimmta flokki karla gekk mjög illa á íslandsmótinu í innanhúss- knattspymu og vann aðeins 1 leik í sínum riðli. Sigurlás Þorleifsson, þjálfari, sagði að mikið hefði verið um forföll hjá sínum strákum og einnig hefði reynsluleysi verið áberandi. „Það var þétt spilað, aðeins 1 leikur á milli okkar leikja þannig að það var margt sem varð til þess að árangurinn varð ekki betri en raun bar vitni," sagði Sigurlás að lokum. En úrslit leikjanna fóru sem hér segir: ÍBV - ÍR 2-8 ÍBV - Fjölnir 0 - 3 ÍBV - FH 1-1 ÍBV - Njarðvík 3 - 2 ÍBV -Þróttur 0-7 Gísli í ÞórAk. Varamarkmaður mfl.ÍBV í knatt- spyrnu, Gísli Sveinsson, hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir Eyja- manna og ganga til liðs við I. deildar lið Þórs frá Akureyri. Þetta kemur á slæmum tíma fyrir ÍBV, sem þarf að finna annan markvörð.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.