Fréttir - Eyjafréttir - 29.01.1998, Síða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 29. janúar 1998
CQW MING LIN,
KALFALUNDIR
Ég þakka vini
m í n u m
G u ð m u n d i
Ágústsyni ef vin
skyldi kalla
hóflega mikið
fyrir áskorunina
og ég vona að
hefndin síðan úr
p....keppnini sé þá lokið for ever.
COW MING LIN,
KÁLFALUNDIR.
4-500 gr kálfalundir
I stk pressuð engiferrot
4 rif pressaður hvitlaukur
Sati úr einni sitrónu
6 msk sojasósa
3 msk tandoori masala (rajah)
1 stk lítill blaðlaukur
1 græn paprika
1 dós water chestnuts
2 stk rauðir laukar
2 stk gulrætur
1 kúfuð msk hnetusmjör
1 kúfuð msk hunang
2 msk kókosmjöl
olía til steikingar
hrísgrjón
Marinering
Skerið kjötið í strimla fyrir
marineringu. Marineringarvökvinn er
gerður úr sojasósunni, pressuðum
hvítlauknum og engiferrótinni
safanum úr sítrónunni og tandoori
kryddinu. Þessu er öllu blandað vel
saman. Veltið kjötinu upp ú leginum
og látið liggja í um 4 klukkustundir.
Þá er grænmetið undirbúið. Skerið
blaðlauk papriku lauk og gulrætur í
strimla en water chestnuts í sneiðar.
Steiking.
Hitið um 2 dl. Af olíu í wokpönnu,
snöggsteikið grænmetið hverja
tegund fyrir sig þannig að það verði
frekar stinnt og síðan water chestnuts.
Kjötið er steikt í áföngum og gæta
verður þess að steikja ekki of mikið í
einu. Þegar því er lokið er kjötinu og
grænmetinu blandað saman í
pönnunni.
Bræðið hnetusmjör og hunang saman
í pott og hellið yfir réttinn. Loks er
kókosmjöli stráð yfir og öllu blandað
vel saman.
Þá er rétturinn tilbúinn. Hann er
borinn fram með hrísgrjónum og
kókosmjöli í skál svo hver geti fengið
meira eftir smekk.(þetta síðastnefnda
á sérstaklega við um mig)
Ég mæli með því að rétturinn sé
borðaður með prjónum svo rétta
stemmingin fáist við borðið og ekki
sakar að hafa gott rauðvfn með og að
sjálfsögðu eðal koníak svo sem
Meukow V.S.O.P. eftir
uppvaskið,(eitt glas Gummi).
Næsti keppandi!!!!!
Eftir mikla hugsun og
útilokunaraðferðina kom bara eitt
nafn upp í huga mér og var það
eftirsóttasti piparsveinninn í bænum
(að eigin sögn) og stórkokkurinn ofan
af Skeiðarársandi, er menn glímdu
við gullleit á þeim tíma en fengu bara
togara.
Þetta er Haraldur Þór Guðbrandsson
vélvirki hjá Völundi hér í bæ.
TOLUUR, TOLVUR OG TOLIIUR
Sú bylting hefur orðið í starfsemi
blaðsins Frétta að blaðið er orðið
veftengt við Internetið. Það hefur
í för með sér að unnt er að
náigast efni blaðsins á vefnum.
Heimasíða Frétta varað mörgu
leyti orðin úrelt og varsett upp ný
heimasíða. Sá sem á heiðurinn
af henni er töivuáhugamaðurinn
Konráð Einarsson en hann hefur
oftlega verið okkur á Fréttum
innan handar ef eitthvað hefur
bjátað á í tölvumálum og oftast
fljótur að kippa hlutunum í lag.
Konni er tölvuáhugamaður
númer eitt, tvö og þrjú og fátt
annað sem kemst að hjá honum.
Hann er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Konráð Einarsson.
Fæðingardagur og ár? 4. desember
1948.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Unni
Katrínu Þórarinsdóttur og við eigum
tvær dætur, Rannveigu og Silju.
Menntun og starf? Gagnfræðingur.
Verkamaður í mjölvinnslu
Vinnslustöðvarinnar.
Laun? Alltoflág.
Helsti galli? Ætli það sé ekki of mikill
tölvuáhugi, það segir Unnur Katrín að
minnsta kosti.
Helsti kostur? Að mínu mati er það
mikill áhugi á tölvum..
Uppáhaldsmatur? Flest það sem
Unnur matreiðir, t.d. kjötsúpa..
Versti matur? Þetta helv... sem fylgir
saltkjötinu á sprengidaginn og kallast
baunir.
Uppáhaldsdrykkur? Blávatn, það er
það eina sem maður má orðið drekka
án þess að vera hundskammaður.
Uppáhaldstónlist? Öll góð tónlist,
það sem Silja hlustar ekki á.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir? Gettu þrisvar. Auðvitað að sitja
við tölvuna.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
gerir? Að vera fjarri tölvunni.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Ég fengi engu
um það að ráða. Ef svo ólíklega vildi til
þá myndi ég fjárfesta í tölvubúnaði.
Raunar var ég að kaupa tvær raðir í
Víkingalottói svo það er aðdrei að vita.
En Unnur Katrín passar að geyma
miðana.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Hjörleifur Guttormsson, hann er svo
neikvæður.
Uppáhaldsíþróttamaður? Palli
Pálma, vinnufélagi minn.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Verkalýðsfélagið er það
eina sem ég man eftir. Svo fæ ég alltaf
send fundarboð frá Kaupfélagi
Árnesinga svo að ég er líklega í því
líka.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Horfi lítið
á sjónvarp, einstöku sinnum bíómyndir.
Uppáhaldsbók? Access Bible.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Reyni að komast hjá því að gera
nokkurn skapaðan hlut.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Léttleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Fýla.
Fallegasti staður sem þú hefur
komiðá? Mývatn.
Hvernig vaknaði þessi tölvuáhugi
þinn? A sínum tíma voru tölvupistlar í
Mogganum. Ég byrjaði að lesa þá og
þar vaknaði áhuginn. Ég man að þar
stóð eitt sinn að tölvur væru allltaf að
lækka í verði en ef menn ætluðu alltaf
að bíða eftir lægra verði þá yrði ekkert
úr tölvukaupum. Svo að ég fórnaði
reykingunum og fjárfesti í tölvu og það
var ekkert vesen með það.
Hefurðu stundað eitthvert
tölvunám? Nei, þetta er algerlega
sjálfsnám, aðallega fikt.
Hvað heldurðu að búnaðurinn þinn
sé mikils virði peningalega? Hann
er alltaf að lækka í verði, kannski um
300 þúsund.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir
þessi orð?
-Tölva? Konni.
-Internetið? Tölvun.
Eitthvað að lokum? Nei, ég segi það
ekki.
Nýfœddir Vestmannaeyingar
Stúlka
Sigrún Olga
Gísladóttir og
Andrés
Bragson
eignuðust
dóttur þann
ló.janúarsem
hefur verið
nefnd Agnes
Svava. Hún
vó 12,5
merkur og
var 50 sm. að
lengd. oger
fyrsti
Vestmannaey
ingurinn sem
fæðist á þessu
ári.
Ljósmóðir
var Guðný
Bjamadóttir.
Stúlka Þann 19. janúar eignuðust Hólmfnður
Sigurpálsdóttir og Stymiir Gíslason dóttur. Hún vó 13 merkur
og var 51 sm. að lengd. Hún hefur verið nefnd Margrét Rún og
með henni á myndinni er stóri bróðir Bjarki Þór Ingason.
Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir
Stúlka Þann 26. janúar fæddist Sigríði Ágústu
Þórarinsdóttur og Hilmari Jóni Stefánsyni dóttir. Hún vó 18
merku og mældist 57 sm. að lengd. Með henni á myndinni em
systkini hennar, Þórarinn og Sólveig. Ljósmóðir var Drífa
Bjömsdóttir.
Útsala í Oddinum
Fram að helgi verðum við með útsölu
á ýmsum tegundum gjafavöru.
30 ~ 50% afslátturí
RITFANGA- OG GJAFAVÖRUVERSLUNIN
ODDURINN
STRANDVEGI 45 - SÍMI 481 1945