Fréttir - Eyjafréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 29. janúar 1998
Fréttir
15
Hjónaleysi í
handbolt-
anum en hjá
sitt hvoru
félaginu
Þau Erlingur Richardsson og
Vigdís Sigurðardóttir leika bæði í
meistaraflokki í handbolta en eru í
sinn hvoru liðinu.
Erlingur leikur með IBV og er
bæði sterkur í vörn og á línunni.
Vigdís er aftur á móti í markinu
hjá Haukum. Og á meðan
Erlingur mátti sætti sig við
jafntefli á móti Val um helgina
burstuðu Haukar IBV í 1.
deildinni. Það hefur sennilega
verið sætur sigur eftir tapið gegn
ÍBV í bikarnum.
Haukastelpurnar náðu fram
hefndum gegn IBV í 17. umferð 1.
deildarinnar eftir ófarirnar í
bikarnum. Leikið var í Hafnarfirði
og Iauk honum með yfirburðasigri
Hauka, 34-21, í hálfleik var staðan
17 -10.
„Það er mest lítið um þennan leik
að segja,“ sagði Jón Bragi Amarsson,
þjálfari eftir leikinn. „Við gerðum of
mikið af mistökum, sendingar voru
ónakvæmar og við vorum að klikka í
dauðafærum. Á meðan alltgekk upp
hjá þeim gekk ekkert upp hjá okkur.“
Stelpumar eiga fimm leiki eftir í
deildinni en þær eru í sjöunda og
næstneðsta sæti deildarinnar með 13
stig. Stutt er í næstu lið fyrir ofan sem
eru með 14 og 15 stig en ÍBV á leik
til góða á móti Gróttu/KR.
„Framundan er þriggja vikna hlé og
verður það notað til að beija í brestina.
Vöm og markvarsla era í góðu lagi en
við erum að klikka á sendingum og
dauðafæram. Getan er lyrir hendi eins
og sést af því að við erum að ná
toppleikjum en svo dettum við niður.
Þetta þarf að laga og stelpumar eru til í
slaginn á lokasprettinum," sagði Jón
Bragi að lokum.
Svemrmeð hausinn í bleyti
Sverrir Sverrisson, einn af lykilmönnum ÍBV í fótboltanum, hefur enn ekki
gert upp hug sinn um að fara til Svíþjóðar á næstu leiktíð.Formaður
knattspyrnudeildar segir að slæmt verði að missa Sverri en komi til þess
verði að bregðast við því.
„Hann kemur til landsins í dag með tilboð frá Malmö,“ sagði Jóhannes
Ólafsson, formaður knattspymudeildar, í gær. „Hann ætlar að nota tímann ífam
yfir helgi til að gera upp hug sinn.“
Jóhannes segir slæmt að missa Sverri, komi til þess en hann er
samningsbundinn ÍBV. ,J>að er alltaf erfitt að missa lykilmenn úr liðinu en við
því verður að bregðast. Það er hægt að færa menn til og fari Sverrir. föram við
strax í að leita að nýjum leikmanni í stað hans. Vonandi kemur þó ekki til þess.“
Zoltan Bellání var markahæstur í leiknum gegn Val.
Jafntefíi gegn Val
IBV-strákarnir virtust vera með pálmann í höndum í hálfleik á móti Val á
sunnudaginn. Leikurinn fór fram að Hlíðarenda og var staðan 13 - 18
Eyjamönnum í hag en það dugði ekki til sigurs og lauk leiknum með
jafntefli 28 - 28.
ÍBV hafði framkvæði allan fyrri hálfleik og voru fimm mörkum yfir í
hálfleik. Valsmenn mættu grimmir til leiks eftir hlé og vora búnir að jafna eftir
tólf mínútur. Eftir það var jafnt á öllum tölum. Á lokamínúuinum misnotaði ÍBV
fleiri en eitt tækifæri til að krækja í sigur og varð því að sjá á eftir öðra stiginu
til Valsmanna.
Mörk ÍBV: Bello 6/3, Robertas 5, Svavar 4, Guðfinnur 4, Hjörtur 4, Erlingur
2, Haraldur 1, Sigurður 1 og Davíð 1. Sigmar Þröstur varði 14 skot.
í gærkvöldi mætti ÍBV Haukum á útivelli og verður greint frá þeim leik í
næstu viku.
Fyrri hópleik IBV og Frétta í vetur, lauk sl. laugardag
með æsispennandi úrslitaleik Hrossagaukanna og K-
tröllanna, og höfðu K-trölIin betur þegar upp var
staðið. Betri röð hópanna var jöfn og reyndist lakari
röð K-tröllanna betri en þeirra Hrossagauka. K-
tröllin, Birgir Sveinsson og „Sæfells” Halldór
Bjamason, áttu frábæran endasprett og unnu sinn
úrslitariðil þrátt fyrir að hafa aðeins tekið 1 stig með
sér í úrslit. Heyrst hefur að Georg Þór eigi svolítið
erfitt þessa dagana á kaffistofu Skeljungs með þá
mont„hana” galandi sigursöngvana yfir sér.
Getraunaþjónustan óskar þeim félögum til hamingju
með sigurinn.
Reglan um að lakari röðin gildi var Hrossa-
gaukunum ekki kunn fyrir úrslitaleikinn, en sú regla
er þó viðhöfð annað árið í röð, og tóku þeir talsverða
áhættu á annarri röðinni. Skuldar Getraunaþjónustan
keppendum f hópleiknum blað með reglunum, svo
ekki komi upp misskilningur af þessu tagi aftur.
Tekur Getraunaþjónustan algerlega á sig að hafa ekki
sinnt upplýsingaskyldu sinni í þessu tilviki. Þrátt fyrir
að Hrossagaukamir hafi tapað þessari viðureign,
munu þeir hljóta vinning þann sem þeir áttu
möguleika á og era þeir félagar Halldór sjúkra-
hússvörður og Elías sjúkraþjálfi beðnir afsökunar á
þessu.
Húskross sigraði í Vörina í úrslitaleik um 3. sætið
og skipa þann hóp Ólafur Hreinn skólameistari FÍV
og frú. Síðari hópleikur ÍBV og Frétta er í fullum
gangi og er staðan í riðlunum þessi:
A-riðill: Bommi og frú 23, Geiri smart 23, Tveir
flottir 23, Húskross 22, Ármenningar 21, Charlotta
21, Flug-eldur 21. Hengdur og spengdur 21. Bláa
Ladan 20, Kertasníkir 20, Rauðu djöflarnir 20,
Hurðaskellar 19, Munda 19, Men at work 18 og loks
Seinheppnir-SH 18.
B-riðill: Bæjarins bestu 23, Dumb and dumber 23.
Allra bestu vinir Ottós 22(stafrófið virkar) 22,
Beyglaður ljósastaur 22, Klaki 22, Villta vestrið 22,
Dautt á Vatni 21, Pörupiltar 21, Baukamir 20, Hamar
20, Jójó 20, Mariner 20, Snúrasniffaramir 20 og
Tveirátoppnum20.
C-riðill: Sig-bræður 24, Búðarráp 23, A-team 22,
Doddamir 22, ER 22, HSÞ 22, Andy Cole 21,
Hænumar20, Burt með íhaldið 19, Gráni gamli 19, í
vörina 19, ER-jrs. 18, Maur 18, Gaui bæjó 16.
D-riðill: Reynistaður 25, Austurbæjargengið 24. ÍBV
24, Don Revie 23, Jagama 23, Ktröllin 23. Frosti feiti
21. Kaffi Ermasund 21, Sveitasnakk 21, HH-
flokkurinn 20, Sigló-sport 20. V.S.O.P. 19, Klapparar
18, Guðmundur VE 17, Kaffi klikk 17.
Nokkrir hópar náðu 10 réttum um helgina og vora
það Bommi og frú, Sig-bræður og Doddaramir.
Nokkrir menn hafa veitt því athygli að hópurinn Burt
með íhaldið er nokkuð fyrir ofan Gaua bæjó!
f Mnorad leiknum fór fram önnur untferð og fóra
viðureignirnar svona: Guðni Sig - Siguijón Þorkels
9-9, Siguijón Birgis. - Friðfinnur Finnb. 9-9. ER -
Klaki 9-9. Georg og félagar - Sigfús Gunnar 9-11,
Þrumað á þrettán - Jakob Möller 10-8, Sig-bræður -
Bjössi Ella. 10-11, Andy Cole - Haukur Guðj. 9-0,
Haraldur Þór - Hlynur Sigmars. 9-10. Hengdur og
spengdur - Húskross 7-10, Björgvin Eyjólfs. - Adolf
Hauksson 0-9, Huginn Helgason - Ólafur
Guðmundsson 8-0, Eggert Garðarsson - Sigg'Óli 9-9
og sat Kári Vigfússon hjá og fékk hann 1 stig.
Staðan í Monrad leiknum er því eftirfarandi: Með 6
stig í' 1.- 5. sæti eru Andy Cole. Hlynur Sigmars,
Húskross og Sigfús Gunnar. Með 4 stig í 6. - 8. sæti
era Bjössi Ella, Guðni Sig. og Sigg'ÓIi. Með 3 stig í
9. - 11. sæti era Haraldur Þór, Haukur Guðj. og Sig-
bræður. Með 2 stig í 12. -14. sæti eru Eddi Garðars.,
ER og Friðfinnur Finnboga. í 15. - 19. sæti með 1
stig eru Georg og félagar, Kári Vigfússon, Klaki,
Sigurjón Birgisson og Sigurjón Þorkelsson.
Stigalausir enn og saman í botnsætunum era Björgvin
Eyjólfs, Hengdur og spengdur, Jakob Möller, Ólafur
Guðmunds. og Þrumað á þrettán.
Sjáunist á laugardag í kalfi
ug bakkelsi frá Vilberg.
Getraunaþjónusta ÍBV
Undirbúningur
á fullu
Nú styttist óðum í fyrstu æfinga-
leikina hjá meistaraflokki ÍBV í
knattspymu og er óhætt að segja að
nóg verði um að vera hjá strákunum
á næstunni. Fyrirhugaðar eru tvær
ferðir utan, sú fyrri þann 20.febrúar
til Kýpur en það mun verða
eingöngu keppnisferð og ef efni
standa til verður sfðari ferðin til
Portúgals þann 1 .apríl en sú ferð er
ætluð sem æfinga-og keppnisferð.
Dvalið verður í viku á hvorurn stað.
Einnig mun ÍBV taka þátt í
deildarbikamum sem hefst áður en
langt um líður en Eyjamenn unnu
þennan bikar mjög sannfærandi á
síðasta ári.
Búningsaðstaða
að fæðast
Undirbúningur að framkvæmdum
við búningsaðstöðu við Hásteins-
völl er á lokastigi.
Stefnt er að því að skrifa undir
samning milli bæjarins og ÍBV-
íþróttafélags á fimmtudaginn en
hugmyndin er að ÍBV-sjái um að
byggja húsið sem verður áfast
Týsheimilinu.
Verið er að fullgera teikningar en
í byggingunni verða tveir búnings-
klefar, gufubað, sjoppa og salemis-
aðstaða fyrir vallargesti en hún
verðurinni íTýsheimilinu.
Tómas I. kom-
inn til landsins
Tómas Ingi Tómasson. sem lék á
áram áður með ÍBV í fótboltanum,
er kominn heim frá Noregi þar sem
hann lék í tvö ár. Hann mun að
öllum h'kindum leika hér á landi á
næsta ári en hann hefur mætt á
æfingar hjá ÍBV í Reykjavík
undanfarið.
Andrea í gifsi
Andrea Atladóttir, einn sterkasti
leikmaður ÍBV í handboltanum
slasaðist á æfingu um daginn. Hún
sneri sig á ökkla og er nú komin í
gifs. Óvíst er hvenær Andrea kemst
aftur í leikhæft form.
María Rós í
aðgerð
Þetta er ekki eina áfallið sem
meistaraflokkur kvenna hefur orðið
fyrir undanfarið því María Rós
Friðriksdóttir er að fara í aðgerð
vegna meiðsla.
Enn þynnist
hópurinn
Það ætlar ekki af stelpunum að
ganga því Elísa Sigurðar er farin til
útlanda sem au pair.