Fréttir - Eyjafréttir - 19.02.1998, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 19. febrúar 1998
Rauður,gulur,grænn
Samband umferðaröryggisnefnda á
Suðurlandi hefur ályktað um að
skorað verði á bæjarstjórn Vest-
mannaeyja að setja upp umferðar-
ljós annars vegar á gatnamótum
Heiðarvegar og Strandvegar og
hins vegar á mótum Kirkjuvegar og
lllugagötu. Málinu var vísað til
skipulagsnefndar sem fer með
umferðarmál.
Endurnýjunleyfa
Bréf frá sýslumanni lá fyrir bæjar-
ráði þar sem óskað er umsagnar um
endumýjun á vínveitingaleyfi
Ragnars Vignis Guðmundssonar
vegna Lundans. Félagsmálaráð
mun fjalla urn erindið.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
hefur einnig borist beiðni frá
sýslumanni um umsögn vegna
endumýjunar starfsleyfa fyrir
Oddfellow við Strandveg og Pizza
67 við Heiðarveg.
Skátafélagiö Faxi
óskareftirviðræðum
Vegna sextíu ára afmælis Skáta-
félagsins Faxa hefur félagið óskað
eftir viðræðum við bæjaryfirvöld
vegna hátíðahalda félagsins.
Félagið óskaði einnig eftir við-
ræðum við bæjaryfirvöld varðandi
aðgengi að Skátastykkinu. Bæjar-
stjóri mun hafa fengið erindið til
nánari athugunar.
Siálfuirk
eldfjallavöktun
Almannavamanefnd fundaði 10.
febrúar síðast liðinn. Þar kynnti
bæjartæknifræðingur meðal annars
sjálfvirka eldtjallavöktunarkerfið
sem sett hefur verið upp í
Vestmannaeyjum og tengsl Nor-
rænu eldfjallastöðvarinnar við Al-
mannavamanefnd Vestmannaeyja
Almannavarnirí
önnum
Laugardaginn 28. rnars er fyrir-
hugað er að halda flugslysaæfíngu
á vegum Flugmálastjómar og Al-
mannavama Vestmannaeyja. Æf-
ingin mun vera hugsuð sem
kennsluæfmg. Vegna æfingarinnar
var farið yfir búnað og lagermál
almannavamamefndar.
Einnig er fyrirhugað námskeið
fyrir vettvangstjórn. Elíasi Bald-
vinssyni og Adólfi Þórssyni var
falið að velja menn í væntanlegt
vettvangstjórnarnámskeið.
í bígerð er heildarskoðun mál-
efna almannavarnanefnda á hættu-
og neyðartímum og lögum um
almannavarnir. Sýslumaður mun
hafa kynnt almannavamanefnd bréf
frá Almannavömum ríkisins vegna
málsins.
indurnýjun
starfslevfis
Fiskimjölsverksmiðjan hefur óskað
eftir endurnýjuðu starfsleyfi. Drög
að hinu nýja starfsleyfi hafa legið
frammi til kynningar og athuga-
semda, en frestur til athugasemda
rann út 9. febrúar síðastliðinn.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
mun ekki hafa gert neinar athuga-
semdir.
Samstarfs- og leigusamningur milli Sparisjóðs Vestmannaeyja og Þróunarfélags
Vestmannaeyja vegna uppbyggingar iðngarðs í Vestmannaeyjum.
Bjarki Brynjarsson og Benedikt Ragnarsson við undirritun samningsins.
Vettvangur fvrir frumkvöðla sem vilja
vinna sjálfstætt að hugmyndum sínum
Fimmtudaginn 12. febrúar síðast-
liðinn var undirritaður samstarfs-
og leigusamningur milli Sparisjóðs
Vestmannaeyja og Þróunarfélags
Vestmannaeyja vegna uppbygging-
ar iðngarðs í Vestmannaeyjum.
Gert er ráð fyrir að iðngarðurinn
muni hýsa um það bil tíu smá-
fyrirtæki á sviði léttari iðnaðar.
Iðngarðurinn er ætlaður frum-
kvöðlum sem vilja vinna úr hug-
myndum með það að markmiði að
hefja sjálfstæðan rekstur.
Iðngarðurinn verður til húsa að
Flötum 25 í sexhundruö fermetra hús-
næði í eigu Sparisjóðs Vestmanna-
eyja, en hann mun sjá um allt eðlilegt
viðhald og bera kostnað af skyldu-
tryggingu húseignarinnar.
Einstaklingar sem óska eftir
þátttöku í iðngarðinum munu taka þátt
í námskeiði um stofnun og resktur
smáfyrirtækja, þar sem markmið
verða skilgreind og viðskiptaáætlanir
gerðar. Auk þess sem hver einstak-
lingur mun njóta aðstoðar Þróunar-
félagsins sem nemur tuttugu vinnu-
stundum þeim að kostnaðarlausu.
Gert er ráð fyrir að leiga á mánuði
fyrir hvert pláss verði 6000 kr. á hvem
þátttakenda án ljóss og hita og annars
sameiginlegs kostnaðar.
Dr. Bjarki A. Brynjarsson sem
undirritaði samninginn fyrir hönd
Þróunarfélags Vestmannaeyja vildi
undirstrika að iðngarðurinn væri
hugsaður sem stuðningur við
frumkvöðla í atvinnulífinu, en ekki
sem félagslegur stuðningur. Hann
benti á að erfitt gæti verið að koma
nýjum hugmyndum í framkvæmd og
iðngarðurinn miðaði að því að menn
gætu bakkað hver annan upp.
Benedikt Ragnarsson sparisjóðs-
stjóri, sem undirritaði samninginn
fyrir hönd Sparisjóðs Vestmannaeyja
lýsti því yfir að Sparisjóðurinn tæki
þátt í þessari atvinnuuppbyggingu
með glöðu geði og vonaði að menn
myndu nýta sér þennan nýja
möguleika til að efla atvinnulíf í
Eyjum. Samningurinn tekur gildi I.
apríl á þessu ári og mun gilda til tólf
mánaða í senn.
Athugasemdir
heilbrigðisfulltrúa
Heilbrigðisfulltrúi hefur gert
nokkrar minniháttar athugasemdir
vegna viðbyggingar við Týsheim-
ilið við Hásteinsvöll og óskar eftir
þvf að tekið verði tillit til þeirra.
Athugasemdimar sem heilbrigð-
isfulltrúi gerði vom ábendingar um
útfærslu vegna sjoppu/sölulúgu
sem ráðgei! er að verði í nýbygg-
ingunni. Þótti aðstaðan helst til lítil,
auk þess sem æskilegt væri að gera
ráð fyrir vaski ásamt inntaki fyrir
heitt og kalt vatn.
Sígurgeir og
gildaskálinn
Umsókn Sigurgeirs Scheving um
rekstur gildaskála að Faxastíg 33
var tekin fyrir hjá heilbrigðis-
fulltrúa. Hann gerir engar athuga-
semdir við húsnæði gildaskálans.
Sýslumaður óskaði eftir untsögn
heilbrigðisfulltrúa.
Kjörió tækifæri til aö
sjáHemma
Það hefur ekki farið fram hjá
áhugamönnum urn knattspynu að
Eyjamaðurinn Herntann Hreiðars-
son er að slá í gegn með Crystal
Palace í ensku Úrvalsdeildinni.
Fram til þessa hafa Eyjamenn
þurft að láta sér nægja að fylgjast
með pilti í sjónvarpinu en Nú hefur
Friðfinnur í Eyjabúð. sem er með
umboð fyrir Úrval-Útsýn ákveðið
að efna til hópferðar á leik Crystal
Palace og Manchester United
laugardaginn 24. apríl. Flogið
verður út daginn áður og kornið
heirn á sunnudeginum. „Mér tókst
að útvega nokkur sæti á mjög
hagstæðu verði, 42.500 krónur og
er þá allt innifalið, flug, gisting,
miði á völlinn og skattar," sagði
Friðfinnur.,
Islandsmeistaramót í rafveiturekstri.
Bæjarveitur stóðu uppi sem meistarar
Niðurstöður fyrsta íslandsmeistara-
móts í rafveiturekstri hafa verið
birtar Keppnin er í formi könnunar
sem gerð er til að bera saman
ákveðnar stærðir í rafveiturekstri.
Bæjarveitur Vestmannaeyja tóku
þátt í keppninni og stóðu uppi sem
Islandsmeistarar.
Það er Samorka, sameignarfyrirtæki
allra orkufyrirtækja á landinu, stendur
fyrir keppninni. Könnunin byggir á
svokallaðri lykilgreiningu með hug-
myndafræði Benchmarking. Könnun-
in er byggð á samnorrænu kerfi sem
hannað er af norska fyrirtækinu Energi
Data og hefur reynst mjög vel við mat
á stöðu fyrirtækja sem eru í svipuðum
rekstri. Norðmenn eru til að ntynda
með um 100 dreifiveitur sem þeir bera
saman innbyrðis. í þessari könnun
voru borin saman fimm fyrirtæki í
rafveiturekstri á íslandi og komu
Bæjarveitur Vestamannaeyja best út
af þessum fimm fyrirtækjum. Friðrik
Friðriksson hjá Bæjarveitunum segir
að það sé mjög gagnlegt að taka þátt í
þessu til þess að meta hvað þeir séu að
gera hagstætt og hvað óhagstætt.
Friðrik segir að ákveðnar lykil-
stærðir í rekstrinum hafi verið bomar
saman í könnuninni. „í fyrsta lagi er
metinn kostnaðargmnnur fyrirtækisins
og umfang, hverju er verið að kosta
við lausn verkefnisins. Um er að ræða
flutning á orku til viðskiptavina og í
framhaldi af því hversu mikið er
urnfang kerfisins sem byggt hefur
verið upp.“
Friðrik segir þetta mjög öflugt
stjómtæki til þess að veita einokunar-
fyrirtækjum aðhald og gefi þeim kost
á innbyrðis santanburði. ,,Með þessari
könnun getum við metið hvort við
erunt að gera hlutina vel eða illa og
hvort við erum að kosta of miklu til í
samanburði við aðra.
Friðrik segir að kostnaðargrunn-
urinn byggi á árlegum rekstrarkostn-
aði við viðhald og rekstur netsins,
kostnaði vegna tapa á netinu, fjár-
magnskostnaðar og straumrofs.
Kostnaður eftir starfsemi skiptist hins
vegar í eftirfarandi deildir; aðveitu-
stöðvar, háspennt net, dreifistöðvar,
lágspennt net, notendaþjónustu, yfir-
stjóm og stoðdeildir „Við komum
mjög vel frá þessari könnun," segir
Friðrik „og í samanburði þessara
fimm fyrirtækja komum við best út.
Miðað við hvemig kostnaður skiptist
sem hlutfall af heildarkostnaði hjá
Bæjarveitunum er starfsmanna-
kostnaður um 27%, rekstrarkostnaður
um 18%, tapakostnaður 8%, afskriftir
unt 26%, vextir af eigin fé 20% og
kostnaður vegna rofs um 1%. Ef
skoðaður er hlutfallslegur kostnaður
eftir deildum hjá bæjarveitunum er
aðveitustöð með 8%, háspennt net unt
10%, dreifistöðvar 14%. lágspennt
net, 33%, notendaþjónusta 10%,
yfirstjóm 6% og stoðdeildir með 19%
kostnaðar.
Friðrik segir að hluti ástæðunnar
fyrir því að Bæjarveitur komi svo vel
út sé sú að þær em með blandaða
strafsemi og að sameiginlegur
kostnaður skiptist á fjórar deildir. Hins
vegar sé það athyglisvert að stóru
veiturnar komi mjög áberandi illa út
og aðrar veitur með blandaða starf-
semi komi mun verr út en við. Við
emm því með hagstæðustu veituna að
þessu leyti miðað við umfang
kerfisins, fjölda viðskiptavina, mesta
afls og svo framvegis. Við emm því í
góðum málum, þó gera megi betur í
ýmsum þáttum starfseminnar og við
munurn í framhaldi af könnuninni fara
í það að bæta þætti sem koma ver út.“
Friðrik segir að þetta séu góð
skilaboð til bæjarbúa urn stöðu fyrir-
tækisins. „Rekstur rafveitunnar er
mjög góður, hins vegar er of hátt
innkaupsverð vandi hennar. Inn-
kaupsverðið er 15% hærra en í
Reykjavík, sem myndi þýða tuttugu
milljónir króna í auknum tekjum, ef
við kæmumst í bein viðskipti við
Landsvirkjun, sem er um 10% af
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & SigurgeirJónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alia fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavílc hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.