Fréttir - Eyjafréttir - 19.02.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 19. febrúar 1998 • 7. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
Stofnfundur Bæjarmálafélags V-listans:
lflUum flefa sem
flestumkostá að
gefa síg fram til
framboðs og starfa
-segir Kristján Eggertsson, gjaldkeri hins nýja félags
Stofnfundur Bæjarmálafélags
Vestmannaeyjalistans var haldinn
sl. fimmtudag. I stjórn hins nýja
félags voru kosin þau Hjálmfríður
Sveinsdóttir, formaður; Kristján
Eggertsson, gjaldkeri; Armann
Höskuldsson, ritari og Guðni F.
Gunnarsson, meðstjórnandi.
Þá var kosin uppstillinganefnd sem
þau Sólveig Adólfsdóttir, Stefán
Jónasson, Jakob Möller og Sigurgeir
Scheving skipa.
Gjaldkeri félagsins, Kristján Egg-
ertsson, sagði að um 50 manns
hefðu mætt á þennan stofnfund, vel
blandaður hópur, eins og hann
komst að orði. Hugur hefði verið í
fólki og að sjálfsögðu ákveðið að
bjóða fram V-listann.
En er þetta ekki fullseint af stað
farið, ekki nema rétt um þrír
mánuðir til kosninga?
„Ég veit það ekki,“ sagði Kristján.
„Það er alltaf umdeilanlegt, sumum
finnst þetta of seint af stað farið,
öðrum of fljótt. En þetta er alla vega
komið vel í gang, nú er verið að
vinna frumvinnuna og við viljum
gefa sem flestum kost á því að gefa
sig fram, bæði til framboðs og
einnig til starfa fyrir félagið. Við
ætlum að nýta tímann vel og að
sjálfsögðu stefnum við á sigur í
kosningunum," sagði Kristján
Eggertsson.
Hlynur Stefánsson var útnefndur iþróttamaúur Vestmannaeyja 1997 sl.
laugardag og Haraldur Júlíusson fékk viðurkenningu fyrir frábæran
árangur í knattspyrnu og golfi. Sjá bls. bls. 4 og 14. Mynd: sigurgeir
Dauft yfir loðnunni og menn orðnir órólegir:
Sjómenn lifa bó enn í voninni
Það var heldur dauft hljóðið í
loðnusjómönnum í gær enda lítið
veiðst til þessa. Flotinn hefur verið
fyrir austan land þar sem tvo skot
hafa komið en enginn kraftur er
enn kominn í veiðarnar þó aðeins sé
eftir vika af febrúar.
Sigmar Gíslason, stýrimaður á Guð-
mundi VE, segir að þeir séu að leita
en lítið sé að hafa. Hann segir að það
hafi verið smáveiði á litlu svæði
austur af Skrúðnum en enginn kraftur
eða fjör sé í veiðunum. „Við fengum
um 80 tonn og lönduðum þvf á
Fáskrúðsfirði. Það var mikil áta í
aflanum og hann fór aliur í bræðslu.
Nú er spáð brælu í nótt, en það verður
kannski einhver sjens í kvöld
(miðvikudagskvöld).“
Sigmar segir að menn séu orðnir
hálfsvekktir á þessu aflaleysi og ekki
nema tíu dagar eftir af febrúar sem
hingað til hefur gefið mestu loðnuna.
Sigurður Georgsson skipstjóri á
Heimaey VE, sagði að þeir væru
staddir austur af Skrúðsgrunni, þegar
haft var samband við hann. Hann
segir að þeir hafi landað 300 tonnum
af loðnu á Fáskrúðsfirði á þriðjudag.
Hann segir að loðnan hafi verið góð
og farið í frystingu á Rússlands-
markað. „Það er lítið að gera eins og
er, en hugsanlega verður eitthvað að
hafa í nótt, þótt gert sé ráð fyrir brælu.
Við fengum 30 - 40 tonn í morgun, en
þetta er enginn afli og þrjátíu skip að
leita á svæðinu."
Hann segir að menn séu samt
bjartsýnir á að loðnan skili sér, en að
sama skapi ekki eins ánægðir með
verðið sem féll um 2000 kr. tonnið á
dögunum.
Allt er til reiðu til að taka á móti
loðnu í Eyjum en enn hefur ekki borist
uggi hér á land eftir að verkfall
sjómanna leystist í síðustu viku.
ísleifur kominn frá Færeyjum eftir gagngerar endurbætur:
Fyrstur til að fá loðnu í nót
Nótaskipið ísleifur VE 63 kom til
Vestmannaeyja í síðustu viku eftir
gagngerðar endurbætur. Þær
endurbætur voru unnar í skipa-
smíðastöðinni í Skáia í Færeyjum
og hafa staðið yfir síðan í sept-
ember í fyrra.
Leifur Ársæisson, útgerðarmaður,
sagði að skipið hefði verið lengt unt
tvo metra aftur auk þess sem því
hefði verið slegið út að aftan. Þá var
sett í það ný aðalvél af Wartsiila
gerð, 3300 hestöfl eða 2460 kw.
Við aðalvél er 155 kw. rafall. Ný
ljósavél var einnig sett í skipið, af
Caterpillargerð, 700 hestöfl með 550
kw. rafal. Nú er flestallt rafdrifið um
borð sem áður var glussadrifið. Af
öðru sem endumýjað var má nefna
að sett var svokallað Becker-stýri á
skipið, ný stýrisvél og ný kraftblökk.
Þá var settur nýr sjúkraklefi í skipið.
Leifur sagði að burðargetan ykist
ekki við þessar breytingar en skipið
væri allt annað eftir þær. nánast eins
og nýtt. Hann sagði að heildar-
kostnaður við þessar breytingar væri
um 200 milljónir króna og var mjög
ánægður með vinnubrögð Færey-
inganna.
ísleifur fór til loðnuveiða á
sunnudaginn var og var fyrsta
nótaskipið til að fá loðnu, fékk kast
upp á um 300 tonn. Er það ekki í
fyrsta sinn sem þetta mikla afla- og
happaskip fær íýrstu loðnuna.
LDUNA
eingamálin á
ægilegan h:
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉUINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTOÐ,
Græðisbraut 1 - sími 4813,
Í<H}>
i— Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga nema sun. Kl. 08:15 Kl. 12:00
sunnudaga Kl: 14.00 Kl: 18,00
'Ucriólfur BRUAR BILIÐ Sími 481 2800 Fax 481 2991
GÆÐAFRAMKÖLLUN
Bókabúðin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434